Liðið komið – Yossi byrjar

Byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Unirea (kl. 18, nota bene) er komið og er það sem hér segir:

Reina

Carra – Skrtel – Agger – Insúa

Mascherano – Lucas
Benayoun – Gerrard – Babel
Ngog

**BEKKUR:** Cavalieri, Kyrgiakos, Kelly, Aurelio, Aquilani, Kuyt, Torres.

Líst vel á þetta. Benayoun og Ngog koma inn í liðið á kostnað Maxi Rodriguez sem er heima og Dirk Kuyt sem fær sjaldgæfa hvíld. Frammi eru því Yossi, Gerrard, Babel og Ngog sem er frekar hröð og öflug lína að mínu mati. Sé fyrir mér að okkar menn liggi aftarlega, láti Unirea koma á sig og káli þeim svo með hraðanum í Babel og Ngog í kvöld. Torres og Kuyt geta svo komið inn ef menn lenda í vandræðum.

Líst vel á þetta. Áfram Liverpool!

45 thoughts on “Liðið komið – Yossi byrjar

  1. 1
    Ásmundur says:

    Vá tíminn á meistaradeildinni var fastur í mér þannig að það var ágætt að maður kíkti á netið annars hefði ég misst af honum…
    En ég er sáttur við allt nema að ég hefði viljað fá Kelly eða Degen í hægri bakvörðinn. Sáttur með hvíldina á Kuyt og núna loksins er Benitez komin í skemmtilegt vandamál að velja lið þar sem að nánast allir eru heilir í fyrsta sinn í vetur að ég held.
    Ég spái þess 0-2

    Thumb up 1
  2. 2
    andri says:

    Ég ætla að koma með eitt neikvætt komment í byrjun. Mascherano – Lucas saman á miðjunni sama sem ömurlegheit, tveir steingeldir fram á við. Gjörsamlega óþolandi hvað Rafa þrjóskast við þetta miðjupar frá helvíti.

    Annars vinnum við þennan leik 1-0 en þessi leikur verður alveg jafn leiðinlegur og flestir leikir okkar á þessu tímabili.

    Thumb up 4
  3. 3
    Gunnar Ingi says:

    Sammála andra með miðjuna og svo Carra í bakverði, úff, ekki beint sóknarsinnað. Jákvæða við þetta er þó að Dirk Kuyt er farinn úr liðinu og Babel fær aftur séns.

    Thumb up 2
  4. 4
    Grétar Amazeen says:

    Ég hef nokkuð mikla trú á góðum sigri. Unirea þurfa að sækja og geta ekki parkerað 11 mönnum í vörn eins og á Anfield, þannig að ég spái því að þeir opnist mikið og við eigum góðar hraðar sóknir á þá. Liðið er öflugt, og góðir sóknarmenn á bekknum til að gera breytingar ef hlutirnir eru ekki að virka. Ég ætla að spá okkur 4-1 sigri, þar sem okkar mörk skora Gerrard, Benayun, Babel og Torres.

    Thumb up 1
  5. 5
    steini says:

    Fínt lið, er samt kominn með upp í kok af Carra í bakverði, finn það á mér að Lucas, Babel og Benayoun skori í 0-3 sigri!!

    Thumb up 1
  6. 6
    Kristinn Smári says:

    Ágætis uppstilling en síðan hvenær er Ngog fljótur? Hef ekki orðið var við þann hraða, hinsvegar er ég ánægður að sjá Yossi og Babel á köntunum, það gæti orðið hættuleg sóknarlína!

    Thumb up 2
  7. 7
    Babu says:

    Skítt með miðjuna og Carra í bakverði, afar hressandi að sjá eitthvað annað en Kuyt, enda spilar þetta lið fótbolta sem hentar Kuyt illa. Lýst ágætlega á þetta

    Thumb up 0
  8. 8
    Ásmundur says:

    Ég held að þetta verði erfiður leikur hjá okkur, ég skil ekki þetta að vera með Carra í bakverðinum, hann var lélegur þar fyrir nokkrum árum og hefur svo sannarlega ekki batnað í þessari stöðu með árunum.

    Thumb up 1
  9. 9
    sissoko says:

    er einhver med link a leikinn

    Thumb up 0
  10. 10
    steini says:

    sissoko, sopcast 73244 ekkert rosaleg gæði en höktir ekkert

    Thumb up 0
  11. 11
    jgp says:

    steini – getur þú verið nákvæmari með link fyrir okkur sem kunnum lítið á tölvur:)

    Thumb up 0
  12. 12
  13. 13
    Jónas says:

    Fara á :

    myp2p.eu

    Thumb up 0
  14. 14
    steini says:

    haha ég er semsagt að horfa á hann í sopcast forritinu á stöð nr: 73244 :) þú getur downloadað sopcast á sopcast.com :)

    Thumb up 0
  15. 15
    sissoko says:

    ja herna tetta fer 2=0

    Thumb up 0
  16. 16
    FHS says:

    neinei, kemur á óvart, mark úr horni, hélt við værum hættir þessu rugli í hornspyrnunum

    Thumb up 0
  17. 17
    einare says:

    ja hérna, þvílíkur sofanda háttur og áhugaleysi. Menn ætlar greinilega að hafa sem minnst fyrir þessu.

    Thumb up 0
  18. 18
    Beggi says:

    Jæja hvernig er þessi leikur hjá okkur mönnum? er sama ruglið í gangi og vanalega reyna spila blak með löppunum?

