Kvennalið Liverpool

Það ætti vonandi ekki að hafa farið framhjá lesendum þessarar síðu, en Liverpool heldur líka úti kvennaliði sem í dag er kallað Liverpool Women, eftir nafnabreytingu í sumar, en áður var liðið kallað Liverpool Ladies. Liðið leikur í FAWSL (Football Association Womens Super League), og þar er haldið út tveim deildum með 11 liðum í hvorri deild, en þar er um að ræða fjölgun frá 10 liðum í hvorri deild á síðasta tímabili. Núna í vetur mun efri deildin verða kölluð Women’s Super League, en sú neðri verður Women’s Championship.

Sagan

Kvennalið Liverpool varð til árið 1995, en saga félagsins nær reyndar aðeins lengra aftur, eða til ársins 1989 þegar Newton Ladies var stofnað. Það lið náði m.a. í úrslit í deildarbikarnum árið 1993 og í FA bikarnum árið 1994, en árið 1995 var ákveðið að keppa undir merkjum Liverpool. Í kjölfarið fylgdu tveir aðrir bikarúrslitaleikir, en engir titlar, og í kringum aldamótin féll liðið um deild. Liðið var að rokka á milli deilda næstu 10 árin, en náði fótfestu í efstu deild árið 2011. Árið 2013 varð liðið loksins fullgildur meðlimur í LFC fjölskyldunni, og fagnaði því með því að vinna deildina sællar minningar. Á meðal leikmanna á þeim tíma var Katrín okkar Ómarsdóttir, þáverandi landsliðskona. Árið eftir vann liðið aftur titilinn, og með dramatískum hætti, því liðið var í 3ja sæti fyrir lokaumferðina en náði toppsætinu með sigri í síðasta leik á meðan bæði liðin fyrir ofan klúðruðu sínum leikjum.

Síðustu 3 tímabilin hefur liðið svo endað um miðja deild, en á þessum tíma hafa Chelsea og Manchester City skipað efstu sætin. Á síðustu leiktíð endaði Liverpool í 6. sæti. Þess má geta að María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar, landsliðsþjálfara Noregs í handbolta, gekk til liðs við Chelsea í september 2017.

Manchester United var hvergi að sjá á lista yfir kvennalið þangað til í vor, en þá var sett á stofn kvennalið þar á bæ. Reyndist sú ákvörðun nokkuð afdrifarík fyrir okkar konur, því talsvert af leikmönnum Liverpool tóku þá furðulegu ákvörðun að svíkja lit og leika fyrir rauðu djöflana. Ber þar helst að nefna Casey Stoney, sem hafði áður yfirgefið Liverpool til að vera aðstoðarþjálfari Gary Neville hjá enska landsliðinu, en hún mun þjálfa United. Fjöldi leikmanna yfirgáfu skipið eins og Alex Greenwood sem verður fyrirliði United, Sioban Chamberlain, Katie Zelem og fleiri. Þá ákvað Gemma Bonner, sem hefur verið fyrirliði síðastliðin ár, að skipta yfir í hitt Manchester liðið, Sophie Ingle gekk til liðs við Chelsea, og Kate Longhurst fór til West Ham. Í stuttu máli, þá munum við sjá nánast alveg nýtt lið á þessari leiktíð.

Við eyðum ekki meiri tíma í að velta okkur upp úr þeim leikmönnum, óskum þeim velfarnaðar, nema auðvitað þegar þær keppa á móti okkar stúlkum.

Liðið

Í vor fékk liðið nýjan knattspyrnustjóra, en þá tók Neil Redfearn við liðinu. Neil lék áður með liðum eins og Bolton, Watford, Oldham, Barnsley og fleiri, en hefur verið að þjálfa frá aldamótum, bæði í karla- og kvennaflokki. Á síðustu leiktíð þjálfaði hann Doncaster Rovers í næstefstu deild og náði liðið að vinna deildina, en ákvað af einhverjum ástæðum að taka ekki sæti í efstu deild. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að hann hafi ákveðið að færa sig til klúbbs með meiri metnað, og tók reyndar svolítið af leikmönnum með sér.

