Vicente del Bosque…

er mjög líklega með hiksta núna.

13 thoughts on “Vicente del Bosque…

  1. 1
    Einsi Bongo says:

    Ég skal fara í double or nothing við Breta og Hollendinga… ég veðja icesave skuldinni að hann meiðist í þessum fokkins leik

    Thumb up 7
  2. 2
    Andri says:

    ,,Þetta er alls ekki endanlegur hópur fyrir HM, þetta er einungis hópur fyrir vináttuleik gegn Frökkum,” sagði Del Bosque.

    Ef að þetta er “einungis” hópur fyrir æfingaleik,þá gat hann alveg gefið Torres Frí!!….það vita það allir að Torres verður í HM hópnum,af hverju ekki að skoða aðra framherja.

    Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=87866#ixzz0gedkb26s

    Thumb up 4
  3. 3
    Ásmundur says:

    Ef að Torres kemur meiddur til baka Þá legg ég í púkk að það sé farið og gengið frá þessum þjálfara. Hann á að draga sig úr hópnum og segjast ekki vera tilbúin í þetta.

    Thumb up 3
  4. 4
    Dóri Stóri says:

    Getur Benitez ekki neitað landsliðinu um að fá leikmanninn?

    Thumb up 3
  5. 5
    Eyþór Guðj. says:

    Hann hefur varla sleppt orðinu um að Liverpool eigi að hvíla leikmannin svo hann sé 100% á HM, svo velur hann manninn í æfingarleik korteri eftir að hann byrjar að æfa.

    Þvílík steypa

    Thumb up 8
  6. 6
    einare says:

    Ég hreinlega trúi ekki öðru en að Benitez noti Manchester United og Chelsea aðferðina á þetta og láti hann tilkynna forföll í svona leik.

    Aljgörlega ólíðandi að leikmaður sem hefur spilað í 15 mín í c.a. 2 mán. skuli vera kallaður í landsleik.

    Thumb up 7
  7. 7
    Gunnar Ingi says:

    …og það tilgangslausan æfingaleik!

    Thumb up 4
  8. 8
    Ghukha says:

    Pirrandi!

    Thumb up 1
  9. 9
    Jónsi says:

    taka Mourinho á þetta… láta hann spila fyrri hálfleik á sunnudaginn, taka hann útaf í hálfleik og segja að hann sé meiddur… :) JM gerði þetta amk einu sinni með íslenska glókollinn

    Thumb up 1
  10. 10
    Babu says:

    Svona í alvöru þá bara hlítur Torres að spila á sunnudaginn og “meiðast” í þeim leik.

    Thumb up 2
  11. 11
    Bjammi says:

    Langaði bara að prufa hvort að þetta virki:)

    Jóhanna Sig

    Guðlaugur Þ – Sturla – Þorgerður – Gunnar Bir

    Bjarni Ben – Sigmundur Davíð
    Össur – Helgi Hjörvar – Sóley Tómasar
    Steingrímun J


    innsk. lagaði þetta með von um að Bjammi skili Colt-inum – Babu

    Thumb up 0
  12. 12
    Bjammi says:

    sem það gerði ekki….annars þoli ég ekki DelMonte þjálfara

    Thumb up 0
  13. 13
    Babu says:

    Lagaði þetta Bjammi til að gagnrýna liðsvalið!!

    Steingrímur í sókn er svipað slæmt og Kuyt frammi, hægur og mikið mun betri í að verjast! Líklega best geymdur í markinu. Hefði sett Gunnar Birgis í miðvörðinn með þínum manni, Sturlu Böðvars (frægasti Hólmarinn eins sorglegt og það nú er).

    Sigmundur er að sjálfsögðu á miðjunni og frekar djúpur, Bjarni ætti að vera ágætur með honum þó hann leiti mikið til hægri. Össur er svo líklega beittur á kantinum en frændi þinn Helgi Hjörvar er auðvitað afleitur kostur í holuna, enda sér maðurinn án gríns voðalega lítið. Kristján Möller hefði verið mun betri kostur í að stjórna umferðinni úr holunni!!

    Sóley Tómasar á svo ekki að komast að í neinu liði nokkurntíma!! og ég hefði frekar sett Árna Johnsen framm.

    (fyrsti maðurinn til að væla yfir því að ég hafi svarað þessu og talað óbeint um pólitík má gefa sér kinnhest frá mér) :)

    Thumb up 3