Liðið komið – Torres byrjar!

Jæja, þá er byrjunarliðið komið í ljós og er það sem hér segir:

Reina

Carragher – Kyrgiakos – Agger – Insúa

Kuyt – Lucas – Mascherano – Benayoun

Voronin – Torres

**Bekkur:** Cavalieri, Ayala, Darby, Spearing, Aquilani, Babel, Ngog.

Allir aðrir eru veikir eða meiddir. Ótrúlegt.

Liðið er ágætlega sterkt. Við vitum ekkert hvernig Kyrgiakos stendur sig í svona stórum leik, né hvernig Carra höndlar bakvörðinn í þetta skiptið. Þá verður Insúa að standa sig betur gegn Gouvou en hann gerði í fyrri leiknum.

Þegar framar er komið á völlinn eru svo menn eins og Kuyt, Benayoun og sérstaklega Voronin sem einfaldlega verða að stíga upp í þessum leik. Torres er á sínum stað og við vonum að hann geti haldið sér heilum í þessum leik. Ef hann er í alvöru leikfær getum við vel unnið þennan leik, ef hann fer snemma útaf meiddur eins og Gerrard gerði í fyrri leiknum óttast ég að það gæti gert út um þennan leik fyrir okkur.

Að gefnu tilefni minni ég menn á markið sem Gerrard skoraði gegn Olympiakos fyrir fimm árum þegar allt virtist tapað. Hverjir bjuggu það mark til fyrir hann? Jú, Mellor og Pongolle. Voronin getur þetta alveg.

Koma svo! Áfram Liverpool!

52 thoughts on “Liðið komið – Torres byrjar!

  1. 1
    Addorri says:

    Liðið hjá Lyon: Lloris, Réveillère, Cris, Toulalan, Cissokho, Makoun, Källström, Pjanic, Bastos, Lisandro, Gomis.

    Toulalan og Cris í hafsentum… við verðum að nýta okkur þetta.

    Thumb up 0
  2. 2
    Finnur says:

    Ánægjulegt að sjá Agger þarna.

    Thumb up 0
  3. 3
    Gummi says:

    Djöfulsins spenna… meistari Torres verður að gjöra svo vel og sjá um þetta fyrir okkur.

    Thumb up 0
  4. 4
    Grétar Amazeen says:

    Það er klárt að Torres spilar ekki allan leikinn. Ég ætla rétt að vona að þegar hann fer útaf þá verði Ngog settur inn, ekki f***ing Babel. Svo væri gaman að sjá Aquilani spila eitthvað.

    Thumb up 0
  5. 5
    Einar Örn says:

    Hérna er Voronin í síðasta Meistaradeildarleik sínum gegn frönsku liði.

    Hann getur þetta. Sjá leikskýrsluna okkar.

    Ég er á leiðinni á barinn og er kominn með í magann. Okkar menn hafa nú komið manni á óvart í Meistaradeildinni áður, þannig að maður er sæmilega bjartsýnn.

    Thumb up 0
  6. 6
    Ásmundur says:

    Ég mæli með þessu myndbandi svona rétt fyrir leik http://www.youtube.com/watch?v=7dbGNgeMLH4

    Thumb up 0
  7. 7
    Jónas says:

    Það voru reyndar Carragher og Mellor sem bjuggu til markið hans Gerrards. En Pongolle og Mellor áttu hin mörkin með húð og hári.

    Thumb up 0
  8. 8
    daníel says:

    Þetta lið á að geta unnið Lyon.

    YNWA!

    Thumb up 0
  9. 9
    júlli says:

    0-1. Torres með markið eftir glæsilegan þríhyrning við Voronin.
    In Rafa we trust!

    Thumb up 0
  10. 10
    Brúsi says:

    spá júlli eða gerðist þetta ? er ekki að horfa btw …

    Thumb up 0
  11. 11
    Jónas says:

    Það væri allavega fínt ef Torres fengi færi í stað Voronin. Djöfulli var þetta mikið dauðafæri hja tagla !

    Thumb up 0
  12. 12
    Böddi says:

    veit einhver um link til að sjá leikin

    Thumb up 0
  13. 13
    Hafliði says:

    Já vá júlli takk fyrir þetta, ég hélt við værum komnir yfir :(

    Thumb up 0
  14. 14
    Jónas says:

    Þessi tengill er fínn. Þarft samt að hafa TVU player.

    tvu://21500

    Thumb up 0
  15. 15
    Jói says:

    Ég held að það sé nokkuð ljóst að Voronin sé-var-verður- aldrei nógu góður fyrir Liverpool!
    Vona að hann troði þessu uppí mig í seinni hálfleik, en sé það ekki gerast :/

    Thumb up 0
  16. 16
    Kristinn Jóhannsson says:

    Eiga ekki að vera 2 lið inni á vellinum ?

    Thumb up 0
  17. 17
    fowler says:

    Þetta er snilldarsetning á BBC:

    From Jonny in Birmingham, via text on 81111: “I like seeing Voronin play. It gives me hope that I might one day play in the Champions League.”

    Thumb up 0
  18. 18
  19. 19
    Jónas says:

    Rosalega er þessi leikur dæmdur til að enda 0-0 !

    Thumb up 0
  20. 20
    Sæmi says:

    Hvenar kemur karlinn með inná skiptingar, á hvaða mínútu. Eru veðmál í gangi? Spái 73 mín vona 60 mín néi meinti 45 mín

    Thumb up 0
  21. 21
    sos says:

    Shit hvað við erum ekki með NEINA MIÐJU!

