L’pool 2 – M’boro 0

Okkar menn unnu í kvöld ágætan sigur á Middlesbrough í frekar daufum leik. Á endanum var það besti leikmaður vallarins sem réði úrslitum í 2-0 sigri.

Rafa Benítez gerði nokkrar breytingar á liði sínu í kvöld og gaf m.a. Xabi Alonso og Steve Finnan algjört frí, auk þess sem Dirk Kuyt og Mark Gonzalez voru á bekknum. Liðið í kvöld var sem hér segir:

Reina

Arbeloa – Carragher – Agger – Riise

Pennant – Sissoko – Mascherano – Zenden

Gerrard

Bekkur: Dudek, Hyypiä, Gonzalez, Fowler, Kuyt.

Fyrri hálfleikurinn var leiðinlegur. Liverpool voru með boltann, Boro-menn héngu í vörn en okkar menn náðu ekkert að lyfta leik sínum og þau tvö eða þrjú hálffæri sem fengust féllu til lélegasta skotmanns deildarinnar, Sissoko. Þannig að staðan var markalaus í hálfleik.

Glöggir menn halda kannski að ég hafi gleymt að nefna Peter Crouch í byrjunarliði kvöldsins. Ég gerði það viljandi, því hann var kannski í byrjunarliðinu en engu að síður ekki með í fyrri hálfleiknum. En eins og Einar Örn sagði mér í SMS-i um miðjan seinni hálfleik ákvað Crouch greinilega að skipta sjálfum sér inná í hálfleik og það var allt annað að sjá til hans.

Fyrstu fimm mínútur síðari hálfleiks voru alveg jafn daufar og leiðinlegar og allur fyrri hálfleikurinn og maður óttaðist að þetta stefndi í sömu taumlausu leiðindin og gegn City um helgina. En þá gerði Rafa taktíska breytingu sem breytti öllu. Hann tók Sissoko, sem hafði barist vel og verið ágætur á miðjunni en gjörsamlega vonlaus sóknarlega, útaf á 50. mínútu og setti Dirk Kuyt inn í staðinn. Í leiðinni breytti hann kerfinu úr 4-5-1 í 4-4-2 og færði Gerrard aftar á völlinn, en hann hafði ekki fundið sig fyrir aftan Crouch fram að því.

Rúmu kortéri síðan var staðan orðin 2-0. Fyrst fékk Gerrard boltann á miðjum vallarhelmingi Boro, lék aðeins að teig þeirra og lét svo vaða á fjærhornið. Mark Schwarzer, ágætur markvörður Boro í kvöld, átti ekki séns og boltinn söng í horninu – enn eitt glæsimarkið frá fyrirliðanum.

Fimm mínútum eða svo síðar var svo brotið á Peter Crouch inní teig er hann reyndi að skalla fyrirgjöf Jermaine Pennant, sem var okkar mest ógnandi maður í kvöld. Dómarinn dæmdi réttilega vítaspyrnu og úr henni skoraði Gerrard örugglega. Staðan orðin 2-0, game over Middlesbrough.

Eftir þetta datt leikurinn aftur aðeins niður, enda sigurinn unninn, og þetta fjaraði svona nokkurn veginn út. Okkar menn hefðu þó getað bætt við mörkum en þeir Zenden og Kuyt voru ekki á skotskónum, auk þess sem Mascherano átti góðan skalla í slána. Þannig að leik lauk 2-0 og var sá sigur meira en lítið sanngjarn, þrátt fyrir hálf andlausan leik Liverpool.

Fyrir leikinn hafði Rafa eiginlega varað suma af sínum minni spámönnum að leikirnir sem eftir eru í deildinni myndu vera notaðir til að dæma mannskapinn fyrir sumarið. Það að leikmenn eins og Zenden og Pennant skyldu vera í liðinu kom því ekki á óvart, og það verður að segjast um þá tvo að niðurstöðurnar voru skýrar.

Jermaine Pennant er að mínu mati búinn að sanna það eftir áramót að hann á erindi í hóp Liverpool. Hvort hann verður fastamaður í liðinu eða kantmaður á heimsmælikvarða mun tíminn einn leiða í ljós, en hann er búinn að vera okkar mest ógnandi maður í mörgum leikjum undanfarið og hefur átt margar stoðsendingar. Berið hann saman við landsliðskantmanninn Stewart Downing hjá Boro í kvöld og þá sjáið þið augljóslega hvor þeirra á meira tilkall til sætis í landsliðshópi hins staurblinda Steve McClaren.

