Liðið gegn Burnley – Ayala og Aquilani byrja!

Jæja, liðið er komið:

Reina

Johnson – Ayala – Carragher – Agger

Aquilani – Mascherano
Maxi – Gerrard – Babel
Kuyt

Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þessi uppstilling gengur.

Á bekknum: Cavalieri, Benayoun, Kyrgiakos, Lucas, Degen, El Zhar, Pacheco.

49 thoughts on “Liðið gegn Burnley – Ayala og Aquilani byrja!

  1. 1
    Boggi Tona says:

    þar sem þessi leikur skiptir engu máli hefði ég viljað sjá Pacheco inn í stað kuyt og svissa stöðum miðað við þína uppstyllingu á Gerrard og Aquilani.

    Thumb up 0
  2. 2
    Ágúst says:

    Stórgott lið hefði verið gaman að sjá fleiri unga með í dag.

    Thumb up 0
  3. 3
    Hafliði says:

    Sammála Bogga Tona, annars er ég ánægður með að Ayala komi inn í liðið.
    Kooooma svo!

    Thumb up 0
  4. 4
    ingi says:

    Hidden due to low comment rating. Click here to see.

    Thumb up 3
  5. 5
    Dóri Stóri says:

    1 Boggi Tona, allir leikir Liverpool skipta máli no matter what ;)

    Thumb up 2
  6. 6
    Jóhann says:

    Þetta er flott lið, sammála þeim sem segjast vilja sjá fleiri unga. Ég vil þá í það minnsta fá Pacheco inn sem fyrst. Það er nauðsynlegt fyrir þessa gutta að fá leiki með alvöru leikmönnum. Ekki það sama að spila með einhverju b liði.
    Aquilani á að vera á miðjunni að mínu mati og Gerrard í holunni. Aquilani er betri í því að taka boltann niður og dreifa honum á samherja ásamt því sem hann er fínn í því að stinga sér fram af miðjunni. Gerrard aftur á móti er kraftmeiri og líklegri fyrir framan markið.
    Ayala er augljóslega leikmaður sem Benitez hefur trú á og það er sterkt fyrir hann að fá leik með þremur byrjunarliðsmönnum í vörninni.
    Ekkert annað en sigur kemur til greina í þessum leik. Leikmennirnir mega ekki gera okkur aðdáendum það að þurfa að horfa á eitthvað leiðindatap í þetta merkingalitlum leik.

    Thumb up 1
  7. 7
    Helgi J says:

    Linkur?

    Thumb up 1
  8. 8
  9. 9
    Andri þór says:

    Er helvítis leikurinn ekki sýndur bara á einhverri hliðarrás.

    Thumb up 0
  10. 10
    Einar Örn says:

    þar sem þessi leikur skiptir engu máli

    Þessi leikur skiptir víst máli. Á meðan það er sjens á að ná fjórða sætinu (og eftir úrslit gærdagsins þá er það fræðilegur) þá eigum við að stefna á sigur. Menn hafa svo fram á fimmtudag til að jafna sig. Það er ekki einsog menn þurfi að fara í langt ferðalag til Burnley.

    Thumb up 8
  11. 11
    Sigkarl says:

    Sælir félagar

    Líst vel á uppstillinguna og er sammála Einari. Allir leikir skipta máli og þetta er ekki bara spurningin um 4. sætið (fræðileg?) heldur líka um Evrópusæti.

    Það er nú þannig.

    YNWA

    Thumb up 2
  12. 12
    Brynjólfsson says:

    Lýst vel á liðið, hefði verið gaman að sjá Guðlaug Viktor í miðverði.

    http://atdhe.net/18192/watch-burnley-vs-liverpool

    Thumb up 1
  13. 13
    Lóki says:

    það er samt svo miklu betra að hafa gerrard á miðjuni þar vila hann vera og þar er hann bestur!! hann kemur á ferðini að teignum og sprengir vörnina upp. ég held að benitez sjái eftir því að hafa ekki fært hann niður á miðjuna og keypt sóknarmann í staðin fyrir að nota gerrard sem senter! ég vil að miðjan hja liverpool sé alltaf mascherano og gerrard

    Thumb up 2
  14. 14
    Viktor EB says:

    Sæll er að hlusta á gaurana sem eru að lýsa leiknum, við höfum bara skorað 14 mörk á tímbilinu á útivelli!!!!!!!!!

