Liðið gegn Arsenal

Þá er fyrsta byrjunarlið Roy Hodgson hjá Liverpool orðið opinbert og það er svohljóðandi

Reina

Johnson – Carragher – Skrtel- Agger

Kuyt – Gerrard – Mascherano – Jovanovic
Joe Cole
N’gog

Bekkur: Cavalieri, Lucas, Babel, Torres, Kelly, Maxi, Aurelio.

Svosem fátt sem kemur á óvart þarna, Agger er í vinstri bak eins og hann var um daginn og Mascherano fær tækifæri í byrjunarliðinu þrátt fyrir að hafa ítrekað óskað eftir því að komast frá Liverpool. Nú er bara að vona að hausinn sé ekki á kafi á þeim stað sem sólin ekki skín eins og við lentum í með JM í upphafi síðasta tímabils. Þetta gæti hugsanlega verið kveðjuleikur hjá honum og við skulum vona að hann kveðji með stæl.

Kuyt held ég að sé á hægri kanti og Jovanovic á þeim vinstri með Cole í holunni í 4-4-1-1 a la Roy Hodgson kerfi en þeir koma líklega til með að skipta látlaust um stöður í leiknum. Einn upp á topp er svona N´Gog sem þýðir að hann hefur ekki kunnað við að taka séns á Torres sem þó er á bekknum. Lucas er svo á bekknum líka en Poulsen er ekki í hóp í dag.

Come on you reds

Lið Arsenal er síðan svohljóðandi

Almunia

Sanga -Koscielny – Vermaelen – Clichy

Eboue – Diaby
Nasri – Wilshere – Arshavin
Chamakh

Bekkur: Rosicky, van Persie, Vela, Walcott, Song, Fabregas, Gibbs

Þetta er nokkuð sterkt Arsenal lið og afar sterkur bekkur hjá þeim í dag. Almunia byrjar í markinu og er fyrirliði í þokkabót. Leikkerfið gæti verið 4-3-3 eða 4-5-1 en þetta er líklega nógu nærri lagi.

76 thoughts on “Liðið gegn Arsenal

  1. 1
    Lóki says:

    vissi að mascherano myndi byrja og finnst það góð ákvörðun því hann hentar best á móti fabregasn ,nasri, arshavin og þessum stubbum

    Thumb up 0
  2. 2
    Jóhann says:

    Flott en hvar er Aquilani?

    Thumb up 1
  3. 3
    Höddi B says:

    Áhugavert ! !

    Thumb up 0
  4. 4

    Feykisterkt lið og feykisterkur bekkur. Kemur á óvart að Aquilani kemst ekki einu sinni í hóp og með honum utan hóps eru menn eins og Wilson, Kyrgiakos, Poulsen og Pacheco. En þetta er feykisterkur 18 manna hópur.

    Ég var fyrir leikinn ekkert allt of hrifinn af því að láta Mascherano spila þennan leik en eftir að hafa horft á James Milner – sem er í svipaðri stöðu og Masch, væntanlega að skipta um klúbb á næstu tveimur vikum – brillera með Aston Villa í gær held ég að það geti verið gott að nota hann. Vonandi verður hann dýrvitlaus í þessum leik.

    Já, og ég spáði rétt fyrir um 8 af 11 leikmönnum í fyrstu Hodgson-upphitun minni. Geri aðrir betur. :)

    Thumb up 1
  5. 5
    JGS says:

    nokkuð sáttur bara…..

    Thumb up 0
  6. 6
    Lóki says:

    á semsagt að reyna að neyða insua til að fara

    Thumb up 2
  7. 7
    Ásmundur says:

    Hvar er staðfest Arsenal lið ?

    Thumb up 0
  8. 8
    Lolli says:

    En er útilokað að Royson sé að nota Kuyt eða Jovanovic í framherjanum? Því í 4-4-2 kerfi? Langt síðan ég sá jafn steran varamannabekk, húrra fyrir því!

    Thumb up 0
  9. 9
    Kristján says:

    Arsenal
    Almunia, Sagna, Koscielny, Vermaelen, Clichy, Eboue, Nasri, Diaby, Wilshere, Arshavin, Chamakh
    Veit ekkert hverjir eru á bekknum.

    Thumb up 0
  10. 10
    kobbih says:

    Afhverju í ósköpum var Hodgson að fá Aurelio þegar hann treystir frekar hafsent sem er yfir 1.90 fyrir vinstri bakvarða stöðunni?

    Thumb up 2
  11. 11
    Kristján says:

    Og bekkurinn hjá Arsenal
    Subs: Rosicky, van Persie, Vela, Walcott, Song, Fabregas, Gibbs

    Thumb up 0
  12. 12
    FHS says:

    Fyrir þá sem ekki komast á pöbbinn og hafa ekki áskrift að stöð 2 sport 2

    http://boxingguru.co.uk/gurutv2.html

    Útsending frá Sky

    Thumb up 2
  13. 13
    Brynjar says:

    Ég held að Masch sé ekkert að fara!?