Hið sama verður ekki sagt um Bolo Zenden. Við hér á Liverpool Blogginu höfum oft varið hann og gerum enn. Við höfum sagt (réttilega) að hann er mjög góður kostur af fjórða miðjumanni að vera (fimmta, nú þegar Mascherano er kominn) en í leikjum eins og þessum, þar sem menn á borð við Riise og Gonzalez eru heilir til að manna vænginn, á hann ekki að fá að spila. Hann gerði einfaldlega ekki neitt rétt í leiknum, nema kannski það að honum tókst að renna boltanum þrjá metra til hliðar á Gerrard í fyrra markinu.

Ég skil ekki alveg hvers vegna Zenden fékk að spila allan leikinn í kvöld en Gonzalez aðeins tíu mínútur, þegar annar þeirra á sér augljóslega enga framtíð hjá Liverpool eftir vorið en hinn þarf hverja mínútu til að hjálpa sér að aðlagast fyrir framtíðina.

Annars voru menn á heildina góðir. Carra var góður fyrir utan eitt glappaskot í fyrri hálfleik þar sem hann gaf Fabio Rochemback næstum því mark, og Riise og Sissoko börðust vel og unnu mikið af boltum en voru báðir steingeldir fram á við í kvöld. Ég hef ekki áhyggjur af Carra en Riise og Momo veitir sennilega ekki af fríinu sem kemur eftir mánuð.

Annars voru menn eins og Agger, Arbeloa, Mascherano, Kuyt og Crouch (í seinni hálfleik) mjög góðir, auk þess sem Reina var öryggið uppmálað í markinu og “sópaði” vel fyrir aftan vörnina allar stungusendingar og slíkt.

MAÐUR LEIKSINS: Eins og ég hef áður sagt var Jermaine Pennant okkar mest ógnandi leikmaður í kvöld en hann missir af nafnbótinni. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Steven Gerrard var maður leiksins, enda vann hann leikinn og var í raun það sem skildi liðin að í kvöld. Við vanmetum oft hversu mikilvæg nærvera hans í liðinu er en erum þó minnt á það reglulega og það gerðist í kvöld. Án hans hefði þetta orðið enn eitt steindautt jafnteflið. How hard? Gerr-ard!

16 Comments

  1. Jammm, sammála nokkurn veginn öllu – þar með ummælunum um Zenden og Pennant.

    Ég þarf í alvöru að horfa aftur á fyrri hálfleik til að sjá hvort að ég komi auga á Crouch. En frekar myndi ég rífa úr mér augun en að eyða 45 mínútum í að horfa á svo leiðinlegan fótbolta.

    Við værum í brjáluðu þunglyndi ef þetta hefði farið 0-0. En Stevie G reddaði málunum og sá til þess að maður getur farið útúr húsi í kvöld í góðu skapi. Takk fyrir það!

  2. Já, bragðdaufur leikur framan af, en yfirburðirnir afar miklir. Mér fannst tveir leikmenn bera af í leiknum og það voru þeir Javier og Pennant. Pennant kom ÖLLUM boltum fyrir markið, stundum fannst manni það ekki eiga að vera hægt. Margir góðir boltar, en oftar en ekki voru okkar menn seinir inn og ekki nógu árásargjarnir á þá. Javier var svo alveg óaðfinnanlegur í sinni stöðu. Hirti afar marga bolta, átti varla feilsendingu og var að dreifa spili vel. Jú Gerrard vann leikinn, en ég gef Pennant nafnbótina maður leiksins, engin spurning. Eitt gott skot og mark dugar ekki í mínum huga til að taka nafnbótina af Pennant.

  3. Góður pistill Kristján !!!

    Gerrard er snillingur og dregur oft þetta lið áfram. Svo er ég virkilega ánægður með Pennant. Vona að hann eigi eftir að dafna enn frekar með okkur það sem eftir er af þessu season-i og því næsta.

    Verðum að klára þetta tímabil sterkt með sigrum í deildinni og ná toppleikjum í Meistaradeildinni. Zenden kallinn á ekkert erindi í þá leiki sem þýðir einfaldlega að hann má missa sín úr því að við höfum Javier núna.

  4. Góður sigur í kvöld, ánægður með það…
    En getur einhver sagt mér hvort að Sissoko sé keyptur til Liverpool sem sóknarmiðjumaður??
    Ef ekki, af hverju fæ þessi maður þá að hlaupa fram í sóknum hjá okkur?? Það ætti að setja stöng á miðjan völlinn og Sissoko í keðju sem að nær bara svona 10 metra út þannig að hann komist ekki nálægt vítateig andstæðinganna. :confused:

    Grínlaust, ég er ánægður með hann þegar hann er á miðjunni og er að vinna bolta. Hann á bara ekki að fá að hlaupa fram á völlinn. Frekar að láta Mascerano(stafs) um það.

