Mótherjar í Evrópudeildinni

Svei mér þá, það verða bara ágætis leikir í þessum riðli okkar í Evrópudeildinni þetta árið.

Við verðum í K-riðli og uppröðunin þar varð eftirfarandi:

Liverpool (Englandi)

Steua Búkarest (Rúmenía)

Napoli (Ítalía)

Utrecht (Holland)

Verður gaman að spila við Andrea Dossena og félaga og ferðalögin ættu ekki að verða of löng eða ströng.

Fimmtudagskvöld í október og nóvember verða leikdagarnir og miðað við þessa mótherja ættu þarna að verða nokkrir leikir sem hægt verður að nýta til að spila fleirum inn í skipulagið í alvöru keppni.

7 thoughts on “Mótherjar í Evrópudeildinni

  1. 1
    Magnús Ólafsson says:

    Bara góður riðill!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Gott að Maski er farinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
    ÁFRAM LIVRPOOL!

    Thumb up 1
  2. 2
    Kristján says:

    Frábært , sterk lið til að koma liðinu saman og fyrir þá ungu til að fá góða reynslu . Já og okkur til að sjá framtíðarleikmenn LIVERPOOL :)

    Thumb up 0
  3. 3
    Gummi Daða says:

    Ég vil gera þá kröfu að svo kallaðir lykilmenn og þeir sem spila reglulega með aðalliðinu verði lítið sem ekkert notaðir í þessum leikjum. Uppistaðan á að vera strákar um 20 ára gamlir – Ayala, Kelly, Pacheco, Wilson, Shelvey, Eccleston o.s.fr.
    Svo er hægt að nýta eldri og reynslumeiri leikmenn eins og Kyrgiakos með, þ.e. þá sem spila lítið!

    Torres og Gerrard ættu t.d. ekki að vera í 25 manna hópnum yfirhöfuð!

    Ég geri ekki kröfu um að komast áfram, bara að gefa ungu strákunum alvöru tækifæri og reynslu. Þetta eru 6 alvöru leikir sem skipta máli en samt ekki svo mikill skaði þó við komumst ekki áfram.

    Thumb up 10
  4. 4
    DaðiS says:

    Þar sem allir hérna eru með bráðasáðlát yfir Kenny Huang, þá langaði mig að benda á http://sports.espn.go.com/nba/news/story?id=5501426 , veit ekki hversu vel fjotboltamenn fylgjast með NBA. S.s. umtöluð fjárfesting Kenny og félaga (vinsælir allstaðar villtekki vera með?) í NBA liði varð að engu.

    Thumb up 1
  5. 5
    Jónsi says:

    Konchesky á leið í læknisskoðun hjá Liverpool um helgina skv. Sky Sports http://www.skysports.com/story/0,19528,11661_6342686,00.html

    Thumb up 1
  6. 6
    Jónas says:

    GUMMI DAÐA.
    Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því að það verði notaðir annað en MIÐLUNGS- OG REYNSLULITLIR leikmenn í þessa keppni. Þetta eru að verða einu leikmennirnir sem eru eftir og/eða eru á leiðinni inn, samkvæmt fréttum síðustu daga.

    Thumb up 1
  7. 7