• Forsíða
  • Kop.is á Twitter
  • EOE.is
  • Liverpool.is
  • LFCHistory.net
  • LFC.tv

Liverpool Bloggið

íslensk aðdáendasíða besta liðs í heimi

Veitur »
Færslur
Ummæli
« Espanyol í dag | Aðalsíða | Alberto Aquilani. »

Slúður og annars konar bull

Dags.: 03.08.2009 klukkan 13:44. Höf.: Kristján Atli

Hér er góð ástæða þess að ég elska hata silly season:

Daily Mail: Real eru þreyttir á að eltast við Xabi Alonso og ætla að kaupa Steven Defour í staðinn.

Telegraph: Alonso segist feginn að viðræðurnar við Real Madrid gangi vel.

Tvær fréttir með algjörlega andstæðu inntaki, birtar á netinu með innan við fimmtán mínútna millibili. Báðar þykjast hafa innanbúðarupplýsingar, sem segir okkur að allavega annar miðillinn er 100% að ljúga. Ég myndi skjóta á að Telegraph-fréttin sé réttari þar sem þeir vitna beint í óljós tilsvör Alonso um málið (hann segir í raun ekkert nýtt) en það er sama, maður getur fengið mígreni af þessari hringavitleysu stundum. Svona fimm sinnum á dag sannfærist maður um að hann sé að koma, fara, koma, fara …

Já, og Liverpool töpuðu æfingaleik í gær. 3-0. Sem þýðir víst að liðið getur ekkert, á langt í land með að ná einhverjum árangri og við getum í mesta lagi vonast til að ná fjórða sætinu í vetur. Það er kannski vert, áður en fólk tapar sér í svartsýninni, að minna menn á sumarið 2006. Þá tapaði Liverpool 5-0 fyrir Mainz í æfingaleik. Níu dögum seinna vann liðið 2-1 sigur á Chelsea í leiknum um Samfélagsskjöldinn og lauk því tímabili með því að spila til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Þannig að æfingaleikir segja andskotann ekki neitt, þeir eru bara æfing.

Ég endurtek, og vona að allir segi þetta með mér: ÆFINGAleikir eru bara æfing og því engan veginn marktækir fyrir tímabilið.

Ég felli enga dóma um liðið fyrr en í fyrsta lagi eftir 3-5 umferðir í deildinni. Ég myndi segja að í lok ágúst/byrjun september sé fyrsti möguleiki á raunhæfu mati á því hvert liðið stefnir í vetur. Þá verður leikmannaglugginn lokaður og fjórir deildarleikir búnir þannig að við getum séð hvernig liðið byrjar og, það sem mikilvægara er, hvaða leikmenn eru komnir eða farnir. Slökum aðeins á þangað til.

Fl.: Almennt, Slúður | 15 Ummæli

15 Ummæli við “Slúður og annars konar bull”

  1. 1valli
    þann 03.08.2009 kl. 14:10

    Jæja Rafa búinn að koma á fundi við Real og okkar menn búnir að hitta Real menn og byrjað að ræað um Alonso, ok seljum hann en ekki fyrir minna en 30 milljónir ekki eyri minna, nú annars látum við hann bara spila með okkur næsta tímabil… þá sér hann líka hvað það er vittlaust að fara…

    Thumb up 0 Thumb down 0

  2. 2Lolli
    þann 03.08.2009 kl. 14:21

    Ég segi að við eigum að krefjast 33 milljóna fyrir alonso og ekki eyri minna! Pínum þetta spænska skítalið aðeins! Samt sagt að það hafi verið samþykt 27 milljóna tilboð hnuss.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  3. 3Júlli
    þann 03.08.2009 kl. 15:04

    Sammála Kristjáni Atla. Æfingaleikir eru til að prófa leikmenn og leikkerfi. Úrslit í æfingaleikjum segja ekkert til um það hvernig liðið verður í vetur.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  4. 4einare
    þann 03.08.2009 kl. 15:18

    27 mills fyrir Alonso sem á mörg góð ár eftir eru smáaurar. Það má alveg deila um það hvort það eigi að leyfa Alonso að fara eða að halda honum, líkt og Villa gerði við Barry í fyrra. Ég er hins vegar á því að þegar menn vilja fara þá á að leyfa þeim það, þar sem það er félaginu ekki til góðs að halda óánægðum mönnum hjá félaginu.

    Ef Alonso fer þá er alveg klárt að Liverpool verður að bæta við sig öflugum spilandi miðjumanni og þeir eru ekki margir á lausu. Þá stefnir allt í að Liverpool þurfi jafnframt að fara fjárfesta í varnarmönnum í ljósi þess að Arbeloa er farinn og Dossena hugsanlega á leið burt. Þá er Aurilio þessa stundina sem oft áður í meiðslum. Eins og staðan er í dag þá er liðið búið að missa Hyypia, Pennant, Arbeloa og fengið Johnson. Vissulega styrkir Johnson liðið en brotthvarf hinna minnka breiddina og ef Johnson meiðist þá er liðið í töluverðum vandræðum þar sem Degen er vægast sagt varla boðlegur í ensku 1. deildina. Ég hef trú á að það eigi eitthvað eftir að ganga í þessari viku í leikmannamálum, hvort sem um verði að ræða kaup eða sölur.

