Liðið gegn Lille

Jæja, liðið er komið og lítur svona út:

Reina

Johnson – Carra – Agger – Insúa

Mascherano – Lucas
Kuyt – Gerrard – Babel
Torres

Á bekknum: Cavalieri, Benayoun, Kyrgiakos, Ngog, Degen, El Zhar, Kelly.

Semsagt, þær tvær breytingar sem að allir vildu. Kuyt inn fyrir Maxi (sem er bikar-bundinn) og Lucas inn fyirr Aqulani sem er með vírus eftir óhóflegt pasta-át. Það er svo sem erfitt að mótmæla þessu. Fyrst að þeir tveir duttu út þá var Rafa í smá vandræðum, sérstaklega er varðar miðjuna. En allavegana, vonandi dugir þetta til að klára Lille.

58 thoughts on “Liðið gegn Lille

  1. 1
    Ásmundur says:

    Þetta gat vel verið þannig að Gerrard kæmi á miðjuna til að spila með Masch og Yossi settur í holuna. Ég er drullufúll yfir þessari uppstillingu.

    Thumb up 3
  2. 2
    Brúsi says:

    Whatever samt, núna fáum við einfaldlega að sjá enn einn leik sem einkennist af possession en ákaflega bitlausri sókn og Carra mun dúndra boltanum fram og til baka eins og enginn sé morgundagurinn. Af hverju ekki að hafa Gerrard á miðjunni og blása smá til sóknar ? Það mun ekki skila okkur áfram að halda hreinu í þessum leik.

    …og er þessi bekkur ekki grín eða ?

    Thumb up 5
  3. 3

    Úúúúfff maður reynir að vera bjartsýnn en þessi uppstilling dregur örlítið úr henni skal ég þér segja. Jæja vonum það besta

    Thumb up 0
  4. 4

    úff … ekki bjartsýnn. Prove me wrong guys!!!

    Thumb up 0
  5. 5
    Lolli says:

    Afhverju ekki fokking Gerrard á miðjunna og Benayoun inná fyrir Lúkas. Ég er ekkert að leggja Lúkas litla í einelti en málið er að hann og Mascherano hafa ekkert erindi að spila saman á miðjunni á HEIMAVELLI, gegn LILLE, í LEIK SEM ÞARF AÐ SIGRA.
    Spái þessu 1-1.

    Er þó ánægður með að hafa Babel inná enda bara asnalegt að taka hann úr liðinu sem ég bjóst við. Kemur mér þó á óvart að Agger fær að spila þriðja leikinn á stuttum tíma. Kannski er bauninn í betra formi en ég hélt.

    Thumb up 4
  6. 6
    Lóki says:

    hahaha shit var ekki búinn að sjá bekkin!! þessi leikur fer 1-1 á þessum leikmannahóp sem mer fynnst slakur! við verðum 1-0 yfir og leikmenn nokkuð sáttir bara en svo jafna þeir í endan !

    Thumb up 0
  7. 7
    Lolli says:

    Er Riera nokkuð meiddur? Hann er bara endanlega dottinn úr liðinu aight?
    Vorkenni honum nákvæmlega ekkert. Hann er ekki með rétta viðhorfið sem við viljum hafa.

    Thumb up 4
  8. 8
    Bjarki Már says:

    Er bjartsýnn og spái þessu 5 – 1. Torres með 2, Gerrard, Johnson og Lucas!!

    Thumb up 2
  9. 9
    Helgi J says:

    Þótt þeir félagar Kuyt og Lucas (sem mér skilst að séu útsendarar djöfulsins, eftir skrifum manna hér að dæma) spili þennan leik, þótt Aquilani liggi með flensu, þótt fyrirliðinn okkar berji menn í hnakkann í tíma og ótíma, og þótt Rafa sé fífl og asni þá spái ég öruggum sigri 3-0, þar sem Torres (2) og (haldið ykkur) Lucas skori mörkin.

    Og í þessum töluðu orðum sýnist mér að Fulham gæti verið á leiðinni í átta liða úrslitin.

    Thumb up 9
  10. 10
    Lóki says:

    mer finnst “víst að” cool !

    Thumb up 0
  11. 11
    Dóri Stóri says:

    Ég get ekki kvartað yfir þessari uppstillingu. Spáið aðeins í því, við erum jú með tvo varnarsinnaða miðjumenn..EN, þetta gefur okkur tækifæri til að sækja meira upp kantana og þá geta Insúa og johnson sótt meira upp völlinn. Ef ég ætti pening til að tippa á leikinn myndi ég segja að við vinnum þennan leik 3-1. Við munum sækja mest upp kantana og munum við sjá ófá krossa eða hlaup frá kantmönnunum inn á miðjuna og efast ég ekki um að við eigum eftir að setja allavega tvö skallamörk. Ég ætla svo að gerast svo grófur og giska á að Carra verði með eitt mark eftir horn, Torres með skalla og svo mun Babel setjann eftir sendingu frá Kuyt af kantinum. mark my words :D

    Thumb up 0
  12. 12
    Dóri Stóri says:

    Svo það sé komið fyrir þá sem vantar stream, ég mæli eindregið með þessu streami tvu://A63053d12537b76f87177ba258e43f7a0e2e846678778c338fa883bc96a3f0a1e0ce8f3db5624be3ac8a7af3ad09f021e

    Þetta er frá TV3 með dönskum þulum og eru gæðin góð. Þetta er fyrir TVU player fyrir þá sem ekki vita.

