Árið 2006 var Liverpool F.C. ríkjandi evrópumeistarar, sem slíkir komumst við bakdyramegin í meistaradeildina þrátt fyrir að hafa lent í 5.sæti í deildinni 2005 en þurftum að byrja titilvörnina um sumarið í fyrstu umferð gegn stórliði TNS frá Wales. Hægt og rólega vann Liverpool sig áfram í keppninni og rúllaði t.a.m riðlinum sínum upp sannfærandi og voru heppnir þegar dregið var í 16.liða úrslitum. Við fengum Benfica.

Það þarf líklega ekki að minna marga á að Benfica vann sinn heimaleik 1-0 með marki sex mínútum fyrir leikslok og vann síðan líka leikinn á Anfield 0-2. Þeir semsagt SLÓGU okkur út, bókstaflega. Bölvaðir. Í fyrri leiknum fékk Sissoko spark í smettið sem varð til þess að óttast var að hann myndi tapa sjón á öðru auganu.
Að vanda ætla ég ekki að einbeita mér um of af okkar mönnum í upphitun fyrir þennan leik heldur andstæðingunum, enda ekki of oft sem við mætum liðum á borð við þau sem við höfum mætt í Europa League.
Benfica er þó auðvitað töluvert þekktari klúbbur heldur en fyrri andstæðingar okkar í t.d. Debreceni og Unirea Urziceni og hefur Liverpool t.a.m. fjórum sinnum áður í sögunni spilað við Benfica í Evrópukeppni.

Sport Lisboa e Benfica kemur eins og nafnið gefur til kynna frá stærstu borg Portúgal, höfuðborginni Lissabon. Félagið var stofnað árið 1904 og er síður en svo eingöngu í fótbolta, þeir eru líka með lið í íþróttum eins og körfu, futsal, blaki, handbolta, sundknattleik, ruðning, hjólreiðum og bara name it, ekki ósvipað og mörg lið hér heima eru að eyða óþarfa orku í. Á fyrri hluta síðustu aldar var Benfica t.a.m. mest þekkt sem gott hjólreiðalið.
Knattspyrnuliðið er þó að sjálfsögðu aðalatriðið hjá Benfica líkt og öllum öðrum liðum sem eitthvað vit er í og er liðið talið vera það vinsælasta í Portúgal og raunar eitt vinsælasta lið Evrópu ef út í það er farið. Þeir tilheyra “Topp 3″ grúppunni í heimalandinu með nágrönnum sínum í Sporting Lissabon og erkifjendunum í Porto og hafa unnið bæði titil og bikar leiðinlega oft, deildina í 31 skipti og bikarinn í 24 skipti. Ekki nóg með að saga Benfica sé svona afgerandi sigursæl þá er þetta ennþá magnaðara í ljósi þess að deildarkeppnin í Portúgal hófst ekki fyrr en uppúr 1930. Þeir hafa síðan unnið meistaradeildina tvisvar sinnum sem er t.d. tvisvar sinnum oftar en t.a.m. Chelsea, Arsenal og Tottenham til samans.
Uppúr 1940 varð fótbolti aðalmálið hjá Benfica og liðið eitt það allra allra besta í landinu ásamt nágrönnum sínum í Sporting. Vinsældirnar urðu svo miklar að árið 1954 var byggt hið sögufræga vígi Estádio da Luz. Sá völlur sem var fjölnota íþróttavöllur tók aðeins 40.þúsund manns til að byrja með en var fljótt stækkaður til að fleiri gætu borðið goðsagnir eins og Eusébio augum og tók þegar mest var um 125.þúsund manns, og það nánast engann í sæti. Árið 1987 er talið að um 135.þúsund manns hafi séð leik Benfica og Porto sem er það mesta sem selt hefur verið á leik hjá Benfica, og raunar bara í Evrópu.
Upp úr 1990 var farið að skylda lið til að hafa alla vallargesti í sætum og því tók völlurinn “bara” 78.þúsund manns eftir þær aðgerðir. Þessi sögufrægi völlur var síðan rifinn upp úr aldarmótum og í staðin var byggður nýr og glæsilegur 65.þúsund manna völlur með sama nafni sem m.a. hýsti lokaleik EM 2004.