    Það þarf að koma tilboð í hann til þess, það hefur ekki gerst ennþá!

    Thumb up 0
  14. 14

    Eru menn ekki að grínast með þessa upphitun hjá Stöð 2 Sport? Gaupi spyr „sérfræðingana“ um liðin og styrkingu í sumar og þeir svara … Joe Cole var bara varamaður hjá Chelsea og styrkir Liverpool ekki mikið, en Jack Wilshere er kominn inn hjá Arsenal og er fráááááábær leikmaður og þeir verða í toppbaráttu.

    Frábært. Gaman að hlusta á svona djöfulsins vitleysu fyrir fyrsta leik. Ég er ekki einn þeirra sem heldur að Liverpool geti barist um titilinn í vetur en ég sé samt að Joe Cole styrkir liðið okkar mikið og mér dettur ekki í hug að þetta Arsenal-lið sé nógu sterkt til að hirða titilinn af Chelsea og/eða Man U. En neinei, þeir eru með Wilshere, við erum bara með Cole.

    Hvernig væri að fá fólk sem hefur vit á knattspyrnu í settið eins og einu sinni, Stöð 2?

    Thumb up 15
  15. 15
    FHS says:

    Þetta er ein af stóru ástæðunum fyrir því að ég ætla ekki að vera með áskrift að enska boltanum í vetur, ef maður fer á pöbbinn er oftast notast við sky-útsendinguna, er einmitt að hlusta á upphitun núna hjá Sky og hún er algjör snilld, Jamie Redknapp og Paul Merson að ræða um leikinn á skynsamlegum nótum

    Thumb up 2
  16. 16
    ArnarÓ says:

    Hver horfir á þetta Stöð2 crap, frekar horfi ég á þetta á netinu ef þetta er ekki á SKY

    Thumb up 2
  17. 17
    ziggi says:

    Enginn Fabregas hjá Arsenal og ágæti byrjunarlið hjá Liverpool og svo gæti Torres komið inná sem super sub .

    En Leikurinn 4-2 og en það væri nú gott ef Reina myndi halda hreinu sem hefur ekki gerst lengi á móti Arsenal.

    Svo áfram Liverpool

    Thumb up 0
  18. 18
    Babu says:
    • Jamie Redknapp og Paul Merson að ræða um leikinn á skynsamlegum nótum

    Þetta er setning sem passar á engan hátt

    Thumb up 3
  19. 19
    Hafliði says:

    Jovanovic er nagli : )

    Thumb up 4
  20. 20
    Jói #5 says:

    Jovanovic að sýna okkur það sem við viljum sjá…..djöfull var þetta töff hjá honum.

    Thumb up 2
  21. 21
    Eiíkur Ólafsson says:

    Virkilega gaman af Jovanovic

    Thumb up 5
  22. 22
    Shearer says:

    “Eru menn ekki að grínast með þessa upphitun hjá Stöð 2 Sport? Gaupi spyr „sérfræðingana“ um liðin og styrkingu í sumar og þeir svara … Joe Cole var bara varamaður hjá Chelsea og styrkir Liverpool ekki mikið”

    Ætli spekin hans Gaupa nái ekki líka yfir Sneijder og Robben fyrir síðasta tímabil ?

    Thumb up 0
  23. 23
    Hafliði says:

    Ekki ætla ég að verja þessa spekinga hjá S2S, en Joe Cole var varamaður hjá Chelsea og hversu mikið hann styrkir Liverpool á bara eftir að koma í ljós.

    Annars er þessi leikur skemmtilegur á að horfa þó svo að Arsenal séu fullmikið með boltann : )

    Thumb up 1
  24. 24
    Árni Jón says:

    Ngog er nú ekki að brillera neitt sérstaklega …

    Thumb up 3
  25. 25
    Hafliði says:

    Jæja þá er dómarinn búinn að eyðilegga leikinn!

    Thumb up 10
  26. 26

    Fokk, Joe Cole. Frábær byrjun á Úrvalsdeildinni hjá honum. Hárrétt rautt spjald á Joe Cole, en þá átti Jack Wilshere líka að fá rautt spjald fyrir sína tæklingu á Mascherano fimm mínútum fyrr.

    0-0 í hálfleik og við verðum einum færri í seinni. Jafntefli eru frábær úrslit eins og staðan er núna. Ég efast þó um að við náum að hanga á því.

    Thumb up 5
  27. 27
    Magginn says:

    Rautt?? common..

