Liverpool 0 – Man U 0

liverpoolvmanutd.jpg Jæja þá er komið að því að ég fái að spreyta mig og skrifa leikskýrslu. Það er enginn smá leikur sem ég fæ að skrifa um en því miður þá stóð leikurinn ekki undir væntingum.

Ég var þess handviss að við myndum innbyrða góðan sigur í dag gegn Man U en það gekk ekki eftir. Ég er drullufúll yfir leik okkar manna, mér fannst við ekki nógu grimmir, hungraðir í öll 3 stigin þrátt fyrir að við værum klárlega betra liðið á vellinum allan leikinn. Ég átti alla vega ekki von á markalausu jafntefli þar sem það hefur ekki gerst í deildinni síðan 1991. Jæja nóg um þetta í bili… byrjunarliðið okkar var eftirfarandi:

Reina

Finnan – Carragher – Hyypiä – Warnock

Pongolle – Gerrard – Alonso – Riise

García
Crouch

BEKKUR: Carson, Josemi, Sissoko, Traoré, Cissé.

Við byrjuðum af karfti og Gerrard átti skot hárfínt framhjá markinu og leit þetta bara þokkalega út. Pongolle var sprækur á hægri kantinum ásamt því sem Crouch virtist valda Rio vandræðum með sína löngu leggi. En einhvern veginn náðum við aldrei að setja mikla pressu á Man U í fyrri hálfleik né eiga dauðafæri. Hins vegar fékk Van Nistelrooy dauðafæri þegar Rio skeiðaði upp allan völlinn án þess að vera hindraður, gaf stungusendingu á Nistelrooy sem reyndi að “chippa” boltanum yfir Reina… sem tókst en fór líka yfir markið. Í þeim síðari var sama stöðubaráttan á miðjunni í gangi en hvorugt liðið fékk dauðafæri. Garcia fékk tvö hálf-færi þegar hann átti skot framhjá með vinstri sem og skalla sem fór framhjá eftir góða sendingu frá Gerrard. Pongolle og Crouch fóru síðan útaf þegar ca. 13 mín voru eftir, Cisse og Sissoko komu inná en því miður breytti það ekki gangi leiksins (reyndar fannst mér þessi skipting koma ALLTOF seint). Jafntefli varð niðurstaðan og í rauninni eiginlega bara steindautt jafntefli ólíkt leiknum gegn Spurs fyrir viku sem var þrælskemmtilegur leikur þrátt fyrir markaleysið.

Vörnin stóð sig vel eins og hún leggur sig, allir með solid leik og börðust vel að vanda. Lítið reyndi á Reina í leiknum.
Miðjan var ekki nægilega afgerandi og þrátt fyrir að vera betri en hjá Man U þá vantaði eitthvað hjá flestum. Alonso var óvenju dapur og átti margar feilsendingar, Gerrard var vinnusamur og já bara allt í lagi. Pongolle byrjaði vel og var óhræddur við að keyra á varnarmenn Man U en þreyttist þegar á leið leikinn. Riise er mjög takmarkaður kantmaður og spilaði eins vel og hann getur (sem er ekki nægilega gott fyrir LFC) og síðan Garcia en hann var ömurlegur í þessum leik. Oft á tíðum virtist sem hann væri ekki með í leiknum, tók furðulegar ákvarðanir með boltann og já segja má að akkúrat EKKERT hafi gengið upp hjá honum í dag.
Í sókninni var Crouch duglegur að tengja saman sókn og miðju og pirraði klárlega Rio framan af en var þreyttur þegar á leið og fékk í raun ekki úr neinu að moða í sókninni.

Neikvætt: Ég var afar ósáttur við spilamennsku Garcia og Alonso í þessum leik. Alonso átti alltof margar vafasamar sendingar (sem er afar ólíkt honum) og virkaði óöruggur allan leikinn. Garcia er ávallt tilbúinn að fá boltann og hættir aldrei en nákvæmlega ekkert gekk upp hjá honum í dag og má segja að hann hafi ávallt valið krýsuvíkurleiðina að markinu í dag. Sóknarlegar vorum við slappir í dag, lítið hugmyndarflug og vondur “houllier-fnykur” af spilamennskunni.