    Thumb up 0
  19. 19

    Sorglega lélegt.

    Hvað varð eiginlega um þessa menn sem spiluðu á síðasta tímabili?

    Og í þessum töluðu orðum skorar Mascherano með frábæru skoti!!!!

    Thumb up 0
  20. 20
    Haukur says:

    haha mash að skora allt að gerast :D

    Thumb up 0
  21. 21
    Ási says:

    haha Mascherano af öllum mönnum

    Thumb up 0
  22. 22

    Það er eitt af hverjum 25 skotum hjá Masch sem hann hittir svona vel … þetta var flott!

    Vonandi lifnar menn eitthvað við eftir þetta!

    Thumb up 0
  23. 23
    Jói says:

    Masche er alveg sóknarheftur og kann ekki að skjóta.:) hehe

    Thumb up 0
  24. 24
    Jónsi says:

    Mad Masch!

    Thumb up 0
  25. 25
    Jói says:

    Og nú þarf Unirea að skora tvö til að vinna

    Thumb up 0
  26. 26
    Jói says:

    í viðbót

    Thumb up 0
  27. 27
    Jónsi says:

    …það væri ákveðið afrek að tapa næstu 60 mín með tveimur mörkum fyrir þessu liði….

    Thumb up 0
  28. 28
    Einar Örn says:

    Er einhver með link til að horfa á þennan leik á Mac (semsagt ekki Sopcast). Ég er að tapa geðheilsunni.

    Thumb up 1
  29. 29
    Ási says:

    Shitt hvað þeir eru með betri færi en við

    Thumb up 0
  30. 30
  31. 31
    Ási says:

    hver var að skora?

    Thumb up 0
  32. 32
    Sigurgeir says:

    Babel :)

    Thumb up 0
  33. 33
    Jónsi says:

    var Babel ekki að skora ?
    hvernig var markið ?

    Thumb up 0
  34. 34
    Ásmundur says:

    Jæja Babel að stimpla sig í liðið með góðu marki.. Og hvað er með Gerrard ??? Hann kemur ekki einu sinni að fagna mörkunum með leikmönnum…

    Thumb up 0
  35. 35
    Ási says:

    Crynaldo Syndrome segja þeir

    Thumb up 0
  36. 36
    steini says:

    Ásmundur, þetta er ekki Gerrard, þetta er vaxmyndin af honum!! :)

    Thumb up 0
  37. 37
    Kiddi says:

    eöe getur profað

    http://www.atdhe.net
    http://www.iraqgoals.net
    http://www.hqsportz.net ,

    allt sem keyra á firefox

    Thumb up 0
  38. 38
    Ásmundur says:

    Vaxmyndin með mark…

    Thumb up 2
  39. 39
    Ásmundur says:

    Ég er ekki frá því að Babel sé komin með meira sjálfstraust, hann er að spila ágætlega í kvöld.

    Thumb up 3
  40. 40
    Gunnar Ingi says:

    Getum við ekki bókað Babel á bekkinn í næsta leik? Hann vogaði sér að spila vel og skora mark. Er einhver hérna inni sem heldur að hann haldi sæti sínu?

    Thumb up 0
  41. 41

    Gunnar Ingi, Babel er núna búinn að byrja tvo leiki í röð. Óþarfi að mála skrattann á vegginn.

    Thumb up 3
  42. 42
    Gunnar Ingi says:

    Hann hefur ALDREI á sínum Liverpool ferli byrjað meira en tvo leiki í röð. Sagan segir okkur einfaldlega það að það skiptir engu máli hvernig hann spilar, Benitez velur hann ekki ínæsta leik. Vona þó að hann breyti útaf vananum núna.

    Thumb up 0
  43. 43
    Elías Már says:

    Gunnar Ingi, skoðaðu aðeins feril Babel hjá Liverpool áður en þú varpar svona sprengjum.

    Á tímabilinu 2007-2008 byrjaði Babel 11 af 12 leikjum okkar frá tímabilinu 10. feb til 2. apríl, sem sagt fyrst 5 í röð og svo 6.

    Heldurðu virkilega að Rafa sé illa við Babel? Ef honum væri illa við hann myndi hann ekki spila neitt.

    Babel hefur heldur ekki oft gert mikið til að verpskulda sæti í liðinu, reyndar eins og fleiri, en hinir eru kannski að reyna að bæta sig á æfingum. Sem er eitthvað sem maður veit ekkert um.

    Thumb up 2
  44. 44
    Gunnar Ingi says:

    Ertu klár á þessu Elías því ég las einhverntíman grein sem sagði að Babel hefði aldrei byrjað meira en tvo leiki í röð. Ætla svo sem ekki að leggja höfuðið undir en þgar ég hugsaði til baka þá fannst mér þetta ekkert ólíklegt. Og já, ég held að Rafa sé illa við Babel því hann hefur farið ótrúlega illa með hann og gefið honumótrúlega fá tækifæri á meðan leikmenn eins og Lucas, Kuyt og fleirri hafa fengið að komast upp með skammarlega lélegar frammistöður leik eftir leik en eru samt ALLTAF í liðinu.

    Thumb up 1
  45. 45
    Elías Már says:

    Gunnar það þarf akkiað fara lengra en á LFCHistory til að sjá þetta.

    Thumb up 1