Liðið gegn Rabotnicki FC

Roy Hodgson hefur nefnt fyrsta alvöru byrjunarlið sitt sem stjóri Liverpool FC. Liðið er sem hér segir:

Cavalieri

Kelly – Kyrgiakos – Skrtel – Agger

Amoo – Spearing – Lucas – Jovanovic
Aquilani
Ngog

BEKKUR: Gulacsi, Ayala, Ince, Darby, Shelvey, Ecclestone, Dalla Valle.

Lucas er fyrirliði í kvöld. Vel að því kominn.

Ég hafði næstum rétt fyrir mér með allan hópinn í upphitun í gær. Spáði að Ayala myndi byrja inná með Skrtel á bekknum og að Wilson yrði í hópnum, en Ince er inni í hans stað. Að öðru leyti er liðið nákvæmlega eins og við var búist.

Það er engin leið að segja hvort þetta byrjunarlið er nógu gott eða ekki. En ég held að við getum verið sammála, fyrirfram, um að Hodgson hefði ekki getað stillt upp sterkara liði í þessum leik. Við skulum bara vona að það sé nóg.

Áfram Liverpool! YNWA!

34 thoughts on “Liðið gegn Rabotnicki FC

  1. 1
    Ásmundur says:

    Ég hef ekki trú á öðru en að við vinnum þennan leik svona 1-2 vissulega er þetta ekki sterkasta liðið okkar, ekki einu sinni nálægt því en þetta verður að duga og svo eigum við seinni leikinn heima auðvitað og þar ættum við að klára þetta.

    Thumb up 2
  2. 2
    Róbert says:

    verður leikurinn sýndur á lfc TV?

    ef ekki, hvar get ég horft á hann?

    Thumb up 0
  3. 3
    Andri says:

    Nettur fiðringur í gangi, tímabilið að hefjast fyrir alvöru. Hef fulla trú á því að við klárum þetta verkefni í kvöld örugglega. Hodgson virðist hafa komið með mikla jákvæðni með sér sem manni sýnist vera að smitast inn í klúbbinn.
    Kannski fullsnemmt að vera með bjartsýnisyfirlýsingar en ég er farinn að hallast að því að það sé skemmtilegt tímabil í vændum. Efaðist um réttmæti þess að fá Hodgson þarna inn en fyrstu dagar hans lofa góðu. Skál fyrir upphafi á frábæru (vonandi) tímabili í vændum.
    The season starts here! COME ON YOU REDS!

    Thumb up 0
  4. 4
    Einar Örn says:

    Veit e-r um góða textalýsingu á leiknum?

    Thumb up 0
  5. 5
    Ásmundur says:

    Einar það er auðvitað textalýsing hérna http://www.liverpoolfc.tv/

    Thumb up 0
  6. 6
    Árni Jón says:

    http://www.iraqgoals.tv/ch6.html

    er að virka.

    Thumb up 2
  7. 7
  8. 8
    Magginn says:

    Yeh, 1-0 Ngog, vel gert að nýta sér þessi slæmu varnarmistök

    Thumb up 2
  9. 9
    Óli G says:

    NGOOOOOOG!!!

    Thumb up 3
  10. 10
    MW says:

    Liverpool lítur vel út , serbinn góður !

    Thumb up 0
  11. 11
    Simbi says:

    af hverju er alltaf púað í kyrgiakos?

    Thumb up 0
  12. 12
    MW says:

    Makidónar hata Grikki ! Mannkynssagan…lol

    Thumb up 1
  13. 13
    Einar Örn says:

    Af því að makedónar fíla EKKI Grikkland

    Thumb up 1
  14. 14
    Einar Örn says:

    Takk Ásmundur – Lýsingin er m.a.s í iphone forritinu frá LFC.tv

    Thumb up 0
  15. 15
    MW says:

    Það þarf að selja lýsi í Makidóníu , voðalega eru þeir slappir á fótunum !

    Thumb up 2
  16. 16
    Loftur says:

    Ástæðan fyrir því að Makedónía heitir FYROM (Former Yogoslavian Republic of Macedonia) en ekki bara Makedónía er einmitt útaf Grikklandi því að hérað í Grikklandi heitir Makedónía og vilja þeir ekki að Makedónar fái að heita því nafni og hóta því að hindra Þeim frá ESB ef þeir gera það.

    Er þetta ekki skemmtilegur fróðleikur?

    YNWA

    Thumb up 11
  17. 17
    Höddi B says:

    Llítur bara vel út. LFC með þetta í hendi sér, en damn, nú fraus allt á 33 mín :-(

    Thumb up 0
  18. 18
    Zero says:

    Jú frábær fróðleikur. Ég vil ekki ganga í ESB af því að í Bretlandi, sem er í ESB, er verslunarkeðja sem heitir Iceland.

    Thumb up 2
  19. 19
    brói says:

    nú er allt frosið á ustream, eru fleiri að lenda í því

    Thumb up 2
  20. 20
    Hafliði says:

    Já Zero, sama hér :(

    Thumb up 1
  21. 21
  22. 22
    Árni Jón says:

    Hmm já allt fraus og fann nýjan hlekk á http://www.myp2p.eu/broadcast.php?matchid=82102&part=sports
    Er að nota Sopcastið

    Thumb up 0
  23. 23
    Óli G says:

    SopCast er að virka fínt hjá mér eftir að hitt fraus.

    sop://broker.sopcast.com:3912/93288

    Thumb up 0
  24. 24
    Gummi says:

    1-0, gott mál. Ef menn hreinlega sofna ekki í seinni hálfleik á ekki að vera mikið mál fyrir þá að bæta við mörkum (Kristján Atli ætti kannski að finna til hattinn og rjómasprautuna :)

    Thumb up 0
  25. 25
  26. 26
    Björninn says:

    úfff, það er erfitt að sofna ekki yfir þessu, ef þetta er bjartasta vonin á hægri kantinum þá erum við í vandræðum.

    Thumb up 0
  27. 27

    Ngog aftur. 2-0. Eitt enn og þá þarf ég að fara að þeyta rjóma og sækja hattinn minn í ísskápinn. :)

    Thumb up 5
  28. 28
    einare says:

    Vel gert 2-0 og nokkuð stórt skref tekið í næstu umferð.

    Thumb up 1
  29. 29
    Dóri Stóri says:

    Kristján Atli, þú verður þá að taka viðburðinn upp á videó og setja hér inn ;)

    Thumb up 4
  30. 30
    Kristján V says:

    flottur leikur……. EN svaðalega svalir búningar…..össsss

    Kristján V

    Thumb up 2
  31. 31
    Kristján V says:

    Hlustaði einhver á Valtýr Björn á X-inu í dag…. þá sagði hann að Liverpool væri að keppa í Makedóníu í kvöld að hann sagði að það yrði allt vitlaust á vellinum, makedónar væru brjálaðir áhorfendur….

    Stemmarinn er álíka og á Ísland San Marínó á Laugardalsvelli…..

    Thumb up 2
  32. 32
    Magginn says:

    JOB DONE!

    Sammála með búningana, helvíti flottir

    Thumb up 2
  33. 33
    Hafliði says:

    Fín úrslit :)

    Thumb up 2
  34. 34
    Kalling says:

    hahh, ég spáði frekar auðveldum 2 marka sigri Liverpool í þessum leik hér í öðrum þræði. Spádómsleikni mín kemur þægilega á óvart.

    Thumb up 0