Liverpool – Taíland
Dags.: 22.07.2009 klukkan 14:13. Höf.: Einar Örn
Ég á flug til Bangkok á morgun. Liverpool eru að spila í Bangkok í dag. Fyrir Liverpool aðdáanda, þá hlýtur þetta að vera eitt magnaðasta skipulagsklúður sem ég hef vitað um.
Allavegana, ég er ekki að horfa á leikinn, en þið getið spjallað um hann við þessa færslu.
Byrjunarliðið er svona: Cavalieri, Degen, Agger, Carragher, Insua, Kuyt, Babel, Lucas, Plessis, Ngog, Nemeth.
Á bekknum: Reina, Gulacsi, Johnson, San Jose, El Zhar, Pacheco, Torres, Riera, Dossena, Kelly, Skrtel, Arbeloa, Mascherano, Spearing, Voronin.
Yossi og Alonso eru víst eitthvað hnjaskaðir
Og svo biðst ég afsökunnar á slöppum uppfærslum á síðunni, sem orsakast af því að nokkrir okkar eru í fríi og svo hefur lítið verið til að skrifa um en Gerrard réttarhöldin, sem eru ekki ýkja spennandi að mínu mati.
15 Ummæli við “Liverpool – Taíland”
Skrifa Ummæli
Við áskiljum okkur rétt til þess að eyða út ummælum af þessari síðu. Á það sérstaklega við allt skítkast, hvort sem er útí ritstjóra þessarar síðu, leikmenn Liverpool eða aðra lesendur Liverpool bloggsins. Á þetta sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
Tengill: Til þess að búa til tengil yfir á aðra síðu gerir maður svona:
[Heiti á síðu](http://slóð.á.síðu/)
Semsagt, heiti á síðu (eða það sem þið viljið nota sem texta fyrir tengilinn) er fyrst sett innan hornklofa og þar strax á eftir er slóðin á síðuna sett innan sviga.
Feitletrun: Til þess að feitletra orð er ** sett utanum orðið/orðin. Svona:
Hér er texti og **þetta er feitletrað**.
Skáletrun: Til þess að skáletra er * sett utanum orðið/orðin. Svona
Hér er texti og *þetta er skáletrað*.
Tilvitnun: Til þess að vitna í ákveðinn texta þá er einfaldlega > merki sett á undan hverri málsgrein í textanum. Svona
> Þetta er textinn sem er vitnað í…
Listi: Til þess að búa til lista, þá eru einfaldlega + eða - merki sett á undan hverri línu. Einsog svona:
- Red
- Green
- Blue
1. Liverpool
2. Chelsea
3. Man U
Til þess að setja upp liðsuppstillingu þá er textinn hér að neðan notaður. Svona væri þetta í hefðbundinni Liverpool uppstillingu (með fimm línum af leikmönnum). Afritið allan textann í rammanum og setjið hann inní ummæla gluggann. Skiptið svo út heitum á stöðum fyrir heitum á leikmönnum.

Markvörður

HægriBak - Miðv - Miðv - VinstriBak

Miða - Miðja

SóknHægri - SóknMiðja - SóknVinstri

Framherji

Fyrir hefðbundna 4-4-2 uppstillingu þá liti þetta svona út:

Markvörður

HægriBak - Miðv - Miðv - VinstriBak

HægriKantur - Miða - Miðja - VinstriKantur

Framherji - Framherji

Fólk getur svo leikið sér með frekari uppstillingar.

þann 22.07.2009 kl. 14:16
er einhver með Sopcast link á leikinn ?
þann 22.07.2009 kl. 14:22
Kuyt var algjörlega maður fyrri hálfleiksins. Carra og Agger voru þéttir og Insua fínn. Nemeth virðist vera rosalega stressaður þegar hann fær boltann, augljóst talent en ekki alveg tilbúinn í first team. Degen er augljóslega ekki í leikformi og það er lítið hægt að segja um Cavalieri. Babel var ágætur og virðist hafa tekið framförum, vona að hann haldi áfram á sömu braut. N’gog er lélegur og miðjan er búin að vera mjög slæm.
Nú er bara að sjá hvaða lið kemur inná í seinni hálfleik.
þann 22.07.2009 kl. 14:29
eða bara einhvern link?
þann 22.07.2009 kl. 14:29
http://www.veetle.com/viewChannel.php?cid=4a321c6317469
þann 22.07.2009 kl. 15:45
Rosalega var gaman að sjá Torres svona ferskan. Babel leit líka vel út.
þann 22.07.2009 kl. 15:51
Er Alonso hnjaskaður eða er hann einfaldlega á förum, var að vonast eftir að sjá hann en líst ekki á málið. Vil alls ekki missa hann miðað við formið á honum síðasta season.
þann 22.07.2009 kl. 16:56
En hvernig fór leikurinn?
þann 22.07.2009 kl. 17:05
1-1 fór hann, Babel setti hann fyrir okkur.
þann 22.07.2009 kl. 19:13
Þetta var ágætlega fjörlegur leikur. Fínt mark hjá Babel, gott jöfnunarmark hjá Tælendingunum og gaman að sjá spænsku leikmennina og Mascherano koma snúa aftur. Mér skilst að Alonso hafi misst úr vegna smávægilegra meiðsla og það er enn ekkert frekar að frétta af Real-málum þannig að hann er bara Liverpool-maður áfram þangað til annað kemur í ljós.
Annars myndi ég segja að það hafi verið sérstaklega gaman að sjá Babel og Plessis nokkuð ferska í dag, stóðu upp úr að mínu mati ásamt kannski Agger sem virkaði ferskur þrátt fyrir litlu meiðslin í síðustu viku.
Voronatorinn átti samt að skora úr dauðadauðafærinu í seinni hálfleik. Ekki oft sem menn sleppa svona svakalega einir innfyrir og hann hefði nú mátt hitta markið, blessaður.
þann 23.07.2009 kl. 05:24
það er ekkert nauðsinlegt en við erum allir sugur á fréttir viljum vita allt
þann 23.07.2009 kl. 11:58
Fínn leikur, ekkert svakalega mikið fyrir augað en úrslitin skipta nákvæmlega engu máli í þessum leikjum. Stakk mig hinsvegar hvað Spearing var slakur á miðjunni, átti slakar sendingar og var alltaf að gefa boltann inn í pakkann þar sem Tælendingarnir voru hvað fjölmennastir. Reynsluleysi væntanlega en fannst mér þá Plessis betri en voðalega var Mascherano ólmur í að tækla menn og það harkalega.
þann 23.07.2009 kl. 12:56
http://www.lfcglobe.com – kíkið á þessa þar eru mörkin frá því í gær
þann 23.07.2009 kl. 17:51
Ekki var verið að spila, kick and run, vona að það verði ekki svona bolti í vetur, annars allt í lagi með þetta mark, heppni.
þann 24.07.2009 kl. 10:13
Þetta er ekki að boða skemmtilegt tímabil í vetur!
þann 24.07.2009 kl. 12:29
Captain Fantastic sýknaður að sjálfsögðu menn voru bara að reyna að neggla hann fyrir ekkert http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/england/merseyside/8167000.stm