![]()
Þakið á vellinum er hannað þannig að hann hleypir betur inn birtu og er þar af leiðandi sannarlega Leikvangur Ljósins (Estádio da Luz). Gamli völlurinn var hinsvegar skírður eftir hverfnu sem hann var byggður í.
En nóg um völlinn, gullöld Benfica var uppúr 1960. Liðið varð Evrópumeistari 1961 og 1962 og tapaði síðan þrisvar í úrslitum á þessum áratug. M.ö.o. liðið fór fimm sinnum í úrslit á sama áratugnum sem sýnir sæmilega hvað Eusébio og co voru ógeðslega góðir. Þeir meira að segja náðu að laða 18.þúsund manns á Laugardalsvöllinn þrátt fyrir að Valur væri að spila árið 1968. Þetta ár var Benfica valið besta lið Evrópu (af France Football) þrátt fyrir að hafa tapað úrslitaleiknum gegn einhverju ensku liði. Við tökum auðvitað frekar mark á frökkunum.
Eusébio og co unnu síðan auðvitað nánast alltaf titilinn heimafyrir á þessum tíma. Þetta lið er ástæðan fyrir því að Benfica er svona þekkt worldwide enn þann dag í dag, það fullyrði ég.
Frá 1994-2004 voru myrkustu ár Benfica, þeir unnu bara einn titil og lentu eitt árið í alveg sjötta sæti í deildinni!! Liðið var í miklum fjárhagsörðugleikum og tómu veseni. Undanfarin ár hafa þeir síðan verið að koma sterkir til baka og eru enn á ný eitt af topp liðunum í Portúgal og líta alls ekki illa út í Evrópu heldur.
Sem stendur er Benfica á toppnum í Portúgal sex stigum á undan Braga sem þeir unnu einmitt um helgina 1-0. Í fyrra komst liðið ekki í meistaradeildina og er ferðalag þeirra fram að leiknum gegn Liverpool því svona:
Undankeppni – Vorskla Poltava 4-0 (h), 1-2 (ú)
Riðlakeppni –
BATE Borisov 2-0 (h), 2-1 (ú)
AEK 0-1 (ú), 2-1 (h)
Everton 5-0 (h), 2-0 (ú)
32 liða úrslit – Hertha Berlin 1-1 (ú), 4-0 (h)
16 liða úrslit –Marseille 1-1 (h), 2-1 (ú)
Eins og sjá má á þessu erum við að tala um ágætis lið sem þeir hafa verið að spila við og var ég t.a.m. búinn að gleyma þeirri ánægjulegu en þó smá ógnvænlegu staðreynt að Benfica flengdi Everton með písk 5-0 á þessum fáránlega sterka heimavelli sínum.
Þetta er hressandi engu að síður
Það eru nokkur vel þekkt nöfn í þessu Benfica liði og eru t.a.m. markahæstu menn í Evrópukeppninni þetta árið sóknarmennirnir Cardozo (7), Saviola litli (6) og undrabarnið Ángel Di María (4).
Líklegt byrjunarlið hjá þeim gæti hljómað einhvernvegin svona:
Pereira – Luisao – Luiz – Conetrao
Garcia – Ramires
Aimar – Saviola – Di Maria
Cardozo
Quim er fyrrum landsliðsmarkmaður Portúgala með 32 landsleiki. Pereira er sókndjarfur bakvörður frá Uruguay og fastamaður í landsliðinu, Luisao og Luiz eru traustir og öflugir miðverðir sem báðir eru fastamenn í landsliði Braselíu. Þeir hafa bara spilað með Benfica í evrópu en eru eftirsóttir mjög. Coentrao er ungur bakvörður sem hefur verið mikið á láni undanfarin tímabil. Hann er þó kominn í liðið núna og á einn landsleik fyrir Portúgal þú þegar.
