Uppboð

Þriðja árið í röð stend ég fyrir uppboði á heimasíðu minni, þar sem ég sel hluti til styrktar góðgerðarstarfi Oxfam í Mið-Ameríku. Á næstu dögum mun ég bjóða upp sjónvörp, síma, dvd diska, xbox leiki, vínflöskur, kaffivélar, geisladiska og fleira. Endilega kíkið á þetta og bjóðið í hlutina. Allur ágóðinn fer til Oxfam, sem eru frábær hjálparsamtök.

Hérna er yfirlitssíða yfir uppboðið. Þessa stundina er hægt að bjóða í notaða síma, sjónvörp, ipod ásamt xbox 360 leikjum og dvd diskum. Fleiri hlutir munu svo bætast inn á hverjum degi. Allur stuðningur er mjög vel þegin.

Og ef þið getið, þá megið þið endilega kynna þetta sem víðast. Takk takk! :-)

8 thoughts on “Uppboð

  1. 1
    Ásmundur says:

    Virkilega frábært framtak hjá þér.

    Thumb up 0
  2. 2
    einsi kaldi says:

    Gott er ef fólk getur og vill hjálpa öðrum .En er þettað leifilegt.Nú er ég alls ekki að segja að þú sért óheiðarlegur,en það er stundum verið að vara mann við fólki sem segjast vera að safna fyrir einhver samtök og að þettað fólk þurfi að vera með einhvers konar leifi.Ég vil taka það fram enn og aftur að ég er ekki að meina að þú sért að svindla,þettað er meira forvitni í mér.Vona að allt gangi þér í hag.

    Thumb up 0
  3. 3

    Þriðja árið í röð. Frábært framtak!

    Thumb up 0
  4. 4
    Don Roberto says:

    Þú ert kóngurinn og veist af því :D

    Avanti Liverpool

    Thumb up 0
  5. 5
    Babu says:

    Mjög gott framtak EÖE

    Er hægt að setja Sissoko á þetta uppboð? ;)

    Thumb up 0
  6. 6
    bjartmar says:

    hahaha…sammála Babú.

    Thumb up 0
  7. 7
    Stefán says:

    Frábært framtak hjá þér Einar og verðugur málstaður að styrkja. Þú átt hrós skilið fyrir að hrinda verkefninu í framkvæmd. Vonandi nærðu að leggja til ágætis summu.
    ps. Ég geri ráð fyrir því að þú sért ekki mikill safnari?

    Thumb up 0
  8. 8
    Einar Örn says:

    Takk kærlega.

    Og Stefán, ég var mikill safnari – en er alveg búinn að missa áhugann á því :-)

    Thumb up 0