    Damn, það er allt að fara gerast….tæpar tvær vikur í fyrsta leik!!!!!……:)

    Thumb up 0 Thumb down 0

  5. 5Júlli
    þann 03.08.2009 kl. 16:00

    http://www.lfconline.com/news/loadnews.asp?cid=TMNW&id=455597

    Thumb up 0 Thumb down 0

  6. 6Kalli Ing
    þann 03.08.2009 kl. 16:12

    Ég er ekki sammála að 27 mill séu smáaurar, þetta er helvítis hellingur af peningum. Áður en RM sprengdi öll velsæmismörk í peningaaustri þá þótti mörgum allt yfir 20 mill vera því sem næst ofborgun. Er samt sammála því að það á að halda sig við verðmiðann sem settur var á manninn, þá sérstaklega í ljósi að það er um RM að ræða. Þeir geta bara ekki sprengt allt verð uppúr öllu valdi og fara svo að prútta síðar, nósörríbob.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  7. 7Macca
    þann 03.08.2009 kl. 16:14

    30 millur plus huntelaar, gago eda diarra finnst mer vera mjog sanngjart fyrir alonso, verdum vid ekki ad reyna ad fa leikmann med i tennan dil?

    Thumb up 0 Thumb down 0

  8. 8Don Roberto
    þann 03.08.2009 kl. 16:54

    Ég er sláttur við að Alonzo fari, og ef hann vill það þá fari hann bara… ekkert mál, á samt eftir að sakna hans, en 30 millz og menn í kaupbæti og ég er sáttari. Held samt að Hr. Bentíez sé með annað tromp í hendinni…..

    Avanti Liverpool – RAFA – http://www.kop.is

    Thumb up 0 Thumb down 0

  9. 9Don Roberto
    þann 03.08.2009 kl. 16:57

    ….bíddu við enn batnar þetta !!!!! http://goal.com/en/news/12/spain/2009/08/03/1419386/real-madrid-agree-xabi-alonso-deal-report

    Avanti Liverpool – RAFA – http://www.kop.is

    Thumb up 0 Thumb down 0

  10. 10Don Roberto
    þann 03.08.2009 kl. 17:04

    sorry hvað ég er langt á eftir heheheh OHOHOHOHOHOHO en svona er lífið létt og skjémtilegt heheheh

    http://www.telegraph.co.uk/sport/football/leagues/premierleague/liverpool/5963888/Liverpool-manager-Rafael-Benitez-insists-he-wants-Xabi-Alonso-to-stay-at-Anfield.html

    Avatnti Liverpool – RAFA – http://www.kop.is

    Thumb up 0 Thumb down 0

  11. 11Viktor EB
    þann 03.08.2009 kl. 23:22

    Vill ekki sjá neina aumingja frá RM. Selja Alonso,,,, Bless og takk,,, move on! Kaupa hafsent og og reyna svo við Silva!!!???? Er ekki fáránlegt að Silva sé metinn á meira en Torres!!!!????? Hvaða helvítis rugl er þetta. Kreppa eða ekki kreppa this is BS.

    http://www.dailymail.co.uk/sport/football/article-1204097/Liverpool-target-Steven-Defour-eyes-Anfield-Reds-ponder-Xabi-Alonso-replacement.html?ITO=1490

    Thumb up 0 Thumb down 0

  12. 12Sölvi
    þann 04.08.2009 kl. 02:37

    11 “Ég heimta hámarksárangur og hámarksárangur næst aðeins, með dugnaði og hámarkseinbeitingu. Og það skal enginn andskotans djöfulsins helvítis liðsmaður sýna mér það að hann sé ekki að gera sitt besta. Ég vil enga aumingja í mitt lið! Aumingjar geta farið núna!” (Jón Gnarr a.k.a Rafael Benitez) http://www.youtube.com/watch?v=H85z3nlX-To

    Þetta er mjög líklega ræðan sem Rafa hélt yfir liðinu og Xabi Alonso eftir leikinn gegn Espanyol. :)

    Thumb up 0 Thumb down 0

  13. 13Á.G.Á.
    þann 04.08.2009 kl. 07:59

    Jæja, ef eitthvað er til í þessu þá er bara ekki neinn af okkar central miðjumönnum sem við notuðum síðasta tímabil ánægðir. http://www.imscouting.com/global_news_item.aspx?id=2735 Ekki það að sala á honum breyti öllu fyrir okkar lið, en tel okkur ekki mega við meiri breytingum á miðjunni. Spearing er kannski bara maðurinn til að fylla skarð Lucasar.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  14. 14Krista
    þann 04.08.2009 kl. 09:49

