Liðið gegn Fulham – Torres meiddur

Liðið gegn Fulham er komið og það er langt síðan að við höfum haft svona rangt fyrir okkur í spá um uppstillingu. Rafa kemur verulega á óvart.

Reina

Johnson – Carra – Kyrgiakos – Agger

Mascherano – Aquilani
Maxi – Gerrard – Babel
Ngog

Á bekknum: Cavalieri, Kuyt, Benayoun, Lucas, Degen, Pacheco, Ayala.

Torres ekki í hóp þar sem hann er meiddur og Ngog kemur inn fyrir hann. Maxi og Babel eru þarna með Gerrard í sóknarhlutverkunum og svo kemur Aquilani inn fyrir Lucas. Agger heldur áfram í vinstri bakverðinum með Grikkjann ógurlega í miðverði. Reina kemur svo sterkur inn í markið.

Miðað við að Torres er meiddur þá lýst mér bara ágætlega á þetta – þetta er smá spennandi uppstilling. Ég spái því að Maxi skori í dag. Hann var grátlega nærri því gegn Birmingham. Núna er að vona að okkar menn taki þetta og að Birmingham geri okkur greiða með því að taka stig af Man City.

38 thoughts on “Liðið gegn Fulham – Torres meiddur

  1. 1
    Guðmundur Ingi says:

    afhverju er maðurinn ekki með Kuyt á toppnum? er þetta svona rosalega erfitt?

    Thumb up 1
  2. 2
    Alli says:

    Það mun mæða óvenju mikið á Agger í dag

    Thumb up 4
  3. 3
    Matti says:

    Hvar er Carra?

    Thumb up 0
  4. 4
    Óli B. says:

    Helvítis Kuyt og Lucas, voru alltof góðir í síðasta leik, þeim er klárlega refsað fyrir það !

    Thumb up 1
  5. 5
    Jónsi says:

    Það er sáralítil ógnun af Kuyt einum upp á topp. Mér finnst allavega Ngog henta betur í að vera lone striker og raunar skásti kosturinn í liðinu á eftir Torres þó himinn og haf sé á milli gæða þeirra félaga. Hef einhvern veginn aldrei fílað Babel upp á topp heldur þau fáu skipti sem hann hefur fengið tækifæri þar.

    Thumb up 2
  6. 6
    Addi says:

    Einar !
    Agger getur ekki bæði verið hafsent og vinstri bakvörður í þessum leik samkvæmt uppstyllingunni. :)

    Thumb up 0
  7. 7
    Lóki says:

    það er svo fúllt að vera að fara að horfa á leik á anfield og engin torres ! en lýst vel á liðið hja rafa hann stillir upp nákvamlega eins og ég vildi hafa liðið (fyrir utan torres/ngog nátturulega) en ég allavega nokkuð bjartsýnn! se fyrir mer góðan gerrard í dag !!!!!!!!! annars verðum við að taka 3 stig og mer er skítsama hvernig 1-0 eftir sjálfsmark dugir mer.

    ÁFRAM LIVERPOOL !!!

    Thumb up 0
  8. 8
    Már Gunnars. says:

    Hvað er í gangi???????? djö maður.

    Thumb up 0
  9. 9
    Jónsi says:

    @6 jú það er búið að klóna hann… næstur í röðinni er Torres :)

    Thumb up 1
  10. 10
    Geir Eggerts says:

    Já ok! Þetta kemur duglega á óvart. Þetta er spennandi, kannski er þetta byrjunin á nýju róteringa tímabili hjá Rafa :)

    Thumb up 0
  11. 11
    Hafliði says:

    Djöfull að missa Torres, nú er ég ekkert alltof öruggur um sigur lengur :(

    Thumb up 0
  12. 12
    Kristján V says:

    @ 2…. djúpur…. snilld hehehe

    Thumb up 0
  13. 13
    Einar Örn says:

    Já já já. Maður setur þetta inn og hellir svo uppá kaffi og þá eru komin 12 ummæli.

    Búinn að laga þetta. Agger verður væntanlega í vinstri bak.

    Óli fær jákvæðnisverðlaun dagsins.

    Thumb up 0
  14. 14
    Jói says:

    Er einhver með góðan link á leikinn?

    Thumb up 0
  15. 15
  16. 16
    Jóhann says:

    Snúast flest ummælin um það að Rafa sé eitthvað ruglaður þar sem Kuyt og Lucas eru ekki með? Þetta er frábær uppstilling og miðað við mannskapinn það sama og ég hefði gert í það minnsta.

    Thumb up 4
  17. 17
    Búi S says:

    Heyriði, þetta veetle dót virkar ei. Eitthvað annað í boði sem þið vitið að virkar?