Jákvætt: Við spiluðum varnarlega mjög vel og áttu Man U í raun aldrei séns að stela sigri í þessum leik. Við héldum hreinu áfram sem er flott en á móti eru mörkin ekki að rigna inn hjá okkur undanfarið í deildinni.

Maður leiksins: Það var enginn frábær í þessum leik, Pongolle átti spretti í fyrri hálfleik og Crouch einnig. En sá sem klikkar aldrei og er minn maður leiksins er Jamie Carragher. Carragher hélt Nistelrooy og Rooney vel niðri í leiknum og var duglegur að hvetja samherja sína.

Það sem stendur uppúr eftir leikinn er að við töpuðum 2 stigum í dag! Við erum búnir að spila 4 leiki, 1 sigur og 3 jafntefli. Markatalan 1-0! Erum sem stendur í 10. sæti. ÞAÐ ER EKKI NÓGU GOTT! Við getum betur en í dag, miklu betur. Sýndum það gegn Betis á þriðjudaginn. Jæja ég er farinn út í hjólreiðatúr og leyfi Benitez sjálfum eiga lokaorðið í dag:

“I’m worried [about the lack of goals] but we don’t any concede goals in four games,” Benitez told Sky Sports 1.
“You always need to find positive things, and it’s always important to score as you can’t win if you don’t, but we showed a better performance in defence than last season. “

19 Comments

  1. já ég veit ekki alveg hvað maður á að segja um leikinn, var ágætis leikur þrátt fyrir skort á alvöru færum, vörin var frábær að venju en miðjan eitthvað hálf döpur en ég er ekki alveg sammála að Garcia hafi verið ömurlegur því hann var mikið í boltanum og er alltaf að reyna en stundum bara gengur það ekki upp eins og í dag en svona í heildina litið þá er maður svona þokkalega sáttur með stigið :confused:

  2. Þokkalega ánægður með stigið. Við erum allavegana komnir á sama styrk andlega og man utd. Þeir vinna oft leiki á frekju á ákveðni en við gáfum þeim ekkert eftir þar. Svo virðist líka sem andinn í liðinu sé að batna.

    Ég hef enn áhyggjur af köntunum og svo hvað kemur lítið út úr föstum leikatriðum. Við hljótum að vera slakasta liðið í deildinni hvað það varðar.

    Helda samt að þetta sé allt að koma hjá okkur og frekar bjartsýnn á framhaldið.

    Góðar stundir!

  3. Er næstum 100% sammála leikskýrslu Agga, skil ekki hvernig Liverbird getur sagt að þetta hafi verið ágætis leikur! Þokkalega sáttur með stigið??? Ég sjálfur hundfúll! Það var ekkert að gerast hjá okkar mönnum og þrátt fyrir að hafa verið skárra liðið í dag, þá hjálpar það okkur ekkert.

    Hugmyndaleysi í sókninni er áhyggjuefni, markatalan 1:0 eftir fjóra deildarleiki er áhyggjuefni. Benitez segir að maður eigi alltaf að sjá hið jákvæða. En maður kemst ekkert langt á því!! Djö… pirrar þetta mig mikið.

    Fyrir leikinn hafði Benitez sagt skýrt að við þyrftum að vinna Man U til þess að láta taka okkur alvarlega í toppbaráttunni þetta árið. Man U getur verið ánægt með stigið – ekki við!

    Dapur leikur okkar manna á móti daprari Man U mönnum.

    Samt eitt komment sem stakk mig og ég skildi ekki alveg: “Houllier-fnykur af spilamennskunni”??? Maðurinn átti ekki bara slæma tíð hjá Liverpool, hjá honum voru þó skoruð mörk í deildinni! Ég er ánægður með CL-árangurinn okkar, en ég þrái að sjá framför í deildinni, og hún er alls ekki að láta á sér kræla. Persónulega hefði ég sett Sissoko og Cisse inn miklu fyrr. Varnarbolti er leiðinlegur bolti og það var leiðinlegur bolti sem við sáum í dag!

    Hmm… maður leiksins. Enginn í alvörunni. En til að velja einhvern, þá var það Jamie Carragher.

