Áður en ég skanna helstu fréttir af slúðrinu langar mig að hrósa okkar manni hjá Liverpool, hinum 16 ára gamla Kristjáni Gauta Emilssyni fyrir frábæra byrjun hjá klúbbnum, en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir U-18 ára liðið um helgina er hann kom inná gegn Manchester United og kláraði leikinn með með góðu skallamarki. Þetta hefur vakið ágætis athygli innan herbúða Liverpool og var t.a.m. skemmtilegt viðtal við hann á Opinberu síðunni sem sjá má hér.

Stimplaði sig inn með skallamarki
Slúðrið
En þar fyrir utan þá eru bara tveir dagar eftir af leikmannaglugganum, þ.e.a.s. dagurinn í dag og morgundagurinn þar sem síðasti dagur mánaðarins ber upp á helgi.
Benitez til Juventus: Það hefur mikið verið rætt um að Benitez yrði næsti þjálfari Juve og jafnvel bara núna strax í janúar. Svo þegar ráðið var nýjan stjóra þar þá hefur slúðrið snúist í þá átt að hann muni yfirgefa klúbbinn í sumar og taka við Juventus. Það hafa ekki verið neinar alvöru fréttir um þetta mál og persónulega hef ég ekki nokkra einustu trú á þessu, hvorki að hann væri að fara núna né að hann sé búinn að samþykkja að taka við öðru liði í sumar. Hann þarf þó að geta verið samkeppnisfær á leikmannamarkaðnum ef hann á að nenna þessu stappi hjá okkur frekar en að taka við klúbb sem vill endliega fá hann til sín.
Keane til Sunderland og þ.a.l. Jones til Liverpool: Þetta longshot í besta falli en svo er bætt enn í söguna að ef af þessu yrði þá gæti Babel endað á að fara til Birmingham. En þeir bláu eru víst líka heitir fyrir Jones skv. slúðrinu. Það hafa alveg furðulegri hlutir átt sér stað og staða Keane sem yfirgaf Liverpool fyrir akkurat einu ári síðan er ekki góð hjá Spurs og batnaði ekki með komu Eiðs Smára.
Stöðu þessa Kenwyne Jones hjá Sunderland er erfitt að greina, Bruce vill halda honum en líklega vill Jones fara í stærri klúbb. En það örlitla sem ég hef séð af honum sýndi að hann er ágætur leikmaður og ef njósnara her okkar er svona spenntur fyrir honum býst ég við að hann geti nú eitthvað fyrir sér. Hann hefur skorað alveg heilt mark í síðustu 11 leikjum og Steve Bruce er á því að orðrómur varðandi framtíð hans hjá félaginu sé þar helst ástæðan. Hef samt alveg verið spenntari fyrir leikmanni sem er orðaður við Liverpool. En á móti segi ég hell yeah við stórum sóknarmanni sem hefur reynslu af ensku úrvalsdeildinni og heitir ekki Emile Heskey.
Býst þó við að á morgun verði Babel ennþá á sýnum stað og Jones komi ekki til okkar.
James Tomkins frá West Ham: Mirror slær því upp að Benitez hafi áhuga á að fá þennan unga bakvörð frá West Ham. Veit voðalega lítið um þennan leikmann utan að hann er nokkuð efnilegur og auðvitað enskur. Efa að hann myndi leysa neinn vanda á þessu tímabili samt enda ekki svo langt í að Johnson komi aftur. Þar að auki eigum við tvo unga pjakka + Degen sem geta spilað hægri bakvörð ásamt því að Tomkins nafnið er auðvitað upptekið hjá klúbbnum.
Tilboði Birmingham í Babel ekki tekið: Sky segir að Liverpool hafi aftur hafnað tilboði frá Birmingham í Ryan Babel, líklega er ekki stefnt að því að selja neinn nema það komi annað í staðin, enda ekki endalaust hægt að minnka og veikja hópinn.
Hicks á Anfield í gær: Gleðigjafinn Tom Hick mætti á Anfield í gær og hafa í kjölfarið sprottið um hinar ýmsu sögur í tengslum við það. Ég nenni ekki að finna linka á þetta en eftir að stuðningsmenn sáu hann á Anfield í gær var hrópað í tvo tíma Yanks Out fyrir utan Anfield eftir leik. Einhversstaðar las ég að hann hefði verið drukkinn á leiknum í gær :) og annarsstaðar las ég að hann væri kominn til Englands til að ræða við forráðamenn Juventus útaf Benitez.
En ég las ekki á neinum stað orðróm um að hann hefði bara mætt á Anfiled til að horfa á leik hjá liðinu sem er í hans eigu! Segir kannski eitthvað um þá að það er alltaf stórfrétt þegar þeir mæta á leik, ég myndi varla missa af æfingu ætti ég Liverpool!
Owen á förum: Ekki að þetta skipti okkur máli á neinn hátt þá er meira gaman af svona fréttaflutning þeirra megin heldur en okkar megin svona til tilbreytingar.
En vonum það besta og eitthvað hressandi gerist fyrir lokun þessa leikmannaglugga, við höfum núna selt fyrir mun meira heldur en við höfum keypt og það er pirrandi miðað við gengi liðsins á þessu tímabili.






Samkvæmt 




Við getum sagt sem svo að ef það er stjórninni að kenna að við erum ekki með meistaralið í höndunum, þá hlýtur það að skrifast á Rafa Benítez að við séum með lið sem kemst ekki upp úr riðlinum í Meistaradeild, á erfitt með að halda sér meðal sjö efstu liða í deildinni og getur ekki klárað Reading yfir tvo leiki í bikarnum.



Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Reading frá því þeir léku í Úrvalsdeildinni. Eins og okkur flestum ætti að vera kunnugt er Reading sannkallað “Íslendingalið” og eigum við þrjá fulltrúa sem reikna má með að taki þátt í leiknum á morgun, auk þess sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson gengur til liðs við þá eftir morgundaginn.
Brynjar Björn Gunnarsson, Brilli, var ekki mikið í liðinu hjá Rodgers en frá því að skipt var um stjóra hefur Brynjar leikið stórt hlutverk, sem djúpur miðjumaður eða hafsent. Myndi tippa á að hann yrði djúpt á miðjunni að kljást við Captain Fantastic.
Því miður tókst þó ekki þar að leiða hann frá villu sinn
Leikur morgundagsins er alls ekki léttur! Reading á að geta miklu betur en staða þeirra segir í deildinni, í liði þeirra eru reynslumiklir leikmenn sem hræðast ekki að mæta stórliði, og ungir hungraðir leikmenn sem munu leggja sig 150% fram í svona leik, fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar.