Liðið gegn Spartak Moscow

Jæja, komið að stærsta leik tímabilsins hingað til og Klopp blæs til sóknar. Mané, Salah, Coutinho og Firmino eru allir í liðinu og Coutinho jafnframt fyrirliði!
Erfitt að ætla að heimfæra þetta í eitthvað kerfi fyrirfram en svona sirka lítur þetta út:

Karius
Gomez – Lovren – Klavan – Moreno

Mané – Can – Wijnaldum – Coutinho (c)

Salah – Firmino

Fyrirfram myndi ég halda að þetta lið ætti að klára þetta verkefni örugglega. Liverpool fer aftur á móti aldrei auðveldu leiðina þannig að við sjáum hvað setur. Sama hvað, klárið bara verkefnið.

KOMA SVO!

YNWA

64 Comments

  1. Miðað við hvernig Klopp hefur verið að láta liðið spila er líklegt að þetta verði einhver ægileg samsuða, líklega 2-3-1-2-2 í sókn og þá 3-4-1-1-1 í vörn með falska níu, nema fyrstu 20 mínúturnar í seinni en þá verður spilað 4-1-2-1-2. Eða eitthvað.

  2. Að hann droppi Henderson á bekk sem fyrirliða liðsins segir manni mikið.. í jafn mikilvægum leik og þessum. Erum við að fara sjá nýjan fyrirliða á næstu leiktíð?

  3. Þetta er klárlega 4-3-3 liðið okkar. Mane, Firminho, Salah fremstir með Coutinho fyrir aftan og Winjaldum/Can að passa vörnina.

  4. Glæææsilegt! Captain Coutinho nær vonandi þrennu í kvöld. 🙂

  5. Þvílíkur fótbolti sem liðið er að spila. Firmino er orðinn minn uppáhalds leikmaður minn.

  6. Vá hvað það er gaman að horfa á þetta lið í þessum ham. Gjörsamlega rífa varnir í sig.
    Veisla framundan í kvöld.

  7. Jahérna, þessi sóknargeta er á köflum gjörsamlega galin. Topp 3 í heiminum í þessu formi.

  8. Frábær skemmtun að horfa á þetta lið okkar nú er bara að halda haus og klára þetta með stæl.

  9. Menn eru á mjög hægu tempói en samt komnir 3-0 yfir eftir innan við 20 mins. Greinilega bara upphitun fyrir nágrannaslaginn um helgina!

  10. Þetta lið er óhugnanlega sterkt framávið. Man ekki eftir öðru eins og ég hef fylgst með Liverpool síðan 1978

  11. Hinir fjórir fræknu, Salah, Mané, Coutinho og Firmino, varnarmenn skjálfa í hnjánum þegar þeir nálgast vítateiginn hvað þá í þessum ham

  12. Coutinho hefur fengið fyrirliðabandið lánað hjá Hendó. Það er alltof vítt, hann er að ströggla meira við að halda því á höndinni en að komast frá hjá varnarmönnum Spartak.

  13. Spartak tvisvar búið að sleppa við gult spjald!

    Fyrst Can togaður niður í upphafi skyndisóknar og svo Karius truflaður við útsparkið.

    En Can var út af fyrir sig heppinn að fá ekki beint rautt fyrir þessa rugltæklingu með takkana í hnéhæð… og HVAÐ var Karius að gera hérna?! Úff.

  14. Firmino er með ólíkindum vinnusamur. Tveggja manna maki á góðum degi.

  15. Glæsilegur fyrri hálfleikur, menn eru að taka því rólega og gera hlutina yfirvegað. (Kannski fyrir utan tæklinguna hans Can og skógarhlaupið hans Karius) Það væri skelfilegt að missa Moreno í meiðsli núna rétt fyrir jól, vonum að þetta sé minni háttar.

    Áfram með veisluna!

  16. Sælir félagar

    Ég á bara eitt orð í eigu minni núna FIRMINO!!!!

    Það er nú þannig

    YNWA

  17. Tæklingin hjá Can var glórulaus og gult spjald var miskunn meðað við hvernig þetta leit út fannst manni ég hefði allavega orðið sturlaður ef þeir hefðu gert þetta við okkar leikmann.
    Karius er ekki Neuer allavega og ætti að passa sig betur finnst manni en frábær fyrri hálfleikur hjá okkar mönnum og vonandi er þetta ekki alvarlegt með Moreno sem er búin að vera mjög góður.

  18. Frábær hálfleikur. Eina sem mér fanst gagnrínisvert er að þeir náðu ekki að bæta fjórða markinu við. Vonandi gerist ekkert aftur sama martröðin og gegn Sevilla. Hef samt litlar áhyggjur af því. Klopp er væntanlega að hamra á því þessa stundina að það megi ekki gerast.

  19. Þessi sókn í marki númer tvö!

    Talandi um Fab Four, þvílíkur glæsileiki!

  20. Frábær niðurstaða eftir fyrri hálfleik miðað við að menn virðast bara vera í 3 gír.
    Nú er bara að klára þetta með stæl og tryggja okkur í 16 liða úrslit.
    Væri til í að sjá Klopp skipta snemma Salah og Mane út og tryggja að þeir verði heilir fyrir helgina. Nýta bekkinn

  21. Ömurlegt að Moreno er meiddur og gæti þetta verið 2-4 vikur en við erum með Robertson/Millner til að leysa hann ef þess þarf.
    Það er líka slæmt að eyða skiptingu í vinstri bakvörð því að maður vill helst taka sóknartríóið okkar og vefja því í bómul fyrir Everton leikinn(s.s taka þá útaf til að minnka líkur á meiðslum og hvíla).

  22. Coutinho er orðinn svo þróaður í fótbolta að hann er farinn að nota varnamennina sem batta til þess að skora í markið. Allavega tvö þannig mörk í tveimur síðustu leikjum. 🙂

  23. Mikið svakalega vorkenni ég varnarmönnum sem mæta liverpool í þessum ham þvílík slátrun yndislegt.

  24. Karius.
    Hinir fá skotfæri inn í teig og Karíus hoppar upp rétt áður en skotið ríður af.
    Er því í loftinu þegar boltinn flýgur og hefði aldrei getað framkvæmt einhverja markvörslu ef boltinn hefði verið á target. (Maður verður að finna eitthvað nöldur)
    Ok . 6-0.
    YNWA

  25. Salah búinn að vera frábær hann ætti að vera búin að skora hvernig er staðan 6-0 án þess að hann er með mark?

  26. Geggjað mark hjá Salah. Þessi snúningur hjá honum setti tvo varnarmenn á rassinn og svo smellti hann honum í netið með hægri. Snilld!

  27. Nýi Liverpool-kvartettinn á toppnum með sjö stykki sín í milli!

    Vesalings Sturridge leit ekki svo vel út í samanburði…

Podcast – Svanavatnið

Liverpool – Spartak Moscow 7-0