Þá var góðvinur okkar Chris Kirkland ráðinn sem markmannsþjálfari hjá kvennaliðinu.

Eins og nærri má geta hefur sumarglugginn verið afar viðburðarríkur hjá liðinu. Eftirfarandi leikmenn hafa verið fengnir til liðsins:

  • Leighanne Robe, varnarmaður frá Milwall
  • Jasmine Matthews, varnarmaður frá Bristol
  • Yana Daniels, belgískur sóknarmaður frá Bristol
  • Anke Preuss, þýskur markmaður frá Sunderland
  • Leandra Little, varnarmaður frá Doncaster
  • Rhiannon Roberts, varnarmaður frá Doncaster
  • Niahm Fahey, varnarsinnaður miðjumaður frá Bordeaux
  • Christie Murray, sóknarmaður frá Glasgow
  • Sophie Bradley-Auckland, varnarmaður frá Doncaster
  • Courtney Sweetman-Kirk, sóknarmaður frá Everton
  • Fran Kitching, markvörður frá Sheffield United
  • Kirsty Linnett, sóknarmaður frá Reading

Sem betur fer hættu nú ekki allir leikmenn liðsins síðasta vor, og við munum því sjá kunnugleg nöfn áfram eins og Laura Coombs, Ashley Hodson, Becky Flaherty og fleiri.

Leandra Little var síðan nýlega skipuð fyrirliði liðsins, og Sophie Bradley-Auckland varafyrirliði.

Á undirbúningstímabilinu hefur liðið leikið nokkra leiki. Fyrst gerði liðið markalaust jafntefli við Everton, þá skrapp liðið til Þýskalands og gerði þar 1-1 jafntefli við Bayern München, fyrir rúmri viku tók liðið Leicester í bakaríð og vann 4-0, og enduðu svo á að vinna Durham 3-0 síðastliðinn sunnudag.

Þó svo að fyrsti leikur deildarinnar sé ekki fyrr en þann 9. september þegar liðið heimsækir Arsenal, þá má samt segja að leiktíðin hefjist fyrir alvöru á morgun, sunnudaginn 19. ágúst, með leik í Meginlandsbikarnum (Continental Cup).

Andstæðingarnir í þeim leik? Manchester United Women.

Ef áhugi er fyrir því, þá má alveg eiga von á fleiri fréttum af liðinu í vetur hér á þessari síðu. Látið endilega vita í athugasemdum hvort svo sé.

26 Comments

  1. Ég las allavega þessa grein og þótti hún áhugaverð. Takk

  2. Kominn tími til að þessi síða geri kvennafótbolta hærra undir höfði. Endilega flytjið fréttir af okkar frábæra kvennaliði. Einnig væri frábært að fá upphitanir á sama leveli og gert er með karlana sem og félagsskiptaslúður.

  3. Það verður mjög áhugavert að fylgjast með þróuninni á kvennaboltanum í Englandi næstu ár. Það virðist vera kominn mun meiri metnaður í að gera betur, bæði hjá knattspyrnusambandinu og félögunum. Meiri metnaður, meiri athygli, meiri atvinnumennska. Hlýtur að skila sér í betri fótbolta.

    Katie Zelem yfirgaf annars Liverpool fyrir ári síðan, hún fór til Ítalíu og vann þar deildina með Juventus. Hún kom líka upp í gegnum yngriflokkastarf Manchester United svo það má deila um hvort hún sé að svíkja lit.

    Þrír af þessum 7 leikmönnum sem fóru beint yfir til United voru svo líka í unglingastarfinu þar.

    En það er áhugaverð uppbygging í gangi hjá báðum félögum og verður fróðlegt að fylgjast með þeim í framtíðinni.