    Skil heldur ekkert aðfhverju við erum með einn sóknarmann á móti Burnley?

    Thumb up 3
  15. 15
    einare says:

    zzzzzz…..

    Thumb up 4
  16. 16
    Dóri Stóri says:

    14 Viktor, að nafninu til erum við með tvo sóknarmenn, Babel og Kuyt ;)

    Thumb up 0
  17. 17
    Lóki says:

    hvað er eiginlega að…… hvernig er hægt að vera alltaf svona geldir sóknarlega. þetta er hræðilegt !

    Thumb up 0
  18. 18
    Hafliði says:

    Marga dapra frammistöðuna hefur maður nú sér hjá Liverpool í vetur, en þessi fyrri hálfleikur er bara ekki eðlilega lélegur. Sendingagetan er engin, menn hengja haus og pirrast þegar boltinn ratar ekki á samherja og baráttan er öll í liði Burnley. Að við séum ekki undir í hálfleik ef bara einum manni að þakka og það er hann Mr. Perfect, Pepe Reina sem hefur staðið sína plikt í markinu. Kuyt virðist ákveðinn í að henda sér í blautt grasið um leið og einhver nálgast hann og skilur svo ekkert í því að ekkert sé dæmt.

    Ég vona að Rafa geri breytingar strax í hálfleik og setji Banayoun og Pacheco inná sem allra fyrst.

    Thumb up 2
  19. 19
    goa says:

    Babel mætti nú reyna að nýta hraðann sem hann hefur í stað þess að stoppa alltaf. Allt er þetta gamalkunnugt, hægt og slakt í heildina.

    Thumb up 0
  20. 20
    Sigurgeir says:

    Hvernig væri að setja Gerrard út á hægri kannt, postulini niður við hliðina á mascha og Pachecho inn fyrir aftan strikerinn??
    Taka bara Maxi útaf…

    Thumb up 0
  21. 21
    Geir says:

    Babbel er bara ekki að skila synu það a að stafa ógn af hraða hans en hann bara sér ekkert nema markið skapar ekkert.

    Thumb up 0
  22. 22
    islogi says:

    Steindautt so far….menn ekki í takti og ekki nægileg barátta. Vonum að þetta lagist núna….kooooma svo

    Thumb up 0
  23. 23
    Magnús says:

    Erum við virkilega í vandræðum með að skapa færi á móti Burnley, liðinu með flest mörk á sig í deildinni? Virðist ekki skipta máli hver er inná, alltaf virðumst við vera færir um að vera jafnhættulitlir.

    Maður getur ekki beðið eftir að þetta tímabil klárist, eigendamálin skýrast, stjóramálin skýrast og hvort lykilmenn verði áfram. Úff, þetta allt á eftir að dragast út sumarið er maður hræddur um.

    Thumb up 0
  24. 24
    Hafliði says:

    Gerrard!!!!!!

    Thumb up 3
  25. 25
    islogi says:

    0-1 fyrir Gerrrard….kallinn að draga vagninn. Töluverð heppni í þessu en mark er mark og ekki kvarta ég yfir þessu :)

    Thumb up 1
  26. 26
    Steven Geir Helgason says:

    Þetta var svona Lampard mark :) Flott þetta !

    Thumb up 2
  27. 27
    Hafliði says:

    Gerrard aftur!!!!!!!!!! :)

    Thumb up 1
  28. 28
    Lóki says:

    þarna er besti MIÐJUMAÐUR englnds! kallaður stevie G !!!!!!!!!!!

    Thumb up 1
  29. 29
    Jói says:

    Captain Fantastic kominn aftur :D

    Thumb up 2
  30. 30
    Brynjólfsson says:

    gJERRARD !!!

    Thumb up 0
  31. 31
    islogi says:

    Leikurinn að opnast og okkar menn að vakna. Lofar góðu með framhaldið þó Burnley sé að koma sér í færi allt of mikið

    Thumb up 0
  32. 32
    Magnús says:

    Er Aquilani með báðar stoðsendingarnar á Gerrard? Ef svo er þá er hann kominn með tvöfalt fleiri stoðsendingar bara í þessum leik en Lucas yfir allt tímabilið…

    Thumb up 1
  33. 33
    Lóki says:

    já og sendingin hjá aquilanil í öðru markinu var nátturulega bara snilld!

