Einar Matthías heiti ég og er ´81 módelið af Selfyssingi.
Hér og bara allajafna á netinu geng ég undir viðurnefninu Babu, þetta festist við mig þegar verið var að velja nöfn á búninga hjá leikmönnum utandeildarliðs (Tantra FC) sem ég spilaði með á Selfossi í kringum aldarmótin. Gamli er slökkvustjóri og því lá beinast við það yrði Babu aftan á mínum búning, hvort sem mér líkaði það eða ekki.
Stuðningur minn við Liverpool hófst ca. ´86-´87 eða um leið og ég vissi eitthvað um fótbolta. Ég man að ég heyrði félaga minn og segja í rifrildi við einhvern „nei hey, Liverpool er langbest” og ég tók það mjög bókstaflega því ég er ekki viss um að ég hafi verið búinn að sjá leik með liðinu á þessum tímapunkti, en þá líkt og nú var bara eitt lið sem eitthvað vit var í að halda með og valið því einstaklega auðvelt. Síðan þá hefur þetta lið frá Englandi verið hreint fáránlega stór partur af mínu lífi og svei mér þá ef þetta hefur ekki mótað mann á einhvern hátt. Í dag er krafan hjá manni orðin þannig að maður er hálf pirraður ef það kemur ekkert nýtt í fréttum á hverjum klukkutíma. Ég hef lesið mig þó nokkuð vel til um Liverpool í gegnum tíðina, ég fylgist mjög vel með því sem er að gerast hverju sinni og er oftast til í að ræða Liverpool fram í rauðan dauðann. Líklega gæti ég drepið kött úr leiðindum á Liverpooltali.
Ég hef aldrei pælt neitt rosalega í uppáhaldsleikmönnum þannig séð, Barnes og Rush voru báðir rosalega góðir og í miklu uppáhaldi. Fowler er guð og kom eins og stormsveipur inn í liðið. Á einhverju stigi málsins hélt ég þó nokkuð upp á McManaman. Árið 1997 sá ég fyrsta byrjunarliðsleik Owen live og það barn gat spilað fótbolta, seinna voru það Hamann og Hyypia sem voru í uppáhaldi. Í dag eru það svo auðvitað Carra, Gerrard og elsku kúturinn minn hann Fernando Torres.
Sjálfur hef ég farið 6-7 sinnum á leik hjá Liverpool og aldrei séð þá tapa (Riise reyndi sitt besta síðast en jafnaði of seint fyrir Chel$ki) og það sem meira er þá hef ég þrisvar séð Arsenal spila og auðvitað þrisvar séð Arsenal tapa! En það þarf líklega engan stærðfræðing til að sjá að margar planaðar sólarlandaferðirnar hafa endað í helgarferð til Englands sem líklega skilur helmingi meira eftir sig.
Að lokinni ágætis bjórdrykkju á fyrsta degi sumarfrís í lok júlí 2008 ákvað ég að sækja um sem „penni” hér á Kop.is, gleymdi því svo aðeins yfir Verslunarmannahelgina og það var því óvænt ánægja þegar ég sá móttöku umsóknarinnar eftir helgina. En hún var að lokum samþykkt af snillingunum sem stýra hér skútunni og ég hlakka því til að bulla hér inn í framtíðinni. Síðuna tel ég vera besta vettvanginn hér á landi (og víðar) til að skiptast á skoðunum um Liverpool þó tekið hafi þó nokkurntíma að sannfæra mig um að íslenskir gaurar gætu sagt mér einhvað um Liverpool sem ég fann ekki á ensku. En fljótlega eftir fyrstu heimsókn hingað varð síðan fyrirliði blogghringsins hjá mér.
Áður hef ég eyðilagt alla pólitíska framadrauma félaga minna á nokkrum bloggsíðum sem ég hef haldið úti sl. 5-6 ár þar sem ég fór aðallega yfir atburði helgarinnar í máli og fullt af myndum, með aulahúmorinn að leiðarljósi. Í dag sé ég síðan um stuðningsmannasíðu Selfoss (selfoss.org) sem ég stofnaði ásamt öðrum haustið 2009.
Ef þið viljið hafa samband við mig eða benda á eitthvað sniðugt þá er um að gera að henda línu á einar@babu.tk
YNWA
Babu.
[...] getið lesið allt sem þið þurfið um Babu á prófíl-síðunni hans sem þið finnið hér til hægri ásamt tenglum á prófíl-síður ykkar [...]