    Thumb up 0
  22. 22
    Árni Jón says:

    Hvað er málið? Þurfa þessir jeppar ekki að leggja eitthvað á sig til að reyna að vinna þennan leik?

    Thumb up 0
  23. 23
    Sæmi says:

    Ekki hægt að treysta á jafntefli hjá Ungverjunum Fiorentina 4 : 1 Debrecen

    Thumb up 0
  24. 24
    gisli haukur says:

    við erum ekki heppnir í dag :(

    Thumb up 0
  25. 25
    Hafliði says:

    Hvað verstu að segja Gísli Haukur? :)

    Thumb up 0
  26. 26
    Sæmi says:

    Grikkinn að kúka á sig, Reina reddaði því með augnhárunum

    Thumb up 0
  27. 27
    Hafliði says:

    Ég vil fá Aquilani inná núna strax!

    Thumb up 0
  28. 28
    Jónas says:

    Europa Cup here we come !

    Thumb up 0
  29. 29
    sos says:

    Á semsagt ekki að komast upp úr riðlinum? Er það planið?

    Thumb up 0
  30. 30
    gisli haukur says:

    “Alcohol sponsorship is banned in France,” writes Rob Sutton. “That is why Liverpool have none tonight. Lyon have none because they are French and no one wants to sponsor them.”

    tekið héðan :) hægt að brosa yfir þessu öllu http://www.guardian.co.uk/football/2009/nov/04/champions-league-lyon-liverpool-latest

    Thumb up 0
  31. 31
    Árni Jón says:

    Well ef Lyon heldur jöfnu sem og Fiorentina vinnur eru Lyon með 10 stig, við með 4 og Fio með hvað 9.
    M.ö.o. þá eru þeir að tryggja sig nánast áfram.
    Ekki nema von að þeir liggi svona aftarlega ….. en eiga svo drulluflottar skyndisóknir …

    Thumb up 0
  32. 32
    Hafliði says:

    Ryan Babel!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

    Thumb up 0
  33. 33
    daníel says:

    Djöfull skuldaði hann þetta mark!! Baaaaaabel. Þarna þekki ég þig.

    Thumb up 0
  34. 34
    gisli haukur says:

    FUCKKKKKK YEAH

    Thumb up 0
  35. 35
    Björn Æ says:

    RYAN BABEL ÞÚ ERT YNDISLEGUR!

    Thumb up 0
  36. 36
    FHS says:

    Þetta getur hann!

    Thumb up 0
  37. 37
    Árni Jón says:

    Takk fyrir túkall !!!!
    Maggi: hvað núna? Annar drullupósturinn um Babel væntanlegur?

    Thumb up 0
  38. 38
    Björn Æ says:

    Djöfulsins super sub getur þessi drengur verið stundum.

    Thumb up 0
  39. 39
    Jónas says:

    Sjieeetttt, hvaðan kom þessi gerrard negla !??!

    Thumb up 0
  40. 40
    árni says:

    Ertu að grínast með markinu !, ég ætlaði að fara að tala um hversu liðið væri stein gelt : )

    Thumb up 0
  41. 41
    Jói says:

    Hver sagði að Babel gæti ekki neitt?

    Thumb up 0
  42. 42
    Gunnar says:

    Ætli Babel fái að byrja inn á í næsta leik????????????

    Nei örugglega ekki.

    Thumb up 0
  43. 43
    Sæmi says:

    Má ekki taka fleiri en 3 menn samtals útaf en skít með það BABBBBBBBBBELLLLLLLLL
    Vinnnnnnnnnnnnnnnikkkkkkkklaðann

    Thumb up 0
  44. 44
    Árni Jón says:

    ok ok. bara eitt spark í leik gott. En þú hittir þó markið Babel …

    Thumb up 0
  45. 45
    Hafsteinn Jökull says:

    Haha .. gaman að sjá menn sem hafa hraunað yfir liðið og menn einsog babel.. og er núna snöggir að gleyma þegar greyið skorar.

    Ég hef alltaf trúað á hann sem leikmann og þetta er hans tækifæri að stíga upp núna.

    Thumb up 0
  46. 46
    daníel says:

    Babel hefur oft verið slakur en hann hefur verið ótrúlega einbeittur síðan hann kom inná í kvöld, farið í alla bolta til að vinna og um leið og hann hefur fengið boltann í lappirnar þá hefur hann bara séð einn hlut: markið.

    Allt annað yfirbragð á honum miðað við t.d voronin sem virkaði einfaldlega hræddur og stressaður.

    Thumb up 0
  47. 47
    Árni Jón says:

    Rólegur Daníel ….
    Babel er mjög slakur leikmaður en hann hitti á það núna.
    Ég meina Voronin sem er mjög slakur líka er tekinn fram yfir Babel í byrjunarliðið …. þetta mark svosem hjálpar honum ekki neitt rosalega.
    Viltu rifja upp vörslu Dudek í Tyrklandi?

    Thumb up 0
  48. 48
    Hafliði says:

    Jæja uefa cup here we come :(

    Thumb up 0
  49. 49
    Jónas says:

    það gat ekki verið að við héldum hreinu. pifff

    Thumb up 0
  50. 50
    sos says:

    Hélt ég myndi aldrei segja þetta, en rekum Benitez. WTF???????

    Thumb up 0
  51. 51
    daníel says:

    Árni: Nokkuð sammála því, eins og þú sérð ef þú lest aftur það sem ég sagði. En í leiknum í dag hefur hann verið mjög góður og komið sér í flott færi. Hefur það sem Voronin vantaði, áræðni og kjark.

    Thumb up 0
  52. 52
    Árni Jón says:

    Já þannig fór það.
    UEFA Cup here we come ….

    Thumb up 0