Liðið komið, Lucas byrjar

Jæja, landsleikjahléinu er aaaaaalveg að ljúka, innan við klukkutími í leiki helgarinnar og byrjunarliðið hjá okkar mönnum hefur verið kunngjört. Lucas er klár í slaginn í dag en Javier Mascherano missir alveg af. Liðið er sem hér segir:

Reina

Johnson – Carragher – Skrtel – Insúa

Lucas – Gerrard
Kuyt – Benayoun – Riera
Torres

**Bekkur:** Cavalieri, Degen, Dossena, Kyrgiakos, Spearing, Voronin, Ngog.

Flott lið, okkar sterkasta án JM á miðjunni býst ég við, og svo er broslegt að sjá þá D-bræður Egen og Ossena á bekknum.

Þessi dagur leggst vel í mig. Tottenham vinnur Manchester United, Stoke heldur jafntefli við Chelsea, Arsenal rúlla Man City upp og við tökum skotæfingu á Burnley (og vinnum). Þið lásuð það hér fyrst!

10 thoughts on “Liðið komið, Lucas byrjar

  1. 1
    Svanur says:

    Eruð þið ekki að grínast með þennan varamannabekk!

    Thumb up 0
  2. 2
    Jónsi says:

    Hvernig er með Babel er hann ekki hópnum af því að hann er meiddur, ekki nógu góður, eða bara verið að refsa honum fyrir að væla í fjölmiðlum ?

    Thumb up 0
  3. 3
    Björgvin says:

    Ég held bara að ég hafi ekki séð annan eins varamannabekk í svona 15 ár. Hvernig í ósköpunum eiga þessir kappar að bæta einhverju við ef þeir slysast inná?

    Thumb up 0
  4. 4
    Ingi Björn says:

    veit einhver um góðan link á leikinn?

    Thumb up 0
  5. 5
  6. 6
    Höddi B says:

    Þetta er það sem Reina átti við, þegar hann var að tala niður vonir LFC á titlinum í vor. Það vantar alla breidd í þennan hóp. Það er lítið um gæði á bekknum, nema þá Dossena. Er einhver með góðan link á leikinn??

    Thumb up 0
  7. 7
    ArnarÓ says:

    Þetta er ágætt hérna á sopcast … sop://broker1.sopcast.com:3912/74175

    Thumb up 0
  8. 8
    Jói says:

    Benayooouuuuuuuunnnnnn!!!!

    Thumb up 0
  9. 9
    ArnarÓ says:

    vá tveir klobbar

    Thumb up 0
  10. 10
    ingimar says:

    einhver með góðan link á netinu til að horfa á leikinn?

    Thumb up 0