  4. “Í sókninni var Crouch duglegur að tengja saman sókn og miðju”
    Vel orðað og hann er mjög góður í að vera þessi tengiliður en honum vantar annan mann til þess að tengja á. Sammála Agga, hefðum átt að spila til sigurs og vildi fá Garcia útaf í hálfleik.

  5. Eigum við ekki aðeins að bíða með að verða brjálaðir? ..Sjá hvað gerist á laugardaginn gegn Birmingham, þar sem að ég reikna nú fastlega með að Rafa stilli upp tveim framherjum. Því þetta eru í raun ekkert léttustu leikir í heimi sem við erum búnir að vera að gera jafntefli við, gríðarsterkt lið Tottenham á útivelli, Man. Utd. á heimavelli og svo Middlesbrough á Riverside(sem hefur einhverra hluta vegna reynst Liverpool erfiður völlur í gegnum tíðina).

    Ég get í rauninni alls ekkert verið mjög ósáttur við þetta (þó mér finnist Middlesborough ömurlegt lið, við hefðum getað skorað fullt á móti Tottenham og að við eigum að vinna Derby-slagina á Anfield).

    En næsti leikur á eftir Birmingham er Chelsea. Það finnst mér vera eini “erfiði” leikurinn þar til við förum á Old Trafford 21. janúar. Í millitíðinni eru 14 leikir og ég vil að við fáum 42 stig útúr þeim leikjum…þið megið reikna út sjálf hvað við þurfum að vinna marga þeirra til að ná þessum stigafjölda! 😉 ..og ekki halda að ég sé að grínast! 😡 🙂

  6. ég bara skil ekkert í rafa að hafa ekki cisse og crouch saman í byrjunarliðinu. þetta gæti reynst hið fullkomna par, crouch að vinna boltann í loftinu og nikka honum innfyrir á cisse. frábær blanda þar sem annar er stór, góður í loftinu og góður að halda boltanum meðan hinn er öskufljótur og ávallt að bjóða sig í eyður og tilbúinn fyrir stungusendingar. ég er handviss um að ef þeir myndu fá 7-10 leiki saman í röð þá yrðu þeir baneitraðir.

    best að ég tjái mig ekkert um frammistöðu garcia, enda yrði það ekki falleg lýsing og það á ekki bara við um þennan leik.

    en það voru líka jákvæðir punktar í leiknum, t.d. að jafn gott sóknarlið og man utd skuli aðeins ná að ógna markinu einu sinni í 90 mín segir talsvert um vörn og miðju hjá okkur. carra átti fanta góðan leik eins og vanalega og hinir þrír varnarmennirnir áttu allir góðan leik.
    síðan var gaman að sjá til pongolle í fyrri hálfleik, átti marga ágæta spretti og á bara eftir að bæta sig í þessari stöðu með hverjum leiknum.

    Nú verður bara að nást sigur um næstu helgi gegn birmingham, allt annað er algjörlega óásættanlegt fyrir lið sem vill láta taka sig alvarlega.

  7. Flott leikskýrsla Aggi, kannski þú fáir bara að gera þetta aftur á næstunni. 🙂

    Ég er hins vegar ekki alveg sammála þér með Alonso og García. Mér fannst þeir spila ágætlega í þessum leik; Alonso var iðinn og vann mikið af boltum á miðjunni, en sendingarnar hjá honum voru svolítið misjafnar. García var síðan eini leikmaður okkar, auk Gerrards, sem reyndi eitthvað að koma sér inn í teig og skapa eitthvað. Hann átti einn af þessum dögum, náði ekki að búa til neitt markvert en hann hætti aldrei að reyna, barðist eins og ljón og vann gríðarlega vel allan leikinn. Þótt það hafi ekki komið neitt áþreifanlegt út úr því í dag (né heldur hjá hinum í liðinu) þá reyndi hann samt meira en allir aðrir.

    Á heildina litið er ég sáttur við leik okkar manna. Við vorum öruggir og yfirvegaðir í vörn, áttum miðjuna með húð og hári og náðum að pressa United mest allan leikinn. Sáttur við það. Hins vegar verður það að viðurkennast að með Riise/Zenden hægra megin og Pongolle/García/Cissé hinum megin erum við ekki nógu öflugir á vængjunum. Okkar stærsti höfuðverkur í dag, sóknarlega, er sá að við erum ekki að skila nógu mörgum boltum inn í teiginn.