    Thumb up 0
  13. 13
    JOL says:

    Voru menn ekki ánægðir með síðasta leik. Þar gekk boltinn hratt inná miðjunni nú er vinur okkar Lucas kominn til að draga niður hraðan. Ég er ekki bjartsýnn.

    Thumb up 0
  14. 14
  15. 15
    Jökull says:

    Höddi Magg að lýsa Liverpool-leik!!

    Thumb up 0
  16. 16
    Kiddi Keegan says:

    mér finnst ósanngjarnt að gera lítið úr Hollenska hundinum, hann hefur reynst okkur vel ansi oft þó svo að hann hlaupi endalaust í hringi og viti ekkert hvert hann sé að fara. við viljum hafa hann inn á í leikjum en ekki hverjum einasta fokking leik. Hann er góður kostur í evrópu leikina og á eftir að gera góða hluti í kvöld.

    Thumb up 0
  17. 17
    Ragnar says:

    Jessss !! Lucas gerði gagn !

    Thumb up 1
  18. 18
    Viktor EB says:

    Gjafavaíti.

    Thumb up 1
  19. 19
    Sæmi says:

    Tæknitröllið frá Brasil, búinn að minna á sig ,-)

    Thumb up 0
  20. 20
    Dóri Stóri says:

    Og hver annar en Lucas að fiska víti…þetta er saga sem getur ekki klikkað :D

    Thumb up 0
  21. 21
    Bjarni W says:

    Gerrard, flott hjá Lucas

    Thumb up 0
  22. 22
    Jói says:

    Djöfull er Lucas góður !

    Thumb up 3
  23. 23
    Bjarni W says:

    djöfull er Carragher slakur á boltanum

    Thumb up 3
  24. 24
    brói says:

    reina er vanmetinn skallamaður

    Thumb up 2
  25. 25
    Andri þór says:

    Kátur að bjarga á línu vel gert á hann ekki að fá stig fyrir það í svk. Castrol

    Thumb up 1
  26. 26
    MaggiR says:

    hvað var málið með RB að ypta öxlum þegar flautað var af …. var tíminn ekki búinn??

    Thumb up 0
  27. 27
    Sigurgeir says:

    Sennilega af því að dómarinn flautaði á mínútunni 45… Hefði alveg mátt bæta við 2-3 mín í fyrrihálfleik…

    Thumb up 1
  28. 28
    Villi Stjána says:

    Lucas að gera góða hluti vona að hann haldi því áfram þá mun ég (fleiri) þurfa að étta nokkur vel valinn orð ofaní mig. Eitthvað sem ég mun gera með glöðu geði ef hann heldur áfram á sömu nótum og við komust í næstu umferð.
    Koma svo Liverpool kláru þetta dæmi í seinni.

    Thumb up 3
  29. 29
    Kiddi Keegan says:

    Lucas er að bjóða sig fram á miðjunni????? og það er að virka????
    shit það er allt að verða vitlaust hérna.
    Það getur greinilega allt gerst! Hann verður maður leiksins með þessu áframhaldi. og þá mætir Benitez heim til mín og segir “I told you so” og hvað segi ég þá?

    Thumb up 6
  30. 30
    einare says:

    1-0 í hálfleik, ásættanlegt. Myndi vilja sjá liðið setja meiri þunga í hápressuna. Það er eins og Lucas og Masche séu ekki alveg klárir hversu framarlega þeir eiga að vera þannig að það myndast fullmikið pláss milli fremstu mann og miðjumannanna. Þá finnst mér vörnin vera full taugaveikluð og ekki ná að koma boltanum almennilega frá sér sem gerir það að verkum að liðið er alltaf í eltingaleik í stað þess að stjórna leiknum.

    Þetta Lille lið er greinilega skeinuhætt og líklegt til þess að geta potað inn einu marki þannig að það er mikilvægt að ná öðru markinu sem allra fyrst.

    Thumb up 0
  31. 31
    Ásmundur says:

    Fínasti leikur hjá okkur en við verðum að bæta við einu eða helst 2 mörkum og klára þennan leik, það væri hrikalegt að fá mark á okkur seint í leiknum.

    Thumb up 0
  32. 32
    steini says:

    Ég verð ekki rólegur fyrren við skorum 3!!

    Thumb up 1
  33. 33
    Ragnar says:

    TOOOOOOOORRRESSSS 2-0 ! ááááwjúúú

    Thumb up 0
  34. 34
    Davíð Arnar says:

    Glæsileg afgreiðsla hjá Torres!

