Liverpool – Chelsea 2-1

Samfélagsskjaldarmeistarar!

skjoldurinn.bmp

Jæja við unnum fyrstu rimmuna af vonandi mörgum við Chelsea í dag og erum því Samfélagsskjaldarmeistarar 2006, til hamingju með það. Ég hef nú séð liðið fagna oft meira en í dag en maður sá að nýju leikmennirnir voru afar ánægðir sbr. Gonzalez.

Svona var byrjunarliðið í dag:

Reina

Finnan – Carra – Agger – Riise

Pennant – Sissoko – Zenden – Gonzalez

Garcia – Crouch

Á bekknum: Dudek, Sinama Pongolle, Gerrard, Aurelio, Alonso, Bellamy, Hyypia.

Þetta byrjunarlið kom mér töluvert á óvart og sagði Rafa eftir leikinn að hann vildi láta þá byrja sem voru í besta líkamlega forminu og síðan skipta mönnum smátt og smátt inná. Það gekk eftir hjá honum þótt þetta passi ekki alveg þar sem t.d. Agger hafði ekki spilað mínútu fyrir þennan leik.

Bæði liðin byrjuðu rólega og voru Chelsea hættulegri til að byrja með. Síðan var það á 9. mín sem Riise vann boltann eftir hornspyrnu Chelsea á vítateig okkar. Riise brunaði af stað ásamt Pennant sem dró Essien frá Riise og á vinstra meginn var Crouch að bjóða sig. riise.bmp
Riise hélt áfram að bruna upp hægra megin á miðjunni á fullri ferð, færð sig eilítið meira inná miðjuna og leit upp. Sá engann frían og ákvað að skjóta að marki Chelsea þar sem Cudicini var í rammanum vegna meiðsla Cech. Terry gat ekki farið fyrir fast skor Riise sem sigldi einnig framhjá Ítalanum reynda í markinu og þandi netmöskvann. Glæsilegt mark hjá Riise og frábært einstaklingsframtak hjá norska Beckham. Hins vegar verður að segjast að Cudicini hefði átt að gera betur (minnsti mig mikið á mark sem Chris Kirkland fékk reglulega á sig). 1-0 eftir 9 mínútna leik.

Við sköpuðum okkur ekki mörg færi fyrir utan markið sem var í raun ekkert færi. Chelsea átti heldur enginn opinn færi í leiknum og leikurinn fór mest fram á miðjusvæðinu. Þar var Sissoko hreint frábært og hefur greinilega verið duglegur í viðstöðulausum í sumar þar sem hann skilar boltanum mun betur frá sér en á síðasta tímabili. Luis Garcia minnti á sig reyndar með að búa til gott færi með góðu spili með Gonzalez en Cudicini varði vel. Síðan kom jöfnunarmarkið stuttu fyrir hálfleik. Essien gaf á Lampard sem á miðjunni, hann gaf góða sendingu á Shevchenko sem tók knöttinn snyrtilega niður á bringuna og lagði boltann framhjá Reina í markinu. Mjög gott mark en einnig mistök í vörninni þar sem bæði Drogba og Shevchenko lágu á Carragher á meðan Agger var mannlaus. Markið kom á 43 mínútu og þannig stóð í hálfleik, 1-1.

Ballack hafði farið útaf meiddur eftir 20 mín. leik og hafði þá Sissoko virkilega boðið hann velkominn í Ensku Úrvalsdeildina með vel útfærðum tæklingum.

Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik en Chelsea virtist vera betur tilbúið í upphafi seinni hálfleiks og náði undirtökunum á miðjunni þar sem Zenden var ásamt Sissoko. Zenden er fínt back up en á ekki að vera byrjunarliðsmaður, hvorki á miðju né kantinum. Er frábær í Middlesboro eða West Ham en ekki í Liverpool.

