Kop.is á Twitter
Dags.: 07.02.2010 klukkan 13:53. Höf.: Kristján Atli
Eru ekki örugglega allir á Twitter?
Twitter er síða sem býður í raun upp á lifandi samtöl á milli fólks í rauntíma. Hægt er að senda inn litlar uppfærslur – aðeins 140 stafbil í einu – og er tilgangurinn sá að hafa þetta stutt, skýrt og beint að efninu. Það er erfitt að útskýra hvers vegna þetta er svona góð samskiptasíða en um leið og maður byrjar verður maður alveg ánetjaður. Ég hvet alla til að prófa.
Við sem skrifum á Liverpool Bloggið erum á Twitter og höfum nú stofnað sérstaka síðu þar sem við getum fylgst með allri Kop.is-tengdri umræðu á Twitter. Þá síðu má sjá hér eða í valmyndinni efst hér á síðunni. Það getur hver sem er tekið þátt í umræðunni, það eina sem fólk gerir er að skrifa eitthvað um Liverpool og enda skilaboðin á að skrifa #kopis.
Þannig að ef ég ætlaði t.d. að skrifa um leikinn í gær og láta það birtast á Kop.is-umræðunni á Twitter myndi ég t.a.m. skrifa eftirfarandi skilaboð: Frábær leikur í gær, virkilega ánægður með að vinna Everton tvisvar í vetur. #kopis
Ég mæli með að sem flestir skrái sig á Twitter og taki þátt í umræðunum. Það er erfitt að útskýra hvers vegna þetta er svona skemmtilegt en trúið mér, þegar þið byrjið verður erfitt að hætta. Það eru til frábær Twitter-forrit fyrir flesta síma þannig að megnið af umræðunum berast beint í símann hjá manni, maður bæði les uppfærslur þar og skrifar á móti á fullu yfir leikjum.
Endilega skráið ykkur, skoðið ykkur um og sendið okkur hinum skilaboð og/eða fylgist með streyminu okkar. Við erum með eftirfarandi notendanöfn:
Ef þið skoðið svo þau streymi sem við erum að fylgja getið þið fundið fullt af sniðugu Liverpool-tengdu fólki sem er gagnlegt að hafa á Twitter. Og ekki gleyma að setja #kopis í endann á Liverpool-tengdum skilaboðum ykkar svo þau birtist á Kop.is-umræðunni á Twitter.
2 Ummæli við “Kop.is á Twitter”
Skrifa Ummæli
Við áskiljum okkur rétt til þess að eyða út ummælum af þessari síðu. Á það sérstaklega við allt skítkast, hvort sem er útí ritstjóra þessarar síðu, leikmenn Liverpool eða aðra lesendur Liverpool bloggsins. Á þetta sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
Tengill: Til þess að búa til tengil yfir á aðra síðu gerir maður svona:
[Heiti á síðu](http://slóð.á.síðu/)
Semsagt, heiti á síðu (eða það sem þið viljið nota sem texta fyrir tengilinn) er fyrst sett innan hornklofa og þar strax á eftir er slóðin á síðuna sett innan sviga.
Feitletrun: Til þess að feitletra orð er ** sett utanum orðið/orðin. Svona:
Hér er texti og **þetta er feitletrað**.
Skáletrun: Til þess að skáletra er * sett utanum orðið/orðin. Svona
Hér er texti og *þetta er skáletrað*.
Tilvitnun: Til þess að vitna í ákveðinn texta þá er einfaldlega > merki sett á undan hverri málsgrein í textanum. Svona
> Þetta er textinn sem er vitnað í…
Listi: Til þess að búa til lista, þá eru einfaldlega + eða - merki sett á undan hverri línu. Einsog svona:
- Red
- Green
- Blue
1. Liverpool
2. Chelsea
3. Man U
Til þess að setja upp liðsuppstillingu þá er textinn hér að neðan notaður. Svona væri þetta í hefðbundinni Liverpool uppstillingu (með fimm línum af leikmönnum). Afritið allan textann í rammanum og setjið hann inní ummæla gluggann. Skiptið svo út heitum á stöðum fyrir heitum á leikmönnum.

Markvörður

HægriBak - Miðv - Miðv - VinstriBak

Miða - Miðja

SóknHægri - SóknMiðja - SóknVinstri

Framherji

Fyrir hefðbundna 4-4-2 uppstillingu þá liti þetta svona út:

Markvörður

HægriBak - Miðv - Miðv - VinstriBak

HægriKantur - Miða - Miðja - VinstriKantur

Framherji - Framherji

Fólk getur svo leikið sér með frekari uppstillingar.

þann 07.02.2010 kl. 19:49
Hey get ég þá spjallað við Babel á Twitter ?
þann 07.02.2010 kl. 22:56
Tja þú getur reynt … það er ekkert víst að hann svari þér.