    Thumb up 4
  28. 28
    Viktor EB says:

    Þetta var ekki rautt. Var seinn í tæklinguna en hann fór með seinni fótinn í hann vel kryddað hjá kosinesky eða hvað sem hann heitir. Getum varla beðið um sigur úr þessu.

    Thumb up 2
  29. 29
    Magginn says:

    Óháð því hvaða litur átti að vera á spjaldinu þá átti Joe Cole samt aldrei að fara í svona tæklingu á þessum stað, algjör óþarfi.

    Thumb up 2
  30. 30
    styrmir says:

    Stórfurðulegur dómari. Þrjú eins brot, Gerrard sleppur, Wilshire fær gult og Cole rautt. Var hann bara svona lengi að ákveða hvað hann ætti að gera í svona málum?

    Thumb up 4
  31. 31
    Hafliði says:

    Þett var mjög strangur dómur fannst mér Kristján, enginn ásetningur innifalinn.
    En þetta var hinns vegar klaufalegt hjá Cole end engin hætta á ferðinni sem kallaði á þetta hjá honum.

    Beint rautt og kominn í bann, flott byrjun hjá kappanum : (

    Thumb up 1
  32. 32
    Kristján E. says:

    Hvernig í veröldinni geturu sagt að þetta sér hárrétt rautt spjald á Joe Cole? Hann var seinn í tæklinguna en guð minn góður þetta átti aldrei að vera beint rautt! Tæklingin sem Wilshere átti var töluvert grófari og löppin á Cole sem fór á undan í tæklinguna fór ekki einusinni í manninn!

    Thumb up 2
  33. 33
    Kristján V says:

    aldrei rautt…. kannski gult/orange en ekki séns í helvíti að þetta sé rautt spjald….

    takk Atkinson

    Thumb up 2
  34. 34
    MW says:

    Í raun ekki rautt en dómarinn er illa staðsettur og heldur væntanlega að þetta sé sólinn beint í legginn sem vissulega verðskuldar rautt. Annars hafa fyrstu 45 min verið Arsenal 55% og Liverpool 45 %.
    Annars fremur leiðinlegur leikur , vonandi tekst LFC að ná stigi úr því sem komið er !

    Thumb up 1
  35. 35
    FHS says:

    Í mínum huga alveg ljóst að þetta er á mörkunum að vera rautt spjald. Hins vegar þá er þetta afskaplega kjánalegt af svona reyndum leikmanni, 1 mínútu fyrir hálfleik rétt við hornfánann hjá Arsenal, engin hætta og litlar líkur á að ná boltanum.

    Thumb up 0
  36. 36
    Nökkvi says:

    Miðað við þetta rauða spjald þá er ég hræddur um að Atkinson hafi fengið dómaraleyfið sitt i kornflexpakka.

    Thumb up 7
  37. 37
    marat says:

    Cole kom ekki við manninn með þeirri löpp sem sólinn sást á. Varla gult spjald. Hins vegar átti Arsenal maðurinn að fá rautt fyrir leikaraskap.

    Thumb up 2
  38. 38
    LP says:

    Andsk… Þetta var ekki gáfulegt hjá Cole. Alveg hægt að réttlæta rautt á þetta. Nú verður þetta erfitt. Jafntefli yrðu mjög góð úrslit úr þessu.

    Thumb up 0
  39. 39
    goa says:

    Ekkert við þessu að segja nema að skamma Cole fyrir fáránlega tæklingu við hornfána andstæðinganna! Jafn leikreyndur maður og hann á að vita betur.

    Thumb up 0
  40. 40
    Kristinn J says:

    …og við höldum áfram þar sem frá var horfið. Mid table here we come.

    Thumb up 2
  41. 41
    Hafliði says:

    Ok, slökum nú aðeins á yfirlýsingunum marat, “Hins vegar átti Arsenal maðurinn að fá rautt fyrir leikaraskap.”

    Ertu blindur?

    Maðurinn var borinn af velli í börum og ég efast um að hann sé að spila meira í dag, jafnvel næstu vikur.

    Thumb up 4
  42. 42
    gusti (: says:

    Guð meigi hjálpa okkur :) en hvad var dómarinn að spá ? bara rangur dómur YNWA

    Thumb up 3
  43. 43
    einare says:

    Atkinson dómari samkvæmur sjálfum sér í leikjum hjá Liverpool,,,,rak Kyrgiakos útaf gegn Everton í fyrra þar sem að Felliani fór í tveggja fóta tæklingu gegn Grikkjanum en lá eins og stunginn grís á eftir. Aftur fellur Atkinson í sömu gildru. Þetta var gult spjald og búið. Það verður þungur seinni hálfleikurinn….

    Thumb up 0
  44. 44
    Nikodemus says:

    Já, hann er svo mikið meiddur að hann er kominn inná völlinn aftur….