Rafa skipti varamönnunum smátt og smátt inná og með því að fá Gerrard og Alonso náðum við góðum tökum á miðjusvæðinu. Eftir það voru við ávallt líklegir að setja mark þrátt fyrir að Chelsea hafi haft boltann mun meira en við í þeim síðari. Aurelio, sem átti fína innkomu á vinstri kantinum, sendi góða sendingu á Bellamy sem var upp við endamörkin vinstra megin. Bellamy náði stjórn á knettinum, gaf sér tíma til að horfa í kringum sig og gaf síðan frábæra sendingu á kollinn á Crouch sem skoraði örugglega fram hjá Cudicin frá stuttu færi. Mjög gott mark þar sem Bellamy og Crouch fóru illa með Terry og co. Í endursýningunni sjást 4 bláir varnarmenn inní vítateignum og einn rauður sláni, þar sem Terry einbeitti sér frekar að knettinum en Crouch og eftirleikurinn var auðveldur hjá Crouch. 2-1 eftir 80. mínútna leik.

Eftir markið var gerði fátt markvert og var ég aldrei í hættu að við myndum ekki vinna þetta, virkuðum sjálfstraustir og sigurvissir.

Það spiluðu allir vel hjá okkur í dag og var liðsheildin öflug. Það var gaman að sjá Gonzalez, Aurelio, Bellamy, Pennant og Agger spila í dag og standa sig vel. Sérstaklega fannst mér gott að sjá Agger spila heilar 90 mínútur og mun það skipta sköpum í vetur að hafa gott cover fyrir Hyypia og Carragher. Aurelio sýndi að hann er góður knattspyrnumaður sem getur spilað sem kantmaður sem og bakvörður. Riise skoraði frábært mark og er hrikalega vinnusamur leikmaður. Pennant er óhræddur að taka mótherjan á og getur gefið góðar sendingar fyrir markið. Crouch gerði kannski ekki mikið í þessum leik en hann skoraði og það er fyrst og fremst verkefni framherjans. Bellamy kom með góða innkomu og lítur út fyrir að hann sé frábær kaup hjá Rafa.

sissoko.bmp
En maður leiksins fyrir mér er án efa Mohamed Sissoko. Hann var hreint út sagt frábær á miðjunni í dag og heldur áfram þar sem hann hætti í vor. Núna er hann ekki bara að vinna boltann heldur einnig að fara framhjá mótherjanum sem og skila boltanum vel frá sér. Ef heldur sem horfir þá verður hann einn mikilvægasti leikmaður okkar. Frábær frammistaða.

Rafa sagði eftir leikinn að hann væri [ánægður með sigurinn](http://home.skysports.com/list.aspx?hlid=409595&cpid=38&fxid=297586) og allir hefðu staðið sig vel.

“It is difficult to play against one of the best teams in the world and we have done a good job today and for the rest of the season we will have more confidence. The team worked really hard against a very good team with lots of good players and in the last minutes we were working, running and trying to defend and I am really pleased with the team.”

Ég nenni ekki að fara neitt sérstaklega yfir andstæðinginn nema hvað að Carvahlo sýndi mér enn og aftur hversu óþolandi leikmaður hann er, Shevchenko kemur til með að vera öflugur og að þetta Chelsea lið er alls ekki ósigrandi. Ég hef einhverja tilfinningu að þeir séu ekki eins massívir og undanfarin ár. Ef þeir missa Gallas þá vantar þá mikið og það sást í dag.

[Leikskýrsla SkySports.](http://home.skysports.com/matchreport.aspx?fxid=297586&channel=football_home&cpid=38)
[Leikskýrsla BBC Sport](http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/4780739.stm)

16 Comments

  1. Langaði bara að segja strax að Mourinho hafði rétt fyrir sér allan tímann – Við 100%, þeir 50% = Liverpool 2 – Chelsea 1! :laugh: Annars leist mér vel á liðið, flottur hópur sem við erum komnir með en mikið svakalega er Sissoko góður, frábært að hafa hann í okkar liði.

  2. Ný upplifun að spila við Chelsea með engan Gudjohnsen. Kom sjálfum mér á óvart hversu mikin viðbjóð ég hef í raun á þessu championship manager liði Romans Abramovitsj. Maður gat unað þeim eitt og annað með Eið innanborðs en núna eru þeir bara óþolandi lið.

    Okkar menn litu bara vel út í dag og mikið assgoti er maður farinn að hlakka til tímabilsins. Nóg komð af sumarruglinu og nú má enski boltinn fara að rúlla. :biggrin2:

  3. Er eitthvað að frétta af framherjamálum hjá Liverpool.Verð að viðurkenna að ég er mjög spennutur fyrir M, Klose hugsa að hann sé betri kostur en Kuyt. Einnig ætti nú að vera að hægt að lokka Trezeguet eða Anelka til bítlaborgarinnar.