Javi Garcia er spænskur miðjumaður ættaður úr Real Madríd og hefur spilað með öllum yngri landsliðum Spánar. (svekkjandi kannski að vera uppi á sama tíma og Alonso, Iniesta, Fabregas, Silva, Xavi og co.). Ramires er enn einn Brassinn sem þeir hafa keypt ungan frá heimalandinu. Portúgalska er móðurmál Brassa og því kjörið fyrir þá að byrja í Portúgal þegar þeir stökkva yfir til Evrópu. Ramires hefur spilað 10 landsleiki fyrir Braselíu og er bara ´87 módel.
Argentínumennina þrjá höfum við síðan alla heyrt mjög mikið um, Aimar er legend í Valencia og sá leikmaður sem Benitez byggði lið Valencia upp í kringum, með fínum árangri. Ég skil ekki enn afhverju við keyptum hann aldrei til Liverpool en kemst vonandi af því á morgun.
Saviola er síðan einn mesti næstum því leikmaður sögunnar en hann náði aldrei að festa sig í sessi hjá þeim liðum sem hann var í… sem reyndar hafa oft verið allra stærstu klúbbar heims. Hann ætti að vera nokkuð stórt nafn í þessu Benfica liði engu að síður og er auðvitað stórhættulegur.
Þriðji samlandi Mascherano er síðan Angel Di María, eitt allra mesta efni Evrópu í dag og leikmaður sem óttast er að fari til Helvítis, 40km frá Liverpool.
Frammi er síðan Paragvæinn Oscar Cardozo, hann er maðurinn í heimalandinu og hefur verið sterkur í Benfica, sem er eini evrópski klúbburinn sem hann hefur spilað fyrir.
Fyrirliði liðsins er síðan Nuno nokkur Gomes fyrrum vonarstjarna Portúgal og bjáni sem sagðist ekki vilja fara til Liverpool á sínum tíma.
Þjálfari Benfica er síðan Jesús (oft kallaður Jorge Fernando Pinheiro de Jesus) en hann tók við liðinu sumarið 2009 og var áður stjóri hjá Beleneses og Braga og stýrði þeim liðum báðum í evrópukeppni.

Saviola hress
Ef við skoðum síðan önnur afrek Benfica er gaman að geta þess að þeir rétt svo merja SStein og félaga í Liverpool klúbbnum á Íslandi hvað varðar fjölda klúbbmeðlima. Það eru nú yfir 200.þúsund borgandi meðlimir í aðdáendaklúbbi Benfica sem er talið vera það mesta sem gerist í þessum fræðum í Evrópu, en það eru um 3.þúsund í Liverpool klúbbnum á Íslandi sem er þó á rjúkandi uppleið og nær þeim líklega um áramótin.
Ef við snúum okkur að okkar mönnum er ekki nokkur lifandis leið að átta sig á því við hverju við megum búast, liðið hefur aðeins verið á uppleið undanfarið með endurkomu manna úr meiðslum og sigurinn á Sunderland var sá besti á leiktíðinni, hvað spilamennsku varðar. Raunar var það líka bara annar leikur hins sanna Liverpool á árinu.
Eins og staðan er núna er þó ekkert sem ætti að koma á óvart í okkar liði, Skrtel og Aurelio eru meiddir og Maxi í banni, aðrir ættu að vera heilir. Þetta Benfica lið er mjög léttleikandi og því býst ég við að vinsælasti leikmaður Liverpool um þessar mundir, Lucas Leiva komi aftur á miðjuna við hlið Mascherano.
Svona spái ég allavega byrjunarliðinu:
Johnson – Carra – Agger – Insua
Mascherano – Lucas
Kuyt – Gerrard – Babel
Torres
Svona “óttast” ég að liðið verði, semsagt Lucas inn fyrir Maxi Rodriguez sem er ólöglegur, annars sama lið og lék gegn Sunderland.
Spá: Vonum það besta, við eigum harma að hefna gegn þessu liði og við vinnum þá á eðlilegum degi. Ég segi 1-1 í þessum leik sem væru ágætis úrslit enda ekkert venjulega góður heimavöllur.
Babú