  5. Ég er ótrúlega ánægður með spilamennsku Mascherano í liðinu … alger happafengur að hafa landað honum. Svo er já Pennant að festa sig í sessi … frábær leikmaður. Gerrard er bara bestur í heimi, en ég ætla samt að hengja titilinn á Pennant (besti maður leiksins sko) – bara út af því að Gerrard hefur fengið hann svo oft. Share, boys! … Nei nei, án gríns … eins og ensku þulirnir sögðu, þá var munurinn á liðunum fólginn í “professionalism” hjá Liverpool – þeir gerðu það sem þeir þurftu að gera.

  6. Skrítið að spilamennska LFC fram á við hafi snarbatnað þegar Sissoko fór útaf!

  7. Ætli þessir leikir undanfarið ásamt Wigan leiknum næstu helgi séu ekki bara general-prufa fyrir leikina tvo gegn Chelsea.
    Rafa muni þannig láta liðið spila 4-4-1-1 gegn Chelsea með Gerrard og Pennant frjálsa fyrir aftan. Sissoko muni líka spila þar ofarlega til að stoppa spilið frá Makelele.

    Sjálfum er mér gjörsamlega slétt sama hvort Sissoko hafi verið góður undanfarið eða ekki í deildinni, svo lengi sem hann muni eiga stórleiki gegn Chelsea og slátri þeim.

    Tímabilið verður að skilgreinast sem mistök og stöðnun ef vð komumst ekki lengra enn Chelsea í CL.

    Gerrard skoraði loksins, búinn að vera ansi daufur í vetur en elskar stórleikina og vinna verðlaun með Liverpool. Treysti á að hann komi inn á fullum krafti núna í lok tímabilsins.

  8. Ég er sammála SSteini um það að eitt gott skot og mark dugi ekki til að gefa Gerrard nafnbótina maður leiksins í dag. Að mínu mati spiluðu aðeins tveir menn vel í dag. Það voru þeir Pennant sem spilaði virkilega vel í dag tókst að prjóna sig framhjá varnarmönnum Boro hvað eftir annað og oftar en ekki átti hann góðar fyrirgjafir fyrir markið og Marcherano sem átti að mínu mati stórleik í dag vann marga bolta og átti frábærar sendingar hvað eftir annað. Ég verð fyrir mitt mat að segja að Riise er búinn að vera í mikilli lægð í vetur og Sissoko er vonlaus þegar hann er kominn upp að markteig andstæðingana sem sást greinilega í dag.Zenden á ekkert erindi í lið sem ætlar sér að berjast í efri hlutanum. Svo get ég ekki skilið af hverju Benitez spilar með einn framherja í 50 mínútur á sínum heimavelli gegn liði eins og Middlesborough.

  9. Fín leikskýrsla Kristján Atli sammála flestu.Gerrard var góður eftir að Sissoko fór útaf en Mascherano,Pennant og Arbeloa voru góðir allann leikinn fannst mér.

  10. einsi kaldi – lestu skýrsluna, þá sérðu af hverju ég nefndi bara tíu byrjunarliðsmenn.

    Arnór – ég er ekki sammála því að þetta tímabil verði flokkað sem “mistök” og “stöðnun” þótt Chelsea slái okkur út. Jú, menn vilja vinna titil á hverju ári en það hefur margt vatn runnið til sjávar í vetur og jafnvel þótt við förum ekki lengra í CL en undanúrslit (sem er nú andskoti góður árangur fyrir) getum við horft á ákveðna hluti sem framför og þróun hjá Liverpool, til dæmis:

    * Þetta er árið sem nýir eigendur komu inn.
    * Rafa keypti nokkuð marga nýja leikmenn sl. sumar og þeir hafa nú flestir fengið ár til að aðlagast, auk þess sem menn eins og Pennant, Bellamy, Aurelio, Agger, Mascherano og Arbeloa hafa fundið fjölina og geta því hafið næsta tímabil af krafti frá byrjun. Ef Bellamy er hér enn, þ.e.a.s.
    * Við duttum út í 16-liða úrslitum í Meistaradeild í fyrra en förum í undanúrslit í ár. Þannig að þótt við endum með nokkrum stigum minna í deildinni og vinnum ekki FA bikarinn eins og í fyrra verður þetta, tölfræðilega séð, aldrei algjör stöðnun.

