Liðið gegn Newcastle

Bara tvennt sem telst vera merkilegt í byrjunarliði dagsins……Gerrard kemur aftur inn í liðið…….og Torres fer úr því!!!! Djöfull.

Að auki kemur Agger inn í liðið á kostnað Skrtel enda strákurinn afskaplega duglegur að skrifa nafnið sitt í gær.

Reina

Arbeloa – Agger – Carragher – Aurelio

Alonso – Mascherano
Benayoun – Gerrard – Riera

Kuyt

Bekkur: Cavalieri, Skrtel, Ngog, Dossena, Babel, Lucas, El Zhar

28 thoughts on “Liðið gegn Newcastle

  1. 1
    massinn says:

    Þetta er búið ef Kuyt á að vera einn upp á topp. Hefur aldrei reynst vel, hefur engan veginn hraðann til að vera einn uppi, vildi frekar sjá Babel fá séns einn uppi á topp.

    Thumb up 0
  2. 2
    Ásmundur says:

    Jæja þá er það staðfest að Torres nær ekki leiknum og vonandi að Gerrard og Kuyt klári þetta.

    Thumb up 0
  3. 3
    Ólafur Kr says:

    Er Torres meiddur ????

    Thumb up 0
  4. 4
    El Diño says:

    Hvar er Torres?!?!?!
    En hvað um það, þetta lið á klárlega geta klárað þennan leik. Ég hef samt góða tilfinningu fyrir þessum leik og ætla að leyfa mér að spá því að við skorum 4 mörk enn og aftur, svo mín spá er 4-1. Gerrard 2, Benayoun 1 og svo fagnar Agger nýjum samningi með fallegu marki.

    Thumb up 0
  5. 5
    Gummi Halldórs says:

    WTF!! Torres meiddur?

    Thumb up 0
  6. 6
    Lalli says:

    Stream einhver ? Please ?

    Thumb up 0
  7. 7
    Ásmundur says:

    Ætla menn aldrei að læra að setja þessa stream linka í favorites
    http://www.myp2p.eu/broadcast.php?matchid=37521&part=sports

    Thumb up 0
  8. 8
    Kárinn says:

    FERNANDO TORRES is out of Liverpool’s must-win clash with Newcastle today.

    The Spanish star is suffering from a hamstring problem which has plagued him all season.

    While it is not bad enough to threaten the remainder of the striker’s season, Rafa Benitez has decided not to risk Torres

    Thumb up 0
  9. 9
    Lalli says:

    Sorry ég nota þetta aldrei en ég lofa að spyrja ekki aftur :)

    Thumb up 0
  10. 10
    Kristinn says:

    Massinn í #1: Ég vill minna þig á það að Torres var líka meiddur í leiknum á St. James’s Park. Hann endaði 5-1 fyrir Liverpool. Dirk Kuyt var einn upp á topp.

    Mér lýst virkilega vel á þetta. Var svolítið hræddur um það að menn myndu sína værukærð og vonleysi í ljósi þess að titilbaráttan er á brattan að sækja, en ekki lengur. Í fjarveru Torres, vita leikmenn að þeir þurfa að skila sínu og leggja allt í þetta til að ná sigri. Og það munu þeir gera. Newcastle með skelfilega vörn. Liverpool mun hugsanlega spila með einhverskonae afbrigði af 4-6-0 sem mun henta Newcastle einstaklega illa. Þar sem Kuyt, Benni, Riera og Gerrard munu skiptast á að hlaupa á vörnina ellegar allir í einu. (Það væri nú reyndar skemmtilegt líka að sjá Gerrard upp á topp.)

    Slátrun. 7-0 fyrir Liverpool. Benni 2, Gerrard 1(leggur upp 3), Kuyt 1, N’Gog 1, El Zhar 1, Mascherano 1.

    Thumb up 0
  11. 11
    Einar Örn says:

    Er leikur gegn newcastle semsagt búinn af því að Dirk Kuyt er frammi?

    Slæmt er það. Leiðinlegt að heyra með Torres, en við eigum samt að klára þetat auðveldlega. Hann var hvergi nærri þegar við tókum þá 5-1 á útivelli.

