Vilt þú auglýsa á Kop.is?

Vilt þú auglýsa á Kop.is?

Í dag eru laus hjá okkur öll helstu auglýsingapláss. Hefur þú eða þitt fyrirtæki áhuga á að auglýsa á Kop.is? Endilega hafið samband!

Liverpool bloggið hefur starfað í tæp ellefu ár. Á þessum árum hafa verið skrifaðar 5.000 færslur, eða nærri því ein og hálf að meðaltali á dag. Umræðurnar á síðunni hafa líka verið gríðarlega lifandi. Frá stofnun hafa yfir 168.000 ummæli verið skrifuð hér eða um 55 á hverjum einasta degi. Á síðustu þremur árum er þó líklegt að meðaltalið sé mun hærra, enda hafa vinsældirnar aukist mikið. Síðan er klárlega ein af allra vinsælustu bloggsíðum landsins.

Að meðaltali fær Liverpool bloggið um 7.500 heimsóknir á dag, um 14.500 flettingar og meðalnotandi eyðir tæpum 5 mínútum að meðaltali í hverri heimsókn. Alls heimsækja um 38.000 einstakir notendur síðuna í hverjum mánuði, af þeim eru um 90% fastagestir.

Auglýsingin er 240px * 240px. Auglýsingin birtist á besta stað hægra megin á síðunni, fyrir ofan efni sem er mikið notað. Sjá auglýsingu frá NAM hér til hliðar.

Verð á auglýsingu er krónur 25.000 á mánuði. Ef teknir eru fleiri en einn mánuður er hægt að semja um afslátt.

Einnig bjóðum við nú upp á auglýsingalestur í podcast-þætti Kop.is. Þáttastjórnandi les auglýsingu í þættinum. Verð á auglýsingu er krónur 5.000 á þátt. Ef teknir eru fleiri en einn þáttur er hægt að semja um afslátt.

Upplýsingar um verð og annað gefur Kristján Atli: kristjanatli@gmail.com

AFC Wimbledon 1 – Liverpool 2

Vangaveltur um leikkerfi og leikmenn