    Thumb up 0
  35. 35
    Sigurgeir says:

    Glæsileg stoðsending hjá Babel :)

    Thumb up 0
  36. 36
    einare says:

    Eins og að drekka vatn……af hverju getur þessi maður ekki haldist heill í heila leiktíð :S

    Thumb up 0
  37. 37
    Dóri Stóri says:

    JÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!!!!!! Svo bara eitt enn og þá erum við öruggir áfram :D

    Thumb up 0
  38. 38
    Viktor EB says:

    Kátur er búinn að vera farþegi allan leikinn.

    Thumb up 1
  39. 39
    Dóri Stóri says:

    38 Viktor, hversu margar sóknir Lille hafa farið í gegnum hægri kantinn?? Sárafáar ef einhverjar, ergo, Kuyt er að gera það sem hann á að gera.

    Thumb up 2
  40. 40
    Stjáni says:

    SSteinn er ekkert á leiðinni heim!!!!!!!!!

    Thumb up 0
  41. 41
    Viktor EB says:

    Dóri hvað hefur kátur gert af viti sem sókarmaður. Er hans hlutverk að vera varnarmaður þarna á hægri kanntinum?!

    Thumb up 0
  42. 42
    einare says:

    Jæja,,,nú mætti Benayoun fara koma inná þetta til þess að freista þess að ná 3ja markinu. Inn fyrir Kuyt eða Babel….

    Thumb up 0
  43. 43
    Böddi says:

    VÁ VORUM VIÐ HEPPNIR

    Thumb up 0
  44. 44
    Dóri Stóri says:

    41 Viktor, ég veit ekki betur en Kuyt hafi spilað mjög vel í þessum leik, hefur átt góðar sendingar þar á meðal eina hættulega af kantinum inn í teig sem Lille þurftu að senda beint í horn. Hann pressar hátt og gefur þeim ekki grið á kantinum og hefur þar með lokað 1/3 af sóknarleiðum Lille…ekki slæmt það. Hvað getur maður farið fram á meira af kantmanni??? Skora einsog Duranona í handbolta???

    Thumb up 4
  45. 45
    Dóri Stóri says:

    41 Viktor, að auki þá gefur varnarvinna Kuyt Johnson færi á að vera mun sókndjarfari en hann ætti að vera miðað við þá stöðu sem hann spilar.

    Thumb up 2
  46. 46
    Dóri Stóri says:

    Tókuð þið eftir því að Benitez virðist vera grennri en hann hefur verið síðustu 18 mánuði??? Annaðhvort er það stressið sem er að hafa áhrif á hann eða hann hafi farið á einhvern Herbalife kúr :P

    Thumb up 1
  47. 47
    Kiddi Keegan says:

    Kátur er að standa sína vakt í dag. Ekkert mikið meira en það. svo náttúrulega setur hann eitt fylgja eftir mark í blálokin.

    Thumb up 0
  48. 48
    Kiddi Keegan says:

    og Carra má víkja fyrir Kyrgiakos akkúrat núna takk.

    Thumb up 3
  49. 49
    Viktor EB says:

    Eina sendingu og eitt skot á 85 mín vá þvílík ógnun. Bara Messi þarna á ferðinni. Það versta við þetta hlutverk Kuyt erað honum er sagt að gera þetta. Þetta er bara ekki mikil skemmtun á að horfa.

    Thumb up 1
  50. 50
    Böddi says:

    TORRES

    Thumb up 1
  51. 51
    Dóri Stóri says:

    3-0 :D Torres kárar leikinn!!!!!

    Thumb up 1
  52. 52
    Kiddi Keegan says:

    takk Torres

    Thumb up 1
  53. 53
    Dóri Stóri says:

    49 Viktor, mér er sama hversu mikið þér og okkur hinum er skemmt með hans leik, ef það virkar og allir hinir í liðinu eru sóknarhætta þá er mér slétt sama…og þér ætti líka að vera sama vegna þess að við erum að vinna 3-0 með hann í þessu leiðinlega hlutverki :D

    Thumb up 1
  54. 54
    Einar Örn says:

    Glatað hjá Benitez að fagna ekki meira.

    Thumb up 9
  55. 55
    Helgi J says:

    Ég mæli með að lesendur skoði ummæli nr. 9, svo ég vísi pínulítið í sjálfan mig.
    3-0.

    Thumb up 6
  56. 56
    Jói #5 says:

    3 – 0. Sumir eru ánægðir en aðrir væla. Svona er þetta. Ég er kátur. Hlakka til sunnudags.

    Thumb up 1
  57. 57
    Reynir Þ. says:

    Sá Benitez ekki tala neitt við Riera á meðan leiknum stóð, kannski eitthvað til í því sem Riera segir.

    Thumb up 4
  58. 58
    Hafliði says:

    :razz: :roll: :shock: ;-) :| :x :twisted: :smile: :shock: :sad: :roll: :razz: :oops: :o :mrgreen: :o :mrgreen: :lol: :idea: :grin: :evil: :cry: :cool: :arrow: :???: :?: :!:

    Sorrý bara smá tilraun

    Thumb up 0