Liðið gegn Stoke – Ayala og Carra miðverðir

Það vantar ekki að gróa á leiti sé í stuði… einhverjir miðlar tala um að Benitez hafi hætt fyrir þennan leik (eða sé af því, nenni ekk að lesa þetta). En nóg af drykkjulátum Gróu.

Liðið er komið og það sem helst vekur athygli er að það er 18 ára barn í miðverðinum að fara takast á við lurkana í Stoke og Benayoon kemur afar lítið óvænt inn í liðið á kostnað Babel. Riera er svo kominn á bekkinn ásamt N´gog.

Reina

Johnson – Carragher – Ayala – Insua

Lucas – Mascherano
Kuyt – Gerrard – Benayoon
Torres

Bekkur: Cavalieri, Dossena, Voronin, Riera, Ngog, Babel, Kelly

Skítt með hvaða börn við stillum upp á móti Stoke og hvað er að gerast innan herbúða okkar manna, sigur á Stoke og ekkert annað.

This entry was posted in Liverpool. Bookmark the permalink.

36 Responses to Liðið gegn Stoke – Ayala og Carra miðverðir

  1. 1. Macca says:

    veit einhver hvernig meidslamalin hja Riera eru? ef ad hann er 100% heill ta er natturulega bara bull ad vera med mannin a bekknum.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  2. 2. Davíð Aðalsteinsson says:

    Miðað við að hann var ekki á bekknum síðast þá er hann varla 100% heill en annars er ég mjög sáttur við liðið, við vinnum 2-0 með mörkum frá Youssi og Torres :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  3. 3. ke says:

    2-0, Bennijón með bæði.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  4. Eina sem ég veit er það að allt annað en 3 stig mun gera mig og líklega marga aðra geðveika. Annars er ég ekkert sérlega bjartsýnn. Spila á móti líkamlega sterku liði sem leggur mikið uppúr föstum leikatriðum eða kannski ALLT og við með einn ungan og óreyndan í miðverðinum ásamt því að vörnin hefur verið allt annað en sannfærandi undanfarið.

    En trúi ekki öðru en að við drullumst til að vinna og þá helst 2-3 núll.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  5. 5. Elli says:

    Það voru aldrei nein meiðsl í gangi hjá Riera. Benitez talaði um að hann væri ekki í nógu góðu formi og því hafi hann ekki spilað síðasta leik. Guð hjálpi okkur með Ayala í miðverðinum. Bara vonandi að við skorum nógu mörg mörk.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  6. 6. Babu says:

    Þeir töluðu nú um það á LFC TV að hann (Riera) væri aðeins tæpur enda meiddur um síðustu helgi. Svo er ég nú bara ekkert viss um að hann sé eitthvað betri en Benayoon.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  7. 7. Grétar Amazeen says:

    Er einhver með hlekk á leikinn sem er ekki sopcast?

    Thumb up 0 Thumb down 0
  8. 8. halldor says:

    koma svo med slóðina!!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  9. 9. Grétar Amazeen says:

    Torres!!!!!!!!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  10. 12. Egill says:

    Veit einhver, er hægt að horfa á netinu…

    Thumb up 0 Thumb down 0
  11. 14. Hafliði says:

    Glen Johnson skorar fyrsta mark sinn á Anfield með hjólhestaspyrnu! Flott byrjun hjá honum :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  12. 15. Beggi says:

    Jæja flottur leikur það sem af er ;) og Glen að sýna að hann kann allveg að klára dauðafæri :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  13. 16. Grétar Amazeen says:

    Það er allt annað að sjá Liverpool í dag! Johnson sýnir líka af hverju það var svona hár verðmiði á honum.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  14. Tillaga að gælunafni fyrir Glen Johnson: Glennarinn!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  15. 18. Bobby says:

