KÖNNUN: Óskamótherjar í 16-liða úrslitum ECL

Hvern viltu fá sem næsta stjóra Liverpool?

Skoða niðurstöður.

Loading ... Loading ...

Við erum enn að ræða leikinn og einstök atriði hans í leikskýrslunni hér fyrir neðan, en mér fannst samt við hæfi að við settum upp könnun og gæfum ykkur næstu tvo dagana eða svo til að smella ykkar atkvæði á það lið sem þið viljið helst sjá Liverpool FC mæta í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu vorið 2008.

Ég hef Sevilla með í könnunninni þótt þeir séu ekki öruggir. Tek þá þá bara út ef það breytist í kvöld.

Annars er merkilegt að spá í þennan hóp. Þessi lið væru öll að einhverju leyti „óskamótherjar“. Við skulum renna aðeins yfir þessi lið og sjá hvað myndi gera rimmu Liverpool og hvers þeirra svona merkilega:

**AC Milan:** Höfum mætt þeim tvisvar á síðustu þremur árum í úrslitum ECL. Yrði gaman að fá þá í heimsókn á Anfield og fara á San Siro, þar sem saga þessara liða og stuðningsmanna þeirra hefur tengst svo náið síðustu þrjú ár á hlutlausum völlum.

**Internazionale:** Kannski það lið sem á minnst skylt við Liverpool FC í dag, en við munum þó að Benítez var einn þeirra sem var þrálátlega orðaður við stjórastöðuna hjá Inter fyrir svona ári síðan, þegar Mancini var valtur í sessi. Nú hins vegar er allt á blússandi siglingu hjá Inter og það gæti verið gaman að sjá þessi lið mætast. Einnig: Zlatan vs. Torres. :)

**Barcelona:** Við. unnum. þá. á. Nou. Camp. Punktur. Þeir vilja fá okkur, þá dreymir um að fá okkur, þetta yrðu geggjaðar viðureignir! Einnig: Torres, sem leikmaður Atletico á Spáni, sérhæfði sig í að skora gegn Barca.

**Real Madrid:** Myndi Rafa vilja fara með rauðu lærisveina sína yfir á Bernabeau-völlinn og sýna stjórnarmönnum Real fyrsthendis hvernig alvöru þjálfari stillir upp liði, hvernig Real-liðið *gæti spilað* í Evrópu ef þeir væru með Rafa við stjórnvölinn og hann fengi þá þolinmæði sem honum hefur verið sýnd hjá Liverpool? Uuuu, JÁ TAKK. Einnig: Torres er Atletico-maður og myndi hreinlega frussa blóði af spenningi við að fá að slá Real út. Einnig: við fengjum miiiiikinn stuðning meðal rauða helmings Madríd-borgar. :)

**Sevilla:** Kannski slakasti mótherjinn á pappírnum, en gleymum því ekki að þeir hafa unnið Evrópukeppni félagsliða síðustu tvö ár í röð og eru því réttilega þriðja liðið í heilagri Evrópuþrennu þessa áratugs (ásamt okkur og Milan). Þessi rimma væri æskileg af þeirri einu ástæðu að kannski þarf Daniel Alvés að upplifa Evrópukvöld á Anfield í eigin persónu til að gera upp hug sinn fyrir næsta sumar. :)

Þannig er nú það. Mögulega fimm stórfenglegar rimmur á pappírnum og það er ljóst að Liverpool eiga massíft verkefni fyrir höndum, sama hvaða liði þeir mæta.

Hitt er líka alveg ljóst að það skiptir engu máli hvaða lið dregst gegn okkur, við erum ekki aðilinn sem kemur með ótta og pressu inn í þá rimmu. Við erum í potti #2 ásamt liðum eins og Olympiakos, Celtic, hugsanlega Rangers, hugsanlega Schalke, Roma, hugsanlega Fenerbache og hugsanlega Arsenal.

Með öðrum orðum, þá erum við liðið sem stóru liðin vilja forðast. Við óttumst engan, en þessi lið eru öll skíthrædd við okkur! :)