    Thumb up 2
  45. 45
    Jóhann says:

    Ngog!

    Thumb up 0
  46. 46
    Rúnar geir says:

    Hafið þetta 1-0

    Thumb up 1
  47. 47

    DAVID FOOKKING NGOG!!!!!!

    Ég sagði ykkur það. Drengurinn er tilbúinn. 1-0!!!

    Thumb up 3
  48. 48
    Páló says:

    N’Gog :) 1:0

    Thumb up 2
  49. 49
    Keli Toll says:

    DAVID N´GOG!!!!!!!!!!!!!

    Thumb up 2
  50. 50
    Hafliði says:

    Jáááááá Ngog !!!!!!!!!!!

    Thumb up 1
  51. 51
    ziggi says:

    jáaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa NGOAALLLLLLLLLLLLL

    Thumb up 2
  52. 52
    FHS says:

    NGOG!!!

    Thumb up 1
  53. 53
    Eiíkur Ólafsson says:

    Mark Mark

    Thumb up 2
  54. 54
    Magginn says:

    haha jááá Ngog!!!!!! :D:D:D

    Thumb up 1
  55. 55
    goa says:

    Þetta var flott!

    Thumb up 0
  56. 56
    Nikodemus says:

    Verð nú að segja… og afsakið orðbragðið… en þetta var djöfulsins snilldar afgreiðsla hjá drengnum

    Thumb up 2
  57. 57
    Viktor EB says:

    Vælubíllinn byrjaður um leið og við erum manni færri! Þetta spjald kemur okkur niður á jörðinia.

    En N´Gog kemur okkur samt yfir vonandi þjappar þetta liðinu saman.

    Thumb up 0
  58. 58
    Maggi says:

    N´Gog.

    Sá hitti hann og Mascherano með stoðsendinguna!!!

    Thumb up 0
  59. 59
    styrmir says:

    Djöfulsins gargandi snilld hjá drengnum. Er að koma sjóðandi heitur inn í seasonið.
    KOMA SVO
    YNWA

    Thumb up 1
  60. 60
    Jóhann says:

    ussussöusssss Ngog

    Thumb up 1
  61. 61
    marat says:

    Já, Koscielny jafnaði sig á 15 mínútum. Þvílík meiðsli.

    Thumb up 3
  62. 62
    Magginn says:

    Fýla baráttuna og kraftinn í Jovanovic

    Thumb up 1
  63. 63
    Hafliði says:

    Æji come on marat, að halda því fram að þetta hafi verið leikaraskapur hjá honum daðrar við heimsku.

    Flott að hann er ekki meiddur eftir þetta óþarfa brot hjá Cole.

    Thumb up 1
  64. 64
    Egill says:

    Fjórða markið hjá David N’gog í þremur leikjum!! Kallinn að koma sterkur inn 2010/2011 tímabilið.

    Thumb up 0
  65. 65
    marat says:

    Það er algerlega úr karakter hjá Cole að meiða menn.

    Thumb up 0
  66. 66
    Árni Jón says:

    Þetta er of lengi að líða maður ….

    Thumb up 1
  67. 67
    HTK says:

    Ok Torres komin inná svo nú er jafnt í liðum

    Thumb up 1
  68. 68
    Gummi says:

    Held þetta sé Carra sem slær alla utanundir þegar þeir koma inná… Djöfull er ég ánægður með kauða!!! Koma þeim í rétta gírinn koma svo Rauðir!!!

    Thumb up 1
  69. 69
    Viktor EB says:

    Djöfulsins faggi er þessi dómari!

    Thumb up 1
  70. 70
    Maggi says:

    Hvað er Agger að spá!!!!

    Drulla sér inná strax, shit hvað þetta voru stressandi mínútur!

    Og þvílíkt sem Masch hefur staðið sig hér í dag!

    Thumb up 0
  71. 71
    Magginn says:

    Shiit þetta er stressandi

    Thumb up 1
  72. 72
    loki says:

    Týpískt

    Thumb up 2
  73. 73
    Hafliði says:

    Fjandinn að ná ekki að halda þetta út : (

    En ég er ánægður með okkar menn, manni færri seinni hálfleikinn og reyndar 2 færri eftir að Agger vankaðist.

    Thumb up 2
  74. 74
    einare says:

    Lukkudísirnar dansa enn á Anfield…..bölvað

    Thumb up 0
  75. 75
    styrmir says:

    Þvílíkt svekk. Bæði brotið á Reina og svo réttir hann boltann inn í markið.
    Hefði ekki trúað því í hálfleik að maður væri svekktur með jafntefli.

    Thumb up 0
  76. 76
    JS says:

    Síðan hvenær hefur verið leyft að keyra inn í markmann sem er að grípa boltann alveg við markið?

    Thumb up 2