    Ég tek undir með Rafa að það er áhyggjuefni að vera bara búnir að skora 1 mark í 4 leikjum, en á móti kemur að við höfum ekki fengið eitt einasta á okkur, erum taplausir og búnir með þrjá erfiða leiki, og að liðið er að spila vel. Mörkin koma ef við höldum áfram á þessari braut, þau koma…

  8. Mér fannst Gerrard vera okkar besti maður í dag og átti nokkrar frábærar tæklingar á síðustu stundu, eins og reyndar Carragher. Við vorum reyndar ekkert betri heilt yfir og fannst mér að Man Utd betri í fyrri hálfleik en við í Seinni. Það sem pirraði mig ótrúlega í seinni hálfleik var það að við gátum ekki haldið boltanum innan liðsins á vallarhelmingi Utd, Garcia missti boltann alltof oft og eins datt Crouch alveg út í seinni hluta leiksins. Óskiljanlegt að nota ekki Cisse mun fyrr í leiknum og greinilegt að hann er hundpirraður með núverandi ástand og svekkti sig á feilsendingum í stað þess að einbeita sér að leiknum.

  9. Gat (því miður?) ekki séð leikinn. Eini fótboltinn, sem ég gat séð var Ivan de la Pena takandi Real Madrid í nefið. Mikið afskaplega virkar þetta Madrid-ar lið slappt.

    Allavegana, ég er farinn að hafa VERULEGAR áhyggjur af þessu markaleysi. Þrátt fyrir Pollýönnu kommentið hans Kristjáns, þá gengur það hreinlega ekki að ná ekki að skora eitt einasta mark úr opnu spili í fjórum heilum leikjum. Það er með hreinum ólíkindum. Auðvitað “koma mörkin”, en málið er bara að hingað til hafa þau ekki komið. ÞAð er enginn að halda því fram að við förum markalausir í gegnum tímabilið, en í dag erum við ekki að skora. Þeir framherjar, sem skora ekki mörk, eru ekki nógu góðir fyrir þetta lið. Svo einfalt er það. Ég meina hversu lélegur er Djibril Cisse á æfingum víst hann kemst ekki einu sinni í lið, sem getur ekki skorað?

    Sá á BBC að Riise var settur í lið vikunnar, þannig að það hlýtur að hafa verið eitthvað jákvætt í þessum leik og auðvitað eru þessi úrslit *betri* en á síðasta tímabili alveg einsog með Boro leikinn.

    En þetta djöfulsins markaleysi er orðið verulega pirrandi. Eina liðið, sem er jafnlélegt í markaskorun er FOKKING Everton. Sunderland eru búnir að skora fleiri mörk.

    Þetta er nákvæmlega það sem ég talaði um í sumar þegar við vorum að selja Milan Baros. Þessir framherjar hjá okkur í dag eru einfaldlega EKKI NÓGU GÓÐIR. Ef þeir væru það, þá værum við búnir að skora mörk!!! 😡

  10. Það má kannski segja að munurinn á góðum liðum og meðalgóðum liðum hafi komið fram í byrjun þessa tímabils, Chelsea og Man U eru ekkert að spila sérstaklega vel en eru samt að vinna leiki og það er það sem vantar að mínu mati, trúin á að vinna leikina þrátt fyrir að vera að spila illa.

    Eða kannski bara trúna á að vinna leiki yfir höfuð, ég hef ekki en séð hungrið og grimmdina sem þarf til að vinna leiki en ég sá reyndar ekki Betisleikinn.

  11. Og já, við erum TÓLF STIGUM á eftir Chelsea. Þrátt fyrir að maður reyni útí hið ítrasta að vera bjartsýnn, þá er erfitt að sjá að þetta lið sé í framför.

  12. Já, og er það ekki yndislegt að bresku blöðin séu byrjuð að [halda því fram að Gerrard sé óánægður](http://www.timesonline.co.uk/article/0,,27-1783952,00.html) þrátt fyrir að hafa **NÁKVÆMLEGA EKKERT** til að styðja þær fullyrðingar.

