Fabio Aurelio til Liverpool á ný!

Ja hérna. Eftir óvænta frétt á Sky Sports fyrr í dag hefur opinbera síðan nú staðfestFABIO AURELIO hefur skrifað undir nýjan, tveggja ára samning við félagið, eftir að hafa heillað þjálfarateymi Hodgson og læknateymið undir stjórn Brukner.

Að mínu mati eru þetta frábærar fréttir. Það er ljóst að við þurfum annan vinstri bakvörð líka, fyrst Insúa er að fara og Aurelio hefur ekki beint verið duglegur að spila heilu tímabilin, þannig að vonandi hjálpar það að halda Aurelio (í stað þess t.d. að eyða fé í Luke Young) Hodgson að setja pening í annan klassa bakvörð vinstra megin.

Fabio Aurelio, leikmaður Liverpool. Óvænt. Hér er að sjálfsögðu skyldumyndband með broti af því besta:

Ef eitthvað er að marka YouTube-tilþrifin hans er hér á ferðinni gæðaleikmaður fyrir Liverpool. ;)