Útileikur gegn Sunderland verður fyrsti leikur

Jæja, þá er búið að birta [leikjaprógram fyrir næsta tímabil](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N160240080616-0959.htm). Liverpool byrjar 16.ágúst á útileik gegn Sunderland, svo heimaleik gegn Middlesboro og þá útileik gegn Aston Villa.

Í september er það svo heimaleikir gegn Manchester United og Stoke og útileikur gegn Everton.

Við mætum Chelsea fyrst úti 25.október og Arsenal fyrst úti 20.desember. Síðasti leikur tímabilsins verður svo heimaleikur gegn Tottenham. Yfir allt, þá lítur þetta ágætlega út. Þetta er ekki einsog fyrir tveimur árum þegar að erfiðir útileikir hrúguðust á fyrstu vikunum, heldur byrjar þetta svona þokkalega létt.

9 thoughts on “Útileikur gegn Sunderland verður fyrsti leikur

  1. 1
    Hafliði says:

    Fínasta uppröðun alveg.
    Flott að fá svona smá áminningu um að það styttist í stuðið : )

    Thumb up 0
  2. 2
    Beggi says:

    Sýnist þetta byrja fínt tímabilið. toppleikirnir dreifast yfir tímabilið þannig að við erum ekki taka þá nokkra eins og gerðist í vetur ;) sé að það kemur oftast þægilegur leikur eftir stórleik þannig að bjartsýninn og spenningurinn er byrjaður að myndast.

    En annað sem vakti athygli mína eru jólaleikirnir þeir eru bara 3 núna :S veit einhver af hverju búið að taka einn leik ? nátturlega gífurlegt álag á þessum tíma en hey þetta gaf sko jólunum ákveðin ljóma hjá mér ;)

    Thumb up 0
  3. 3
    Maggi says:

    Manni sýnist þetta fínt plan. Reyndar fúll að fá ekki heimaleik 1.nóvember þegar ég verð í vetrarfríi!
    En ágætis byrjun, strax safaríkur leikur í 3.umferð gegn Aston Villa, þegar Barry kemur með nýja liðinu sínu á Villa Park!!!
    Ágætt að fá United eftir landsleikjahlé á Anfield 13.september, þá vinnur Rafa þá í fyrsta sinn í deild……..

    Thumb up 0
  4. 4
    Danni says:

    þetta yrði hreinlega of gott til að vera satt
    http://visir.is/article/20080615/IDROTTIR0102/709994943
    og fjölmiðlarnir standa sig sem fyrridaginn í því að gefa manni falsvonir, þegar maður veit betur en á erfitt með að standast væntinguna!

    Thumb up 0
  5. 5
    Björnbondi says:

    Jólaleikirnir eru bara 3 af því að 3.umferð FA cup verður spiluð 3.jan og þess vegna ekki leikur á nýársdag ef ég skildi það rétt sem ég las áðan.

    Thumb up 0
  6. 6
    Einar Örn says:

    Danni, það er búið að vísa í þessa Villa frétt allavegana þrisvar á þessari síðu, þar á meðal í síðustu færslu.

    Thumb up 0
  7. 7
    Ólafur says:

    Afhverju byrjum við alltaf á útivelli ? ? ?

    Thumb up 0
  8. 8
    Einar Örn says:

    Þetta er samsæri.

    Thumb up 0
  9. 9
    Sævar Helgi says:

    Fínt að fá Tottenham í síðasta leik tímabilsins. Tökum þá við titlinum á heimavelli.

    Thumb up 0