    Thumb up 3
  34. 34
    Hafliði says:

    0-3 :)
    Maxi Rodriques :)

    Thumb up 4
  35. 35
    Lóki says:

    en þessi sending var nátturulega bara fokking snilld líka. og flott mark hjá maxi vel klárað

    Thumb up 0
  36. 36
    einare says:

    Aquilani eða Lucas…….þar eitthvað að ræða það?

    Thumb up 0
  37. 37
    LAS says:

    Aqua-man með eina stoðsendingu í viðbót!

    Thumb up 0
  38. 38
    Einar Örn says:

    Æji, geta menn ekki bara glaðst yfir því að Aquilani sé að spila vel í stað þess að nýta tækifærið til þess að dissa Lucas?

    En frábært að sjá Aquilani spila vel og einnig að Maxi skuli ná fyrsta markinu. Hann hefur verið óheppinn með að skora ekki hingað til.

    Thumb up 15
  39. 39
    MaggiR says:

    AA komin með 3 stoðsendingar … fuck hvad hann er mikill snillingur :) hef ofurtrú á kvikyndinu

    Thumb up 1
  40. 40
    Sigurgeir says:

    Af hverju ekki að leyfa Pachecho og Zhar að klára þennan leik??? Leyfa þeim aðeins að fá smá meiri reynslu…

    Thumb up 1
  41. 41

    Ég var brjálaður yfir þriðja markinu, alveg brjálaður! Ég spáði nefnilega 0-2 sigri okkar manna í gær. Maxi eyðilagði það fyrir mér. ;)

    Annars flott að taka auðveldan og öruggan sigur. Leit ekki þannig út í fyrri hálfleik en sá seinni hefur verið miklu betri. Gott veganesti fyrir fimmtudag.

    Thumb up 3
  42. 42
    islogi says:

    Er Reina ekki að taka þennan gullna hanska nokkuð örugglega? Minnir að ég hafi heyrt það í síðasta leik í deildinni að hann væri kominn með flesta leiki þar sem hann hefur haldið hreinu af öllum markmönnum í PL ?

    Thumb up 1
  43. 43
    Hafliði says:

    0-4 Ryan Babel :)

    Thumb up 2
  44. 44

    Lucas með flotta stoðsendingu, 0-4. Magnús (#32) þyrfti eiginlega að dissa Lucas aðeins oftar. :)

    Thumb up 13
  45. 45
    jgp says:

    Sumum til mikillar gremju virðist sjálfur Lucas hafa átt stoðsendinguna á Babel. Hann ætti að skammast sín.

    Thumb up 11
  46. 46
    jgp says:

    …og eitt enn…

    eina almennilega stoðsending AA var augljóslega í þriðja markinu. Hann er búinn að vera ágætur í dag en virðist ekki vera maður í mikla baráttu og djöfulgang. Þetta breytir þó auðvitað ekki því að Mascha og Lucas eiga helst ekki að vera saman á miðjunni. Annar þeirra á að sinna varnarskyldum á meðan AA eða Gerrard eiga að sjá um að sækja.

    Thumb up 1
  47. 47
    Lóki says:

    svo eru líka lucas og aquilani ekki að spila í sömu stöðu! aquilani var að spila fyrir aftan senter sem gerrard er vanur að spila og lucas hefur aldrei verið þar… þannig að ég dæmi þennan lucas aquilani samanburð ólöglegan

    en fokking Arteta að skora fyrir everton úr víti á 94

    Thumb up 2
  48. 48
    petur8 says:

    flottur sigur :) en voðalega þarf þetta lucas mál alltaf að koma upp eftir hvern einasta leik ! mörgum finnst hann ekki nógu góður og er það ekki bara bundið íslenskum aðdáendum , og svo eru margir sem finnst hann nógu góður ég held að það sé kominn tími á að menn fari að sætta sig við að það hafa allir skoðanir hvort sem vit er í þeim eða ekki ! persónulega hef ég ekki haft mikið álit á kauða en það er bara mitt mat .

    Svo var gaman að sjá maxi skora og kannski aðeins réttlæta allar þessar mínútur sem hann hefur fengið eftir að hann skrifaði undir . nú er það bara AM næst á anfield og það verður STRÍÐ !! Go liverpool

    Thumb up 2
  49. 49
    Ingi says:

    Ætli 3 stoðsendingar hjá Aquilani dugi hjá Benitez til að hann byrji næsta leik?

    Thumb up 1