Á morgun mætir Chelsea á Anfield og má segja að þetta geti orðið úrslitaleikurinn í deildinni en eins og staðan er þá eru það ekki við sem eigum möguleika á titlinum heldur Chelsea eða Manchester United. Sigrum við Chelsea þá þarf Man U eingöngu að klára sína leiki á meðan ef við töpum þá hefur Chelsea pálmann í höndunum. Mikil umræða er um þetta í netheimunum og m.a. hefur stjórinn hjá Man U sagt að þetta sé spurning um heiður Liverpool og hann treysti á stoltið okkar … sjáum til. En ég ætla ekki að fara meira út á þessari brautir né ræða ítarlega um gengi okkar í vetur (nóg er búið að gera það undanfarið á þessari síðu, í heitu pottunum og á Serrano).
Kíkjum fyrst á þá leikmenn sem við höfum klára í þennan leik og hvernig Rafa mun hugsanlega stilla liðinu upp:
Johnson – Carra – Kyrgiakos – Agger
Masherano – Aquilani
Maxi – Gerrard – Benayoun
Kuyt
Bekkur: Cavalieri, Babel, Pacheco, Degen, Lucas, Ayala, Ngog.
(hverjir verða nákvæmlega á bekknum, þ.e. Pacheco eða Degen eða einhver annar ungur skiptir í raun ekki máli.
Ég tel næsta víst að Johnson muni verða færður í hægri bakvarðarstöðuna og hugsanlega Agger notaður í vinstri bakvörðinn líkt og gegn Burnley um daginn. Þessi æfing með Johnson í vinstri bakverðinum gekk ekki eftir gegn Atletico. Maxi kemur klárlega inní liðið og spurning hvort Benayoun verði inni á kostnað Babel á kantinum eða hvort Kuyt fari jafnvel á kantinn og Babel uppá topp … who knows? Bottom line-ið er að öllu máli skiptir að liðið sé tilbúið í stríð því hvort Man U eigi möguleika á að vinna titilinn eða Chelsea kemur okkur ekki við! Við viljum ávallt vinna öll lið sama hver staðan er og ef það er álíka líklega að við náum 4 sætinu í deildinni og að peningarnir skili sér allir frá Tortola þá er ennþá möguleiki!
Chelsea vann Stoke í sínum síðasta leik aðeins 7-0 á meðan Liverpool spilaði gegn Atletico á fimmtudaginn og vann 2-1. Í deildinni unnum við Burnley 4-0 í solid leik. Ég minni á að Liverpool hefur ekki tapað gegn Chelsea á Anfield á heimavelli síðan 2005 og í deildinni höfum við ekki tapað í 5 leikjum í röð.
Heilt yfir hefur tímabilið verið vont og lítið sem breytir því úr þessu en sigur á morgun gerir mikið fyrir særða Liverpool-stuðningsmenn og þess vegna trúi ég ekki öðru að hver sá sem spilar þennan leik í rauða búningnum verði 110% klár í stríð. Chelsea mun mæta með sitt sterkasta lið og ekki gefa pund eftir. Þeir geta í rauninni tryggt sér titillinn með sigri og munu klárlega ekki hata það að ná að setja vinstri höndina á bikarinn á Anfield: ÞAÐ MÁ EKKI GERAST! Þótt úrslit leiksins geti hjálpað öðru liði.
Ég skal svo sem viðurkenna að það er ekki margt sem gefur mér ástæðu til bjartsýni en á móti þá hef ég alltaf í hverjum einasta leik trú á því að Liverpool geti unnið. Svo einfalt er það.
ÁFRAM LIVERPOOL.