    Djöfull pirrar þetta mig. Ég ætla að leggjast uppí hengirúm með lappir uppí loft og ekki hugsa um fótbolta næstu vikuna!!! – er ekki gaman að reyna að plata sjálfan sig?

  13. Tek undir því sem Einar segir varðandi skorleysið okkar. Baros er að vísu “bara” búinn að skora eitt mark, sem og Michael Owen, en samanlagt hafa þeir þó skorað helmingi fleiri mörk en Liverpool-liðið það sem af er tímabilinu.

    Rafa segir í viðtali að Liverpool verði að vinna Man U til að verða teknir alvarlega í toppbaráttunni. Svo eftir dautt markalaust jafntefli, þá talar hann um jú áhyggjur vegna markaleysis en kemur upp með Pollýönnuna (flott líking, Einar), því “maður á alltaf að horfa á það jákvæða”.

    Gefum okkur að 34 leikir sem eftir eru hjá okkur fari 0:0 … stöndum við þá upp stoltir aðdáendur og segjum: hey! við fengum ekkert mark á okkur! ??

    Verulega ýkt dæmi hjá mér – ég veit – en vandinn er mikill. Af hverju er Cisse ekki meira inn á? Af hverju eru menn sáttir við þetta markalausa jafntefli?? Þetta jarm um 3 erfiða leiki er bara bull. Við eigum að vinna lið eins og Boro, óheppnir jú á móti Tottenham, við eigum að rústa liði eins og Sunderland og leikinn í dag hefðum við átt að vinna – miðað við spilamennsku Man U. Gerrard talar um að kannski hafi þeir sýnt of mikið “respect” í fyrri hálfleik? Ef það er málið, þá aukast áhyggjur mínar! No respect for no one!

  14. Okkar menn léku nær allir ágætlega. Garcia lék hins vegar ekki vel og hann var maðurinn sem átti að láta hlutina gerast í sókninni. Hann skorar vissulega við og við glæsileg mörk, en ég sé hann ekki verða burðarás í sóknarleik Liverpool. En þetta var stál í stál og sanngjörn úrslit.

    Ég er að lesa skemmtilega bók þessa dagana, ævisögu Robbie Fowler. Hann drullar þar hraustlega yfir Houllier og skv. Fowler var maðurinn alveg gufuruglaður sem stjóri Liverpool. Fowler var stórbrotinn leikmaður þegar hann var uppá sitt besta og Liverpool liðið á þeim tíma lék frábærlega skemmtilegan fótbolta. En svo kom Houllier …

  15. Þetta var ekkert Pollýönnu-komment hjá mér, Einar. Ég var bara að líta á staðreyndirnar. Ég skal útskýra það aðeins nánar.

    Að mínu mati eru tvær ástæður, öðrum fremri, fyrir því að við erum ekki að skora mörk:

    1. Heppni. Cissé skoraði löglegt mark gegn Sunderland, ranglega dæmt af. Steven Gerrard hefði getað skorað fimm gegn Middlesbrough í fyrsta leiknum. Morientes skaut framhjá og Gerrard í stöng gegn Sunderland. Riise, Cissé, Crouch og García voru allir óheppnir gegn Tottenham, sérstaklega Crouch sem skoraði gott mark en það var því miður ólöglegt. Í leiknum í dag átti Gerrard gott skot sem van der Sar varði og García gott skot rétt framhjá. Auðvitað er ekki hægt að afsaka liðið með heppni, en það er samt staðreynd að stundum bara vill boltinn inn, og stundum ekki. Til dæmis virtust okkar menn ekki geta hætt að skora gegn W.B.A. á útivelli í fyrra, en á heimavelli gegn Birmingham bara vildi boltinn ekki inn. Að því leytinu til getum við alltaf sagt, “mörkin munu koma” …

    2. Kantarnir. Hægra megin erum við með García, Pongolle og Cissé – tvo framherja og einn sem er bestur í ‘holunni’ – sem að eru ekki að skila neinu inn í teiginn. Þeir einu sem áttu fyrirgjafir frá hægri í dag voru Gerrard og Finnan, og þær voru lélegar. Hinum megin er Riise mikill hlaupari og góður skotmaður, en hann mun aldrei mata framherja hjá okkur jafn vel og við ætlumst til af kantmanni. Zenden er betri fyrirgjafamaður en hefur ekki náð að skila miklu af viti það sem af er, held að sendingin hans á García gegn Betís á þriðjudag hafi verið fyrsta stoðsendingin hans. Með öðrum orðum: við erum ekki að skapa neitt utan af köntunum. Harry Kewell í fullri leikæfingu gæti lagað stóran hluta af þessu, sem og ef við hefðum keypt t.d. Simao Sabrosa fyrir lokun markaðarins, en þetta eru stór EF … eins og staðan er í dag er kantspilið einfaldlega akkilesarhæll Liverpool, sóknarlega séð.