    Thumb up 0
  18. 18
    Búi S says:

    Þetta virðist virka http://www.sports-4-u.com/soul.html

    Thumb up 0
  19. 19
    Jónsi says:

    flott mínúta hjá Postulani, bakfallsspyrna og flott stungusending á Taxi

    Thumb up 1
  20. 20
    Gummi Halldórs says:

    Man U gerir jafntefli við Blackburn. Það kemur þessum leik ekkert við en mér finnst gaman að vera boðberi jákvæðra tíðinda.

    Thumb up 5
  21. 21
    Sigkarl says:

    Sælir félagar

    Frekar slakt hjá okkar mönnum í fyrri hálfleik. Það er greinilegur þriggja klassa munur á Torres og N’gog og sóknin því frekar bitlaus. Skipta í þriggja manna vörn og bæta í sóknina því það þarf varla 4 varnarmenn til að passa Samora. Koma svo rauðir og negla þetta.

    Það er nú þannig

    YNWA

    Thumb up 1
  22. 22
    styrmir says:

    Sammála Sigkarl.
    Skíthræddur um að þetta verði svona “meira með boltann en töpum stigum” leikur í dag. virðist ekki vera neitt bit í sóknarleiknum.

    Thumb up 0
  23. 23
    ArnarÓ says:

    Veetle straumirinn svínvirkar ég er búinn að horfa á allan leikinn í honum… opniði hann í firefox … útsendingin er í HD

    Thumb up 0
  24. 24
    AA says:

    hvernig meiddist torres núna omg er hann alltaf að meiðast maðurinn

    Thumb up 0
  25. 25
    Höddi B says:

    Bitlaust lið í fyrrihálfleik.. Ekkert að gerast og ég sé alveg fyrir mér að þesi leikur endi 0-0. Eða að Fulham laumi inn einu marki. Við virðumst þurfa 100 færi til að skora eitt mark, en mótherjar okkar, 3 til 4 færi.

    YNWA

    Thumb up 1
  26. 26
    Lóki says:

    ég vil fara að fá dirk kuyt inná fyrir maxi !!! hvað þarf sá gaur að fá gott færi til að skora

    Thumb up 0
  27. 27
    Guðmundur Ingi says:

    77% með boltan á tímabili, þetta er rosalegt.

    Thumb up 0
  28. 28
    Davíð Már says:

    Þessi skipting á Aquilani fyrir Kuyt er með öllu óskiljanlega að mínu mati. Maxi hefði átt að fara útaf frekar

    Thumb up 2
  29. 29
    Björninn says:

    ég er farinn að sjá afhverju lucas er valinn fram yfir aquilani, því miður þá er ég ekki að sjá neitt sem réttlætir þennan verðmiða á manninum (má etv. tala um að hann sé ekki í leikformi…)

    Thumb up 0
  30. 30
    JóiG says:

    Ánægður að sjá parcheco inná

    Thumb up 3
  31. 31
    Elías says:

    Er manni eiginlega ekki bara byrjað að vera sama um þetta 4 sæti

    Thumb up 0
  32. 32
    Johannes says:

    Man City var að skora gegn Birmingham, staðan er 1-0, 40 mínútur liðnar. Þetta lítur afar illa út.

    Thumb up 2
  33. 33
    Jón H. Eiríksson says:

    Það er meira tempó í stóru tánni á mér en sóknarleik Liverpool…. –__–

    Thumb up 5
  34. 34
    Baddi says:

    Bless Meistaradeild, bless Benitez!

    Thumb up 9
  35. 35
    Ingi T. says:

    Skondið að sjá liðið berjast við það að fara upp kantana og gefa endalaust fyrir þar sem við erum hvorki með kantmenn né góða skallemenn inní teig.

    Thumb up 3
  36. 36
    Boggi Tona says:

    Til hamingju Benitez þú endanlega drullaðir upp á bak núna.

    Thumb up 6
  37. 37
    Davíð Már says:

    Nú er mér öllu lokið. Gjörsamlega bitlaust lið. Aquilani var að skapa smá usla og var tekinn útaf fyrir Kuyt sem snerti varla boltann. Babel var að skapa smá usla og var tekinn útaf fyrir Benayoun sem snerti varla boltann. Það er eins og liðið hafi verið í handbremsu allan leikinn, varla að það hafi leikmaður tekið sprettinn.
    Skelfilega frammistaða sem endurspeglar spilamennskuna allt tímabilið

    Thumb up 2
  38. 38
    Steini says:

    Til hamingu með frábæra frammistöðu, glæsilegt tímabil!

    Thumb up 2