Dregið í 32-liða úrslit: EVERTON!

Nú rétt í þessu var að hefjast dráttur í 32-liða úrslit enska bikarsins og fyrstu tvö nöfnin sem komu upp úr hattinum voru eftirfarandi:

* Liverpool
* Everton

Jamm. Við eigum Everton á Anfield í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Skemmtilegt. :)

**Uppfært:** Mér skilst að leikdagur sé laugardagurinn 24. janúar, en við eigum Everton einmitt á Anfield í Úrvalsdeildinni mánudaginn 19. janúar kl. 20:00. Okkar menn fá því að rassskella þá bláu tvisvar á Anfield með aðeins fimm daga millibili. Það ætti að verða athyglisverð vika.

17 thoughts on “Dregið í 32-liða úrslit: EVERTON!

  1. 1
    Hilmar says:

    Tær snilld :D

    Thumb up 0
  2. 2
    Freyr says:

    Á Anfield eða Goodison Park?

    Thumb up 0
  3. 3
    Jonas says:

    Get nú ekki sagt að ég sé ánægður með þann drátt, altaf skíthræddur við stór meiðsli þegar við spilum við Everton. Setja varaliðið í FA cup. Og einbeita sér af PL & CL

    Thumb up 0
  4. 4

    Freyr, leikurinn er á Anfield.

    Thumb up 0
  5. 5
    Hilmar Ægir says:

    Þetta er nú reyndar 32 liða úrslit en gaman að fá blánefjana.

    Thumb up 0
  6. 6
    Svavar says:

    Algjör snilld að fá derby leik á Anfield í bikarnum! Verður erfitt en þeim mun skemmtilegra að vinna bikarinn í maí.

    Thumb up 0
  7. 7

    Sá það Hilmar, var að laga færsluna.

    Thumb up 0
  8. 8
    Don Roberto says:

    YNDISLEGT… get varla beðið eftir þessum leikjum :) Verð í Houston Texas, ætla rétt að vona að ég geti séð þá BÁÐA ho ho ho

    Avanti Liverpool – Rafa – http://www.kop.is

    Thumb up 0
  9. 9
    Beggi says:

    Miðað við mannskapinn sem var að spila leikinn í gær á móti Preston, þá held ég að við séum ekki að fara spila með varaliðið þegar loksins kemur virkilega verðurgur andstæðingur í Fa :) hef ekki miklar áhyggjur af þessum leik. það hvíslaði lítil fugl í mig að Steven Gerrard á eftir að verða brjálaður í þessum leik og sína allar sínar bestu hliðar og gott betur.

    Eina sem ég hef áhyggjur eru meiðsli sem geta komið eins og í leiknum í gær :S Alonso og ökkli ég er ekki bjartsýn með það. þegar ég sá hann labba á hliðaralínunni og í þessum spelkum hugsaði ég með mér 6 vikur á versta tíma vonandi rættist þessi svartsýnisspá mín ekki alla vega hörku mánuður framundan :D:D:D

    Thumb up 0
  10. 10
    Maggi says:

    Jahá!
    Tveir derbyleikir á viku, það er alvöru vika! Fínt að fá heimaleik, en hvað er málið með Chelsea og endalausa heimaleiki við lið úr neðri deildum???

    Thumb up 0
  11. 11
    Grétar says:

    Djöfull hlakka ég til!!

    Thumb up 0
  12. 12
    Vési says:

    Engan kjaft hilmar ægir…..

    Thumb up 0
  13. 13
    Johnny Haim says:

    Er það bara ég, eða gerist svona lagað mjög oft ?!?
    Þ.e.a.s. að dragast gegn liði sem við erum að spila við á svipuðum tíma.

    Thumb up 0
  14. 14
    Gummi Halldórs says:

    Mér líst vel á þetta. Everton leikirnir eru alltaf stríð og bara gaman að fá einn til viðbótar og spila þrjá leiki við þá bláu. Ég er líka að vona að Liverpool – Chelsea leikirnir verði ekki fimm þessa leiktíðina eins og síðustu 3-4 tímabil :)

    Thumb up 0
  15. 15
    Brynjar says:

    Á milli þessara leikja eða 23 Jan. þá á STEVEN GERRARD að mæta fyrir rétt!! Gaman fyrir hann að mæta erkióvinunum fyrir og eftir að réttað verður yfir honum.

    Thumb up 0
  16. 16
    Doddi says:

    Johnny (nr. 13): ég held að þetta gerist ekki oft, en samt finnst mér ég hafa séð þetta ágætlega síðustu ár. Man t.d. eftir þriggja leikja seríunni við Arsenik í fyrra á… hvað var það … sex dögum?

    Annars líst mér vel á þetta. Liverpool borg verður spennandi staður til að vera á þessa daga og það verður gaman að sigra Everton tvisvar … hlakka mikið til!

    Thumb up 0
  17. 17
    Johnny Haim says:

    Doddi: Ég skoðaði þetta aðeins á official síðunni og komst að því að þetta er 4 tímabilið í röð sem við lendum í því að spila amk 2 leiki í röð gegn sama liðinu í mismunandi keppnum:

    2005-2006
    28 Sep, 2005 Chelsea CL Group Phase H 19:45 0-0
    02 Oct, 2005 Chelsea Barclays Premiership H 16:00 1-4

    2006-2007
    06 Jan, 2007 Arsenal FA Cup 3rd Round H 17:15 1-3
    09 Jan, 2007 Arsenal Carling Cup 1/4 final H 19:45 3-6

    2007-2008
    02 Apr, 2008 Arsenal C L Quarter Final (1) A 19:45 1-1
    05 Apr, 2008 Arsenal Premier League A 12:45 1-1
    08 Apr, 2008 Arsenal CL Quarter Final (2) H 19:45 4-2

    2008-2009
    19 Jan, 2009 Everton Barclays Premier League H 20:00
    24 Jan, 2009 Everton FA Cup H

    Þannig að það var e-ð til í þessu hjá mér. Annars man ég eftir því að í gamla Champa (hef ekki spilað CM í háa herrans tíð) gerðist þetta líka fulloft til að vera tilviljun. :D

    Thumb up 0