  4. Frábær frammistaða og ánægjulegt að þeir lágu eiginlega aldrei á okkur að ráði og okkar menn áttu svör við öllum aðgerðum Chelsea. Ég er samt ósammála því að Zenden eigi ekki fullt erindi inn á miðjuna því mér fannst hana spila vel og skila honum vel frá sér. Hann sýndi mér allavega að hann kemur betur út á miðjunni en á kantinum. Sissoko var í sér klassa og gaman að sjá fýlusvipinn á vini okkar Mourinho undir lokin. 🙂

  5. FDM: Ég er sammála þér að Zenden er betri á miðjunni en á kantinum… en hann er alls ekki “playmaker” sem hann telur sig vera og það er mikill munur þegar hann er inná eða Gerrard/Alonso. Zenden er fínn back-up leikmaður og verður það örugglega í vetur en samt slakari kostur en t.d. Hamann hefur verið undanfarin 2 ár sem back up hjá okkur.

  6. Alltaf gaman að vinna úrslitaleiki! 🙂

    Sammála með Sissoko, hrein unun að horfa á kappann spila!

    Tek einnig undir það að það er gott að hafa engan Eið Smára þarna. Þar með eru öll tilfinningaleg tengsl farin og maður getur hatað þetta lið að fullu.

    Ánægjulegt að sjá Agger spila 90 mínútur í stórleik. Ég býst við að Carragher spili flesta leiki í vetur en Hyypia, Agger og Paletta muni skiptast mikið á.

    Svo tel ég það svosem enga nauðsyn að bæta við framherja þegar við erum með Fowler, Bellamy, Crouch og Pongolle þó það væri vissulega góð viðbót. En þá vil ég líka að sá sem er keyptur sé betri en þeir sem fyrir eru, það finnst mér að eigi að vera stefna klúbbsins, ekki kaupa í back-up. Ungir og efnilegir leikmenn eiga að vera back-up leikmennirnir.

    Veit ekki með Kuyt, ég las í morgun að hann vildi frekar fara til Newcastle og verða hetja þar eins og Alan Shearer. Ef hann hinsvegar kemur til okkar er eins gott fyrir hann að vera fljótur að lita þetta svart-hvíta blóð sitt rautt og verða hetja fyrir Liverpool! :biggrin2:

  7. Ef að Zenden spilar jafnvel og hann gerði í dag gegn englandsmeisturunum á miðjunni þá sé ég hann alveg fyrir mér í öðrum leikjum. Auðvitað eru Gerrard og Alonso betri en mér fannst samt miðjan spila mjög vel í dag með Sissoko og Zenden þar. Það er kannski ekki sniðugt að bera saman Hamann og Zenden því Zenden er ekki varnarsinnaður miðjumaður eins og til dæmis Sissoko er fremur. Zenden er fínn valkostur sem sóknarsinnaður miðjumaður og er nú valkostur sem leyfir okkur að hvíla Gerrard/Alonso.

    Mér fannst Zenden ágætur en ekki mikið meira en það gegn Haifa en í dag var hann mjög góður og fékk hrós frá Bellamy í viðtali eftir leikinn og svo fína dóma í ensku miðlunum. Fínt að fá breidd á miðjuna! 🙂

  8. Sissoko er maðurinn!! Og hann er bara rétt að byrja…guð hjálpi andstæðingum Liverpool með þennan Hummer jeppa á miðjunni! 🙂

    Yndislegt að sigra rússneska olíufyrirtækið í dag!

  9. Sissoko var frábær, tvímælalaust maður leiksins. Mér fannst Zenden alls ekki spila illa og Alonso var síst betri eftir að hann kom inn, hann átti einn af sínum daprari dögum í rauðri treyju að mínu mati. Gott að sjá alla nýju mennina koma svona sterka inn, greinilega allt til staðar til að spila bullandi hraðan sóknarbolta í vetur. Markið hjá Riise var auðvitað frábært, en sennilega rétt að eftir tveggja vikna lengri undirbúningstíma hefði henn ekki fengið svona frítt hlaup eða skot gegn Chelski.