    Hafið annað í huga. Þegar við vorum ekki að skora í fyrstu tveimur leikjunum gátu menn ekki hætt að ráðast harkalega á Morientes. “Hann er ómögulegur,” “hann átti ekki eina marktilraun,” og “það er engin ógn af honum!” var á meðal þess sem heyrðist. Í dag hefur Peter Crouch spilað þrjá leiki í röð frá byrjun og ekki skorað eitt einasta mark. Hann átti stóran þátt í báðum mörkum okkar gegn Betís, en að öðru leyti gæti sama gagnrýni átt við um Crouch. Af hverju eru menn þá ekki að gagnrýna hann eins mikið og Morientes? Gæti það verið af því að menn héldu að markaleysið væri Morientes að kenna, þegar hann var frammi, en nú þegar þeir sjá að Crouch á í sömu vandræðum – þ.e. engin þjónusta í formi fyrirgjafa – þá séu menn reiðubúnir að skoða það sem ég hef verið að halda fram í tvo mánuði, að kantspilið sé ekki nógu sterkt?

    Rafa þarf að taka stóra ákvörðun fyrir næsta leik, það er ljóst. Það leikur enginn vafi á því að kantspilið er ekki eins og það gæti best orðið, þannig að Rafa hlýtur að spyrja sig hvers vegna hann eigi ekki bara að fara aftur í 4-4-2 og setja Cissé inn við hliðina á Crouch? Láta þá tvo búa til fyrir hvor annan? Að mínu mati væri það ekkert vitlaust – það er erfitt að spila 4-5-1 með alla áherslu á kantspil, þegar það er það eina sem liðið nær ekki tökum á.

    Þannig að þótt mér hafi þótt liðið leika vel á flestum vígstöðvum í dag og verið betri aðilinn, þá er markaleysið engu að síður áhyggjuefni. Jú, ef við hefðum verið “heppnir” en ekki “óheppnir” í síðustu leikjum hefðum við getað skorað 2-3 mörk í hverjum deildarleik, en það breytir því ekki að sóknarleikurinn er steingeldur þangað til annað hvort Rafa breytir um taktík eða við fáum betri menn á kantana. Og þar sem við getum ekki fengið betri menn á kantana fyrr en í janúar legg ég til að Cissé og Crouch fái að byrja inná saman um næstu helgi.

    Cissé er skiljanlega ekki í byrjunarliðinu í 4-5-1 kerfi þar sem hann er ekki hentugur sem einn framherji í slíku kerfi, en í 4-4-2 á hann að vera fyrsti maður á blað … þar sem hann er sá eini sem við eigum sem virðist geta skorað í hverjum leik sem hann fær að spila (já, Tottenham-leikurinn er eini leikurinn í vetur, að forkeppni Meistaradeildarinnar meðtalinni, sem Cissé hefur byrjað inná án þess að skora í. Ef hann byrjar inná, fyrir utan þann leik, þá skorar hann) Hann mun hins vegar aldrei skora mörk fyrir okkur ef hann fær áfram bara 10-15 mínútur í leik.

  16. Langur og ágætis svarpóstur frá Kristjáni. Varðandi heppnina, þá segi ég það sem svo margir þjálfarar og lýsendur hafa sagt t.d. um Íslandsmótið hér heima: maður sækir heppnina líka!

    Og varðandi það að meiri gagnrýni sé á Morientes heldur en Crouch, þá skal ég bæta úr því: það kom akkúrat ekkert úr Crouch í dag! Hann var með betri mönnum í Betis-leiknum, en í dag var hann ekki að gera það fyrir mig.

