Um höfundana: Doddi

doddi_jons_profile.jpgÉg heiti Þorsteinn Gunnar Jónsson, en er af flestum ættingjum og vinum kallaður Doddi. Ég er 36 ára, og er fæddur á því ári þegar Alun Evans var markahæstur Liverpool-manna það tímabil. Liverpool er það lið sem ég heyrði fyrst minnst á þegar ég var polli og ákvað að halda með því. Hef gert það sleitulaust síðan. Ég er gallharður Liverpool-aðdáandi og það er reyndar uppáhaldsliðið mitt í hvaða íþrótt sem er. Gengi Liverpool hefur mikil áhrif á líðan mína. Ég hef kannski róast síðustu árin, en á það til að detta niður í þunglyndi eða hífast upp í eilífa hamingju … allt eftir því hvernig liðið mitt spilaði – og hvernig leikurinn fór.

Ég bý á Akureyri með unnustu minni og tveimur fósturdætrum. Flutti hingað árið 2002, eftir að hafa búið í Reykjavík og nágrenni nær allt mitt líf. Ég hef ekki enn náð að sjá Liverpool spila, en trúi því að það gerist fyrr en seinna. Fótbolti er mín uppáhaldsíþrótt … ég hef ekki stundað íþróttir sjálfur en gert mikið af því að horfa á þær. Reyndar hef ég gaman af öllum boltaíþróttum en fótboltinn er alltaf vinsælastur.

Það að ég hafi varpað fram nafni Alun Evans hér í byrjun þýðir ekki að ég sé gangandi Liverpool-alfræðibók, en kannski frekar ágætis dæmi um það sem ég elska: að leita uppi staðreyndir. Enda eru handbækur um hitta og þetta mjög vinsælar hjá mér. Meðal annarra áhugamála eru fólk, kvikmyndir, tónlist og mannleg samskipti. Það passar því vel fyrir mig að vera deildarstjóri kvikmynda- og tónlistardeildar Amtsbókasafnsins á Akureyri – en ég er einmitt menntaður bókasafns- og upplýsingafræðingur. Þeir fáu sem hafa áhuga á fótbolta þar halda með Liverpool … þannig að bæði heima og í vinnunni er ég mjög sáttur íþróttalega.

Fram er liðið mitt í íslenskri knattspyrnu, þannig að mögur ár í knattspyrnunni eru farin að segja til sín. En ég hef mikla trú á því að enski deildartitillinn sé á leiðinni til Liverpool “innan skamms”. Maður er kannski ekki sá þolinmóðasti, en staðreyndin er skýr: það styttist alltaf í næsta titil!

Þeir Liverpool menn sem ég hef haft hvað mestar taugar til í gegnum árin eru Kenny Dalglish, Ian Rush, Robbie Fowler, Michael Owen og Steven Gerrard. Ég er líka mikill Carra-maður … annars gæti ég talið upp líka menn sem stöldruðu stutt hjá okkur: t.d. Gary McAllister, en ég á einmitt Liverpool búning með hans nafni og númeri sem keyptur var af vini mínum á Anfield.

Ég hef gaman af því að tala og skrifa og hlusta og lesa og horfa. En ég byrjaði þó ekki að blogga almennilega fyrr en febrúar 2005. Þá fann ég vettvang sem fullnægði “mörgum mínum þörfum”, þ.á m. gleðipóstum og grátstöfum varðandi Liverpool leiki. Bloggsíður mínar í dag eru tvær: http://doddiheimur.blog.is/ og http://blog.central.is/dulla_og_doni. Ég segi það sem ég vil segja á þessum síðum, en hér á Liverpool blogginu mun ég auðvitað fyrst og síðast skrifa um málefni sem eru tengd besta félagsliði heims í íþróttum!

Endilega sendið línu: doddi.jonsson@vortex.is eða doddi@vortex.is — Áfram Liverpool!

Comments are closed.