    Thumb up 0
  12. 12
    Einar Örn says:

    Já, ég setti semsagt kommentið inn á sama tíma og Kristinn.

    Thumb up 0
  13. 13
    Jökull says:

    Hvað er Riera að gera þarna á vellinum?
    Hann er búinn að missa boltann hvað eftir annað og hefur varla átt almennilega sendingu.

    Thumb up 0
  14. 14
    Fan says:

    Hahahha Massin #1 heimskur gaur, 2-0 eftir tæpan hálftíma leik ?

    Thumb up 0
  15. 15
    Siggi says:

    Já Riera búinn að detta tvisvar og koma með nokkrar slæmar sendingar. Hann er í nýjum hvítum flottum skóm. Þeir eru að tala um að drengurinn ætti bara að skila þessum lörfum til baka.

    ps. 2-0, ekki slæm byrjun. Mín spá 5-1

    Thumb up 0
  16. 16
    Vala says:

    Emm.. hóst … massinn?? anything to say?

    Thumb up 0
  17. 17
    einare says:

    Ein stoðsending og eitt mark…..
    Stundum borgar sig að spara yfirlýsingar:)

    Thumb up 0
  18. 18
    Jonni says:

    Frábær fyrri hálfleikur.Ekkert hægt að biðja um meira, nema kannski fleiri mörk. Það er frábært að sjá Agger þarna sem þriðja playmakerinn, og skotið hans var frábært.

    Thumb up 0
  19. 19
    Jökull S. says:

    Það er alveg rétt sem sagt var hér um daginn: miðlungsmarkmenn eiga alltaf stórleik á Anfield.

    Thumb up 0
  20. 20
    Hjalti says:

    Hálfleikur. Fyrsta korterið slakt, enginn taktur í leiknum en einstefna eftir það. Ætti að vera 4-0. Snilldarskot hjá Agger og Alonso áttu að fara inn!

    Vel gert. Vona að liðið haldi sama dampi. Þá opnast allt þar sem Newcastle þarf auðvitað að reyna að sækja…

    Thumb up 0
  21. 21
    Julian Dicks hetja (Gestur) says:

    Fyrir þá sem hafa gaman af því að rakka Kuyt niður þá er skemmtilegt að benda á það að hann hefur nú skorað 11 mörk í deildinni og lagt upp 7. Hann er einfaldlega einn af okkar allra mikilvægustu mönnum.

    Í fyrri hálfleik hefur hann verið út um allan völl og átt stórleik.

    Thumb up 0
  22. 22
    Jökull S. says:

    Joey Barton í klúbbinn “Ég fékk rautt fyrir að brjóta á Xabi Alonso”.

    Thumb up 0
  23. 23
    Andri Fannar says:

    Hvað í andskotanum er Barton að gera!? Leikurinn tapaður og hann tekur tveggja fóta á okkar besta mann úti í horni, þvílíkur asni.

    Thumb up 0
  24. 24
    Vala says:

    … og Alonso borinn útaf á börum…. :-| ekki gott!!

    Thumb up 0
  25. 25
    Svenni says:

    Hvers á greyið Alonso að gjalda? Er þetta ekki í fjórða skipti í vetur sem andstæðingur fær rautt fyrir brot á honum? Það hreinlega hlaut að koma að því að einhver þeirra meiddi hann með tæklingunni, maður verður bara að vona að þetta sé ekki alvarlegt.

    Thumb up 0
  26. 26
    einare says:

    Fucking Barton!!! Mannfj….Vona að hann fái langt bann fyrir þetta ljóta brot…Þetta er ástæðan fyrir því að þessi maður á að vera í fangelsi en ekki á fótboltavellinum.

    Thumb up 0
  27. 27
    HBF says:

    Jæja, þá eru þeir orðnir 6 sem hafa fengið rautt fyrir viðskipti sín við Alonso, allir á þessu tímabili. Vidic, Cahill, Zabaleta, Valencia, Lampard og Barton. :P

    Thumb up 0
  28. 28
    massinn says:

    Djöfull er ég feginn að þurfa að troða þessu ofan í mig það sem ég sagði áðan. :)

    Thumb up 0