    Ég hef heldur aldrei haldið því fram að kantspilið væri prima gott hjá okkur. Ég tek undir með Kristjáni varðandi það, en gagnrýnin á við kantana og sóknina líka. Annað markið á móti Betis… af hverju var ekki hægt að sjá álíka tilraun á móti Man U ? Ég held því fram að Owen hefði getað hjálpað okkur og menn mega blammera mig fyrir það. Ég held því fram að kerfið sem við höfum verið að spila 4-5-1 sé ekki að virka nógu vel. Það er eitthvað alvarlega mikið að þegar mörkin láta bíða eftir sér svona mikið!

    Og þá er vel hægt að segja það sem ég og fleiri höfum gagnrýnt Rafa og stjórn mikið fyrir: það var alls ekki gert nóg til þess að fá menn til liðs við Evrópumeistara Liverpool. Stolt er gott og við eigum aldrei að missa það, en stundum verðum við jú að koma meira til móts við kröfur/óskir annarra.

    Það er á hreinu að eitthvað verður að gera … ég vona svo sannarlega að Rafa finni hvað það er og framundan sé markaveisla.

  17. Ég tel að Rafa verði að breyta liðsuppstillingunni í 4-4-2 eða 4-3-1-2 til að mörkin fari að koma. Ég mundi þá stilla upp liðinu svona:

    Reina
    Finnan – Carra – Hyypia – Warnock/Riise (Warnock er betri eins og er)
    Gerrard – Xabi – Sissoko
    Garcia
    Crouch – Cisse

    Hann mætti mín vegna alveg gefa Xabi hvíld í næstu leikjum þar sem ég hef orðið fyrir þó nokkrum vonbrigðum með hann það sem af er tímabili (að undanskildu markinu gegn Sunderland). Hann ætti ALLTAF að nota 2 sóknarmenn, sama hvar og við hvern liðið er að spila. Svo verður liðið að hætta að gefa nánast eingöngu háa bolta á Crouch frammi og fara að spila fjölbreyttari sóknarleik. Sóknarleikurinn gegn ManUtd var allt of einhæfur.

  18. Já, auðvitað má skrifa eitthvað af þessu á óheppni. En það er hreinlega ekki hægt að líta framhjá því að framherjarnir okkar eru ekki að skora mörk.

    Ég nenni ekki að fletta því upp, þar sem ég hef takmarkaðan tíma, en lentum við ekki í svipaðri markaðþurð í fyrra, um mitt tímabil. Ég man að það komu einhverjir 3-4 leikir, þar sem við skoruðum úr opnu spili. Þrátt fyrir allan ömurleikann undir Houllier, þá gerðist slíkt nánast aldrei undir hans stjórn. Ég tel aðalmuninn þá og núna var að Houllier spilaði með framherja, sem *skoruðu mörk*. Framherjarnir í dag gera það ekki, nema gegn einhverjum prumpliðum.

    Ég er svo auðvitað sammála þessu með kantspilið (btw, af hverju spilaði Zenden ekki í gær?). Ég hef varla þorað að skrifa það á þessari síðu, en ég bind miklar vonir við endurkomu Harry Kewell. Ef við fáum einhvern tímann að sjá gamla góða Harry Kewell, þá gæti það breytt miklu. Einnig verður Zenden að fara að sýna eitthvað.

    En svo set ég náttúrulega STÓRT spurningamerki við það að Rafa skuli halda áfram með 4-5-1 með þessa gjörsamlega vonlausu kantmenn. Þetta kerfi gekk upphjá Valencia og það gengur upphjá Chelsea vegna þess að þessi lið eru með frábæra kantmenn, sem skapa mikið. Við erum hins vegar með norskan bakvörð og 20 ára gamlan sóknarmann á köntunum okkar. Að mínu mati er enginn stórkostlegur munur á byrjunarliðum Chelsea og Liverpool um helgina, NEMA á köntunum. Flo-Po, Riise, Zenden og Garcia geta hreinlega ekki keppt í sömu deild og Robben, Duff, Wright-Phillips og Cole.

    Það er vandamálið og Rafa verður að fara að opna augun gagnvart því.

Pongolle í liðinu!

Sterkur varnarleikur, slakur sóknarleikur.