    Þannig að jafnvel þótt titill vinnist ekki og liðið sé að sækja færri stig en í fyrra hefur þetta tímabil bæði verið lærdómsríkt fyrir Rafa og leikmennina og mikilvægt fyrir nýju eigendurna. Burtséð frá því hvort við vinnum CL eða ekki er ég mjög bjartsýnn á að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á leikmannahópnum í sumar (þ.e. Fowler, Dudek og Zenden út og þrír heimsklassamenn inn í staðinn) til að árangurinn komi í hrönnum á næsta tímabili.

    Gleymum því ekki hvar Man U voru fyrir ári síðan. Þeir enduðu neðstir í riðli sínum í CL, áttu aldrei séns í Chelsea í deildinni (frekar en við hinir) og fóru skammt í FA bikarnum. Sumir stuðningsmenn vildu jafnvel losna við Ferguson en hann var sniðugur og áttaði sig á að hann var með flest til staðar til að liðið gæti staðið sig betur frá byrjun næsta tímabil. Hann bætti Carrick við yfir sumarið og græddi bæði Vidic og Evra fullklára um haustið, eftir að þeir höfðu valdið vonbrigðum upphaflega á vormánuðunum (keyptir í janúar).

    Grunnurinn er til staðar hjá Liverpool. Ef breytingarnar á leikmannahópnum verða í lágmarki í sumar, en þó gerðar lykilbreytingar, er ég mjög bjartsýnn á næsta tímabil. Og þá munum við verða þakklát fyrir þetta lærdómstímabil, ekki síst af því að menn eins og Mascherano, Arbeloa og Pennant geta komið sterkir strax inn í fyrsta leik í haust.

    Þannig sé ég það allavega. 🙂

  11. Kristján ég er bara svo kröfuharður á Liverpool og Rafa að ég lít á öll tímabil sem enda án titla sem alger reginmistök!

    Rafa talaði um í fyrra að með viðbótum yrði hann líklega með nógu gott til að berjast um sigur í deildinni í ár. Samt gerði liðið sömu mistök í byrjun leiktímabilsins og alltaf og hafa verið algerlega clueless og hrútleiðinlegir stundum á útivöllum í vetur.

    Rafa er lengur að ná tökum á ensku deildinni en hann hélt. Við duttum úr bikarkeppnunum á skammarlegan hátt gegn ekki betra liði en Arsenal þar sem skortur á alvöru breidd kom í ljós, sérstaklega í seinni leiknum.
    Enn og aftur kemur í ljós sumir leikmenn í hópnum eru líklega ekki nógu sterkir og við þurfum að endurnýja leikmannahópinn og fá inn nýja menn sem þurfa þennan fræga 1-2 árs aðlögunartíma.

    Við rétt vinnum Middlesboro á heimavelli þar sem liðið er einbeitingarlaust með hugann við CL. Erum aldrei að vinna leiki stórt og rétt lullum ennþá í gegnum miðlungsliðin á einstaklingsframtökum manna eins og Gerrard.

    Jú ég kalla þetta stöðnun ef við vinnum ekki CL í ár. Þá verðum við á nákvæmlega sama stað og í fyrra fyrir utan yfirtökuna, bara mun lægri stigatölu í deildinni og þeir leikmenn sem eru ekki nógu góðir fyrir Liverpool búnir að skipta um nafn. :confused:

    Ég er þó mjög bjartsýnn! Held að Rafa fái núna loksins þá leikmenn sem eru 1.kostur í hans huga og slíkt myndi styrkja liðið mjög á Englandi því við þurfum alvöru sóknarhættu úr öllum áttum gegn liðum sem pakka í vörn gegn okkur. Alvöru vinstri kantmaður myndi t.d. lyfta sóknarleik Liverpool uppá mun hærra plan.

    Samt er þessi vafi í mínum huga með hvort Rafa sé of varkár fyrir ensku deildina og þetta Liverpool lið, hugsandi full mikið um að verjast fyrst en sækja svo. Við erum með menn eins og Gerrard, Pennant, Riise o.fl. sem hentar ekki vel að spila taktískan varnarleik heldur þurfa að vera á stöðugri hreyfingu til að spila vel. Rafa nær vonandi réttu jafnvægi í þetta.

  12. en af hverju crouch hann var með en fékk ekki úr neinu að moða þess vegna spurði ég af hverju 10 í liðinu kæri kristján ,sissoko var t.d bara að gera ekki neitt og var þess vegna alveg eins með hinu liðinu

  13. Horfði á leikinn og fyrstu 45 mín voru hroðalegar. það sem stendur uppúr er að Pennant spilaði eins og engill og Sissoko var hræðilegur. Karlgreyið hlítur að eiga í vandræðum með sjónina, er gjörsamlega týndur þarna út á vellinum.

Liðið gegn Boro

Markið hans Messi