4 Liverpool menn í spænska hópnum

Luis Aragones er búinn að tilkynna spænska hópinn fyrir EM. Það verða eflaust margir Liverpool stuðningsmenn spenntir fyrir spænska liðinu, enda eru fjórir Liverpool menn í spænska hópnum. Það eru einmitt fleiri leikmenn en eru frá Real Madrid (2 – Casillas og Ramos) og Barcelona (Xavi, Iniesta, Puyol). Hópurinn lítur svona út:

Markverðir: Iker Casillas (Real Madrid), **Pepe Reina (Liverpool)**, Andres Palop (Sevilla).
Varnarmenn: Raul Albiol (Valencia), Carlos Marchena (Valencia), Joan Capdevila (Villarreal), Sergio Ramos (Real Madrid), Juanito Gutierrez (Real Betis), Fernando Navarro (Mallorca), Carles Puyol (FC Barcelona), Alvaro Arbeloa (Liverpool).
Miðjumenn: Xavi Hernandez (FC Barcelona), Andres Iniesta (FC Barcelona), Cesc Fabregas (Arsenal), David Silva (Valencia), Xabi Alonso (Liverpool), Ruben De La Red (Getafe), Marcos Senna (Villarreal), Santi Cazorla (Villarreal).
Framherjar: Fernando Torres (Liverpool), David Villa (Valencia), Daniel Guiza (Mallorca), Sergio Garcia (Zaragoza).

Sérstaklega gaman að sjá Arbeloa þarna. Hinir voru nokkurn veginn öruggir. Ekkert pláss í hópnum fyrir Raúl eða Bojan.

8 thoughts on “4 Liverpool menn í spænska hópnum

  1. 1
    Alli says:

    Reyndar dróg Bojan sig úr hópnum sjálfur vegna þreytu.
    Hann átti að fara með þeim en ákvað í samráði við Aragones og Barca að sleppa því til að vera tilbúinn fyrir næsta tímabil.

    Thumb up 0
  2. 2
    Magnús Agnar says:

    Það segir sig sjálft hvaða liði ég held með þar sem hin liðin mín komust ekki á EM þe. Ísland, Danmörk, England og Færeyjar!

    Thumb up 0
  3. 3
    Óli says:

    Afhverju er Luis García ekki í hópnum?

    Thumb up 0
  4. 4
    Nonni says:

    Sennilega afþví að hann hefur verið slappur hjá Atletico Madrid í vetur?

    Thumb up 0
  5. 5
    Óli says:

    García er aldrei slappur kallinn minn, henda Ruben De La Red eða Santi Cazorla og skella García inn…

    Thumb up 0
  6. 6
    Kjartan says:

    Ég heyrði að Bojan hafi ekki viljað fara því hann, líkt og Jesús Navas hjá Sevilla, meikar ekki að vera að burtu að heiman svona lengi. Miðað við að Spánverjar fara sennilega heim eftir 2 vikur þá er það frekar lélegt :)

    Thumb up 0
  7. 7
    Eyþór says:

    Hver er Bojan?

    Thumb up 0
  8. 8
    Fjölnir says:

    Bojan er eitt mesta framherjaefni í boltanum í dag. Skrítið að mínu mati að hann vilji ekki bæta við reynslu í landli

    Thumb up 0