    Glen Johnson, toppleikmaður. Sannar að verðmiði er afstætt hugtak :P

    Thumb up 0 Thumb down 0
  16. 19. Addi says:

    manure að tapa 1-0

    Thumb up 0 Thumb down 0
  17. 20. Lalli HJALP (mexico) says:

    eg er i mexico ad reina ad horfa a leikinn. thad er enginn bar med hann og eg er dottinn inna netcafe til ad horfa. takk fyrir linkana, en veit eitthver um einhvern annan link? eg nae bara 1min af linkunum sem eru nu thegar og svo kemur ad eg thurfi ad borga :s (ef eitther veit, hjalp!)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  18. 21. kenny says:

    það er ógæfa að tilkynna það að stórliðin eru að tapa, þeir vinna alltaf á endanum.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  19. 22. Hafliði says:

    Smá off topic, eruð þið að lenda í því (sem eruð að horfa á netinu) að eftir smá stund stoppar útsendingin og texti segir að hámarksfjöldi áhorfenda frá viðkomandi landi sé kominn? Óþolandi helví…. alveg hreint.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  20. 23. Hafliði says:

    Greinilega sama “streimis bullið” í Mexico :(

    Thumb up 0 Thumb down 0
  21. 24. Grétar Amazeen says:

    Er að lenda í þessu sama Hafliði. Algerlega óþolandi.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  22. 25. Sævar Helgi says:

    Maður getur ekki gert miklar kröfur ef maður greiðir ekki fyrir útsendinguna. Hún er helvíti fín á Stöð 2 Sport þessa stundina.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  23. Hérna eru ýmsir tenglar á leikinn:

    http://www.myp2p.eu/broadcast.php?matchid=45170&part=sports

    Flestir krefjast samt að maður seti upp ákveðinn player á vélina, t.d SopCast.

    Ef einhver linkur er þarna fyrir “Veetle”, þá mæli ég með því. Maður sækir plugin fyrir browserinn og þetta virkar vel og fín gæði.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  24. 27. Hafliði says:

    Skil þig Sævar, ég get bara ekki með góðu móti látið 365 taka mig í ósmurt ras……. :) Svo er auðvitað alveg þræl fyndið að síða eins og justin.tv sé að rukka 10 dollara á mánuði fyrir “þjónustuna” :) Aníhú, okkar menn eru að sýna fyrirtaks frammistöðu í kvöld, sem er auðvitað bara gaman.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  25. 28. Bobby says:

    Flottur kolkrabbi hjá Kuyt!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  26. 29. Grétar says:

    Nákvæmlega það sama að gerast hjá mér, Hafliði.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  27. 30. Jóhannes says:

    Stoke sér ekki til sólar, ekkert frekar en við Íslendingar síðustu dagana. Væri gaman að sjá Lucas setja mark, eða Babel af bekknum.

    Sebastian Leto, fyrrum Liverpool maður, var að skora með Panathinakos gegn Atl. Madrid, ágætis vinstri fótar skot frá vinstra vítateigshorninu.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  28. 31. Sigurgeir says:

    svo vitnað sé í vitleysingana sem ég er að hlusta á “absolot faboulesss” á einhverju tungumáli sem enginn skilur :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  29. 32. FHS says:

    Magnað…utd. að tapa og við að vinna…ekki til betri tilfinning

    Thumb up 0 Thumb down 0
  30. 33. fowler says:

    JÆJA – ÞVÍLÍK VEISLA.

    Hvað segja þeir neikvæðustu nú – eftir tap UTD á móti Burnley ! Eitthvað hefði nú heyrst ef við hefðum tapað þar ! Nú er UTD væntanlega ekki að fara að vinna titil og geta nákvæmlega ekki neitt ! Sem er náttúrulega reyndin.

    SNILLD !

    Thumb up 0 Thumb down 0
  31. 34. dagur says:

    Lucas. Þarna er hann mættur!!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  32. 36. Beggi says:

    Gísli Takk fyrir linkinn, Snilldarlesning kaldhæðninn er svo mikil, og sérstaklega fær Owen greyið skotin á sig i wonder why :D

    Thumb up 0 Thumb down 0