  4. Sæl og blessuð.

    Hafi nokkur velkst í vafa um að þessi síða sé alvöru þá ættu þær efasemdir að kafna, drukkna og deyja í kjölfar þessarar færslu.

    Flottir.

  5. Frábært framtak!

    Ef taka á nafnakall, þá kýs ég hiklaust “já”, meiri umfjöllun!

    Og hver veit nema fleira kvenfólk muni leggja leið sína hingað á kop.is í kjölfarið. Það er frábært að hér leggi menn sitt að mörkum til að efla kvennaknattspyrnuna með umfjöllun um okkar ástkæra klúbb 🙂

    Homer

  6. Það væri flott að fá t.d. Úrslitin úr leikjunum hjá þeim og stöðutöflu eftir hverja umferð, þá nær maður a.m.k. Að fylgjast með.

  7. Held það sé svosem ekkert kynjamisrétti ef maður segir nei, ætla samt að skila auðu. Hef sjálfur takmarkaðann áhuga en virði það vel ef fólk vill sjá fleiri fréttir af kvennaliðinu, hið besta mál ?

  8. Ég fæ aldrei nóg af Liverpool þannig að pleas bring it on 🙂

  9. Húrra fyrir ykkur! Hef verið að berjast við að fylgjast með kvennaliðinu. Þótt endilega frekari umfjöllun, gerir mér auðveldara fyrir. Breytir stórkostlegri síðu í yfirnáttúrulega stórkostlega síðu

  10. HM #8:

    jú þetta var auðvitað svolítið dramatískt orðað hjá manni. Zelem er kannski gott dæmi um leikmann sem hefði alltaf farið að spila með aðalliði United ef það hefði verið til staðar, en hefur ákveðið að fara frekar til Liverpool, mögulega til að þurfa ekki að færa sig of mikið um set.

    Síðan hefur peningahliðin örugglega spilað einhverja rullu þarna, nú eru leikmenn kvennaliðanna ekki þær best borguðu í bransanum, og því sjálfsagt auðveldara að koma með gylliboð sem erfitt er að hafna.

    En ég held að fólk sé líklega mest undrandi á Alex Greenwood, því mér skilst að hún sé scouser. Og að slíkur leikmaður fari ekki bara til United, heldur verði fyrsti fyrirliði kvennaliðs United, er líklega það sem maður undrast mest.

  11. Ég skil ekki þessa nafnabreytingu, Liverpool ladies hljómar miklu betur en Liverpool women. Frekar tilgangslaus breyting.

    YNWA

  12. Daníel #22

    Já, held að það hafi að miklu leyti verið staðsetningin sem varð til þess að þessar sem komust ekki lengra hjá Manchester United völdu að fara til Liverpool og Manchester City. Þær létu ekki ríginn stoppa sig í að komast í góð lið í meistaraflokki.

    Alex Greenwood er nú uppalin í Everton og það hefur nú ekki verið alslæmt samband á milli Everton og Manchester United í gegnum tíðina. Mig grunar að það að hún hafi fært sig yfir til United hafi verið blanda af áhrifum frá Stoney, stærð verkefnisins og líklega peningar líka. Annars er alveg kominn tími til að fá meiri peninga í kvennaboltann.

    Ég horfði annars á þennan leik í dag, hafði virkilega gaman af honum. Sem Unitedmaður þá stefnir í að það verði töluvert skemmtilegra að fylgjast með konunum en körlunum í vetur *facepalm*

  13. Sælir félagar

    Já takk. Ég vil allan þann Liverpool bolta sem mögulegt er að fá. Kvennaboltinn getur verið mjög skemmtilegur en er auðvitað misjafnlega góður eins og karlaboltinn.

    Það er nú þannig

    Ynwa

One Ping

  1. Pingback:

Aldursfordómar

Upphitun: Liverpool heimsækir Crystal Palace