    Hvernig væri svo að íslenskir íþróttafréttamenn og lýsendur færu að venja sig við að Eiður Smári er ekki lengur í Chelski og hættu að sleikja svona á þeim aftur******. Gaupi var svolítið heimskulegur í ummælum sínum um liðin, sérstaklega fyrir leikinn (en það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem Gaupi er heimskulegur).

  10. Ég vil árétta það að ég sagði ekki að Zenden hefði verið lélegur, einungis að hann væri ekki byrjunarliðsmaður á miðjunni og en síður á kantinum.

  11. Frábær sigur á mjög góðu liði. Gaman að sjá hversu sterka breidd við erum komnir með, leikur liðsins datt aldrei niður þrátt fyrir 5 skiptingar (reyndar mjög sterkir varamenn sem komu inná). Tek undir það að Zenden virkar betur á miðjunni er á kantinum.

    Hrikalega er Sissoko góður, maður leiksins án nokkurs vafa. Hlítur að vera mjög óþægileg tilfinning að hafa hann andandi ofan í hálsmálið á sér allan tímann. Sama hvert menn hlaupa þeir komast ekki undan honum.

    Líka frábært að sjá leikmenn láta andstæðinginn finna fyrir því, við vorum með yfirhöndina þegar kom að tæklingum og unnum nágvígum. Það var lykillinn að sigri Liverpool í dag. Ef við höldum þessari grimmd áfram þá förum langt á þessu tímabili.

    Gaman líka að sjá leikmenn í búningi LFC með smá röbbis, t.d. Bellamy rífandi kjaft við Terry. Það er einmitt sá faktor sem hefur vantað í liðið.

  12. Fín leikskýrsla, hef í raun ekki miklu við hana að bæta. En samt nokkrir punktar:

    1. Aggi, ég er algjörlega ósammála þér með Zenden. Hann er kannski ekki í sama gæðaflokki og Xabi, Momo og SG en það að segja að hann sé ekki nógu góður fyrir topplið er rugl. Hann var mjög góður í dag, það má ekki bara hrósa Momo fyrir að hafa unnið miðjubaráttuna gegn þremur Chelsea-miðjumönnum í dag heldur stóð Zenden sig vel við hlið hans. Hann hefði átt að nýta færið sitt betur (er vanur að taka svona færi og klára þau) en hann hefur að mínu mati sýnt það að hann er fjölhæfur og góður leikmaður sem mun leika stórt hlutverk hjá okkur í vetur, þótt hann verði ekki alltaf í byrjunarliðinu.

    2. Við byrjuðum leikinn með Gerrard, Alonso, Bellamy, Fowler, Aurelio, Hyypiä, Paletta, Dudek, Carson, Kromkamp, Warnock, Kewell, Pongolle, Le Tallec, Anderson og Diao utan vallar. Þeir voru án Makelele, Gallas, Joe Cole og Petr Cech, annars með sitt sterkasta lið. Látið bullið í José Mourinho næstu daga ekki trufla ykkur, við vorum veikari aðilinn fyrirfram í dag.

    3. Við byrjuðum leikinn með Gerrard, Alonso, Bellamy, Fowler, Aurelio, Hyypiä, Paletta, Dudek, Carson, Kromkamp, Warnock, Kewell, Pongolle, Le Tallec, Anderson og Diao utan vallar. Það er heilt lið sem gæti komist í Meistaradeildina upp á eigin spýtur! VIÐ ERUM MEÐ BREIDDINA, LOKSINS!!!

    4. Guten Tag, Herr Ballack. Wielkommen aus der Englischen Premierligaen. Wirklich Hilsen, Momo Sissoko. :biggrin:

  13. Frábær leikur og góð úrslit.

    Hugsiði ykkur ef Momo Sissoko hefði nú farið til Everton :confused:
    Ég er alveg himinlifandi að Rafa náði að stela honum fyrir framan nefið á Everton :biggrin:

  14. “Eftir markið var gerði fátt markvert …”
    Fékk ekki Aurelio boltann aleinn inn í teig og átti sæmilegt skot? Var það ekki ansi markvert að sjá hversu óöruggir þeir voru í vörninni?

    Glæsilegur sigur engu að síður :biggrin:

Liðið gegn Chelsea – Gerrard & Alonso á bekknum

Rafa neitar óvinskap við Mourinho.