Liverpool bloggið snýr aftur

Jæja jæja, þetta er vonandi að fæðast. Við ákváðum semsagt að skipta um uppfærslukerfi. Nýja kerfið er allavegana komið upp, en það á eftir að stilla það til. Núna þarf ég bara að

  • Stofna strákana í nýja kerfinu
  • Flytja inn gamlar færslur
  • Redda útlitinu.
  • Laga permalinks
  • Vinna Meistaradeildina
  • Setja Markdown inn fyrir gamlar færslus

Upphitun fyrir Fulham leikinn kemur væntanlega seinnipartinn á föstudag.

Einar Örn

This entry was posted in Liverpool. Bookmark the permalink.

18 Responses to Liverpool bloggið snýr aftur

  1. 1. Einar Örn says:

    Halló!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  2. 2. Þröstur says:

    Og þú hélst að við tækjum ekki eftir þegar nýja bloggið kæmi upp. Það er bara nánast enginn munur ;)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  3. 3. Óli says:

    Velkomnir til baka.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  4. 4. Vargurinn says:

    Þetta er bara nánast það sama ;)

    Það er þó vonandi að rauði liturinn komi fljótt inn aftur….. og alveg hjartanlega sammála því sem stendur fyrir neðan “Liverpool Bloggið” að því undanskildu að þetta er BESTA íslenska aðdáendasíða besta liðs í heimi…..

    YNWA

    Thumb up 0 Thumb down 0
  5. 5. Kristján Atli says:

    Útlitið er bara til bráðabirgða, Vargur. Og já, auðvitað erum við á þessari síðu laaangbestir. ;-)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  6. 6. Kiddi Geir says:

    líst vel á að hafa RSS feed möguleikan sem og “search” á síðunni

    annars verður þetta mega flott … hef engar áhyggjur!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  7. 7. Doddi says:

    Þetta er frábært hjá ykkur strákar, ég hlakka til þegar síðan kemst í þann lit og útlit sem þið viljið. Vildi að maður gæti gert eitthvað til að hjálpa, en ég er tölvulega vitlaus og allt útlit minna blogga (er með fjögur!) kemur eftir fyrirfram ákveðnum formúlum …

    En það er innihaldið sem skiptir máli, og þið eruð bestir strákar. Það er engin lygi og ég er ekki hlutdrægur … þetta er einfaldlega langbesta bloggsíða og umræðusíða hér á landi, um eitt sérstakt íþróttalið!!

    Bara svo það sé á hreinu … því eitthvað hefur borið á því að sumir heita sömu nöfnum … er ekki hægt að taka frá “Doddi” svo enginn ruglingur verði í framtíðinni?

    Og Gattuso byrjaður: “Liverpool er lélegra en Manchester United …” – hahaha … oh, it’s ON!!!!!!

    Áfram Liverpool og http://www.eoe.is/liverpool !!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  8. 8. Andri Fannar says:

    Það ætti að vera hægt í þessu kerfi Doddi en þá þyrfti maður að nýskrá sig á síðuna.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  9. 9. Bjarni says:

    Til lukku með nýju síðuna, vonandi er áframhald á því mikla og góða starfi sem hér er haldið uppi! :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  10. 10. Svenni says:

    Til hamingju með að vera komnir yfir í wordpress, mun skemmtilegra kerfi sem býður upp á óendanlega fleiri möguleika en movabletype.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  11. 11. Jói says:

    Já til hamingju strákar. Vil bara láta ykkur vita að þetta er frábær síða og vel í alla staði látið.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  12. 12. Einar says:

    Íslensku stafirnir koma ruglaðir út á sumum stöðum, s.s flokkum. En já, mér líst bara mjög vel á þetta, keep up the good work!

    Thumb up 0 Thumb down 0
  13. 13. Kristján Atli says:

    Ég var reyndar að laga flokkana þannig að íslensku stafirnir trufla ekki þar lengur. En þetta er annars allt í vinnslu. :)

    Thumb up 0 Thumb down 0
  14. 14. Halldór says:

    Hvernig vill það til að þið skiptuð úr Movable Type yfir í WordPress?

    Thumb up 0 Thumb down 0
  15. 15. Einar Örn says:

    Halldór, það var að hluta til leti í mér – ég nennti ekki að setja upp Movable Type. Og svo hef ég einfaldlega lesið það á svo gríðarlega mörgum stöðum hvað WordPress er orðið mikið betra en hið gjörsamlega staðnaða Movable Type.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  16. 16. Aggi says:

    Lítur stórvel út Einar… Þið bræður (Kristján Örn og Einar Atli) eruð alveg með þetta… jahá hver tekur eftir þessum orðaleik…

    góðar stundir.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  17. 17. lokimikoj says:

    Hello

    This is a beautiful site. I`ll send the link to my friends.

    Thumb up 0 Thumb down 0
  18. 18. Grímur says:

    Einar, hvað er það sem wordpress hefur framyfir önnur svona forrit??

    Thumb up 0 Thumb down 0