    Fyrst vildi Kristján Atli bíða og sjá hvernig liðinu gengi gegn Espanyol því það væri alvöru prófraun. Sú prófraun fór illa og þá eigum við að meta liðið eftir 3-5 leiki. Ef sú prófraun fer illa þá eigum við væntanlega að sjá hvernig nóvember fer því liðið er enn að ná sér eftir erfiðar þrekæfingar Benitez í júlímánuði.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  15. 15carlito
    þann 04.08.2009 kl. 10:45

    Þetta er það sem maður vill sjá, að Lfc gefi ekkert eftir við rass-sleikjurnar í Real madrid. Stoltur af mínu liði ef rétt reynist. http://www.visir.is/article/20090804/IDROTTIR0102/823078796/-1

    Thumb up 0 Thumb down 0



  • Vantar þig aðstoð við framtalið?
    Skattframtöl, ársreikningar, bókhald, VSK, laun, stofnun fyrirtækja. Fagleg vinnubrögð á sanngjörnu verði.
    534-0040 | www.skyrslur.com
  • Nýjustu Ummæli

    • Lausnin á slæmu gengi fundin (30)
      • einare: Mér myndi lítast ágætlega á McLeish eða...
      • Elmar Diego: Úff…veit ekki með Alex...
      • kristó: takk
      • Hafliði: Jæja, slúðrið í bresku pressunni er...
      • Kristján Atli: Hafliði – Stundum...
      • Kristján Atli: Gunnar Ingi, ertu ekki að ná...
      • Hafliði: Ef kommentum er eytt, er þá ekki...
    • Lille 1 – Liverpool 0 (89)
      • Jóhann: Ég er hjartanlega sammála þér Maggi og...
      • Gunnar Ingi: …og til að fyrirbyggja...
      • Gunnar Ingi: Já, ef allir væru nú jafn frábærir...
  • Liverpool Bloggið

      Um Síðuna

      Ritstjórn:
      Einar Örn | Kristján Atli

      Bloggarar:
      Magnús Agnar | SSteinn
      Magnús Þór | Babu

      Paul Tomkins » Rótering Rafa

      Auglýsingar á Kop.is
  • Næsti leikur

      Liverpool - Portsmouth
      Enska deildin 15.mars
      Anfield
      Kl. 20:00
    • Tenglar

      • BBC Football
      • Fótbolti.net
      • icLiverpool
      • Leikjaprógram
      • LFC History
      • Liverpool Echo
      • Liverpool.is
      • LiverpoolFC.tv
      • Meiðslalisti
      • NewsNow
      • RedAndWhiteKop
      • SkySports
      • Soccerbot
      • SoccerNet
      • Staðan í enska boltanum
      • Tölfræði í enska boltanum
      • The Guardian
      • This Is Anfield
      • Vísir.is – brot úr leikjum
      • YNWA.tv
  • Nýjustu Færslur

    • Lausnin á slæmu gengi fundin
    • Lille 1 – Liverpool 0
    • Liðið gegn Lille – Babel og Johnson byrja
    • Lille
    • Ný færsla
    • Wigan – Liverpool 1-0
    • Liðið gegn Wigan
    • Wigan á morgun
    • Ekkert Meistaradeildar umspil
    • Landsleikir gærkvöldsins
  • Flokkar

    • Almennt (185)
    • Auglýsingar (21)
    • Æfingaleikir (9)
    • Þjálfaramál (70)
    • Deildarbikarinn (8)
    • Draumaliðsleikur (6)
    • EM 2008 (11)
    • Enska bikarkeppnin (25)
    • Enski Boltinn (165)
    • Evrópudeildin (2)
    • Fjölmiðlar (29)
    • HM 2006 (48)
    • HM Félagsliða (7)
    • Kannanir (4)
    • Landslið (82)
    • Leikmannakaup (252)
    • Leikmenn (274)
    • Leikskýrslur (306)
    • Leikvangur (11)
    • Liðsuppstilling (114)
    • Liverpool (630)
    • Markaðsmál (10)
    • Meiðsli (98)
    • Meistaradeildin (140)
    • Myndbönd (15)
    • Sjónvarp (3)
    • Slúður (314)
    • Topp10 (2)
    • Um síðuna (44)
    • Upphitun (411)
    • Vangaveltur (306)
    • Varaliðið (3)
    • Veðmál (4)
  • Færslusafn

      2010
      Jan Feb Mar  
      2009
      Jan Feb Mar Apr
      May Jun Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2008
      Jan Feb Mar Apr
      May Jun Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2007
      Jan Feb Mar Apr
      May Jun Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2006
      Jan Mar Apr May
      Jun Jul Aug Sep
      Oct Nov Dec  
      2005
      Jan Feb Mar Apr
      May Jun Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2004
      Jan Feb Mar Apr
      May Jun Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2003
      Feb Mar Jul Aug
      Sep Oct Nov Dec
      2002
      Jan Jul Aug Sep
      Oct Nov Dec  
      2001
      Jul Nov    
      2000
          May Aug

Liverpool Bloggið © 2010 Öll réttindi áskilin.